Víkurfréttir - 05.06.2014, Blaðsíða 7
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 5. júní 2014 7
Reykjanestá
Sandvík
Djúpivogur
Hvalsnes
Keflavíkurflugvöllur
Sandfellshæð
Stapafell
Þórðarfell
Arnarseturshraun
Sólbrekkur
GRINDAVÍK
Bláa lóniðBridge between continents
Seltjörn
Þorbjarnarfell
HAFNIR
SANDGERÐI
REYKJANESBÆR
GARÐUR
VOGAR
JARÐVANGSVIKA
Á REYKJANESI 2.-8. JÚNÍ 2014
FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ
Gíga ganga með Ara Trausta og Nanný
Gengin verður ný 14 km gönguleið, 100 gíga
leiðin, undir leiðsögn Ara Trausta Guðmunds-
sonar jarðfræðings og Rannveigar L. Garðars-
dóttur leiðsögumanns. Gangan hefst við
Valahnúk kl. 17:30 en boðið verður uppá rútu
kl. 17:00 frá Hópferðum Sævars Vesturbraut
12, Reykjanesbæ. Kostnaður við rútu og leið-
sögn er 1.000 kr.
FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ
Heimskautin heilla í Þekkingarsetri Suðurnesja
Þekkingarsetur Suðurnesja fær afhent málverk
af Jean-Baptiste Charcot sem áður var í eigu
Hermanns Jónassonar fv. forsætisráðherra.
Kl. 18:00.
LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ
Kortlagning lúpínu í Reykjanesfólkvangi
Ekið verður um Reykjanesfólkvang og farið í
styttri gönguferðir til að kortlegg ja útbreiðslu
lúpínu. Minnstu breiðurnar verða fjarlægðar
í samvinnu við landvörð. Mæting við Seltún
í Krýsuvík. Kl. 10:00
Gönguferð um Ásbrú
Létt morgunganga um gamla varnarliðssvæðið
að Ásbrú í boði Kadeco. Sagt verður frá lífinu á
„vellinum“ þegar svæðið var í umsjón Bandaríkja-
hers. Gengið verður frá Eldey, frumkvöðlasetri
og endað í Íbúð kanans. Leiðsögumaður er
Eysteinn Eyjólfsson. Kl. 10:00
Blue Lagoon Challenge 2014
Stærsta fjallahjólakeppni landsins hefst við
Ásvelli í Hafnarfirði. Keppendur hjóla sem leið
liggur Djúpavatnsleið, gamla Suðurstrandar-
veginn, gegnum Grindavík og koma í mark við
Bláa Lónið. Kl. 16:00 Nánari upplýsingar
á www.bluelagoonchallenge.com.
SUNNUDAGUR 8. JÚNÍ
Matarupplifun í Reykjanes jarðvangi
Veitingastaðir á Suðurnesjum bjóða alla daga
ársins uppá girnilega rétti þar sem notast er við
hráefni úr Reykjanes jarðvangi. Veitingastaðirnir
LAVA í Bláa Lóninu, Vitinn í Sandgerði, Kaffi
Duus í Reykjanesbæ og Vocal í Reykjanesbæ
vekja sérstaka athygli á þeim réttum sem unnir
eru úr hráefni úr nágrenninu.
Jarðvangsvika í Nettó
Nettó í Reykjanesbæ og Grindavík vekur
sérstaka athygli á þeim vörum sem framleiddar
eru í Reykjanes jarðvangi á meðan vikunni sten-
dur.
TAKTU ÞÁTT Í SKEMMTILEGUM
LEIK Á FACEBOOK!
Þú getur unnið glaðning fyrir fjölskylduna með
því að taka þátt í skemmtilegum leik á Facebook
síðu Reykjanes Geopark - Iceland
facebook.com/reykjanesgeopark
Í tilefni dags sjómanna þann 1. júní 2014 var vígð ný hönnun á
minningarreit um drukknaða og
horfna sjómenn sem stendur við
Njarðvíkurkirkju. Hönnunin á
minningarreitnum var í höndum
Guðmundar Rafns Sigurðssonar
framkvæmdastjóra kirkjugarðar-
áðs en um framkvæmdina sáu
fyrirtækin Grjótagarðar og Raf-
verkstæði IB. Bæði þessi fyrir-
tæki eru í rekstri í Reykjanesbæ.
Upphaf minningarreitsins má rekja
til þess að Karvel Ögmundsson
hafði forgöngu að því að setja upp
minnisvarða um unga menn sem
fórust 3. maí 1962 með vélbátnum
Maríu. Seinna var settur upp
steinn til minningar um horfna
og drukknaða sjómenn en við
hlið hans eru smærri steinar með
nöfnum horfinna.
Ólafur Guðmundsson sem var
umsjónarmaður Kirkjugarðs
Njarðvíkur um árabil bar þá von í
brjósti að gera minnisvarðann og
umhverfi hans veglegra. Loks var
farið í verkið á vordögum þessa árs,
með góðum stuðningi styrktaraðila
ásamt fjárframlagi úr sjóði Kirkju-
garðs Njarðvíkur.
Helstu styrktaraðilar voru: Útvegs-
mannafélag Suðurnesja, Sparri ehf.,
Samkaup h.f. og Halldóra J. Guð-
mundsdóttir og börn til minningar
um Ingólf Bárðarson fyrrv. for-
mann sóknarnefndar Ytri-Njarð-
víkursóknar.
Vilja sóknarnefndir Njarðvíkur-
sókna koma á framfæri innilegu
þakklæti til styrktaraðila fyrir
þessar höfðinglegu gjafir, fram-
kvæmdaraðila sem og hönnuðar
verksins. Guð blessi íslenska sjó-
menn og fjölskyldur þeirra, segir í
tilkynningu.
Grallarar rassa kast
ast á Reykjanesi
Í vikunni kemur út bókin „Glingló, Dabbi og Rex – Rassaköst á Reykjanesi“ eftir Selmu Hrönn Maríudóttur. Bókin er sjötta bókin í
bókaflokknum um kisurnar Glingló og Dabba og hundinn Rex. Í þess-
ari bók fara þau í könnunarleiðangur um Reykjanesskagann. Þau hitta
m.a. bergrisa, hlaða beinakerlingu, ganga yfir brú á milli heimsálfa,
prófa jarðskjálftahermi og lenda í skemmtilegum ævintýrum.
Sögurnar eru á vísnaformi, vel
til þess fallnar að auka orðaforða
barna en einnig sagðar á einföldu
máli fyrir yngstu lesendurna.
Bókin sem hér um ræðir er unnin
í samvinnu við Reykjanes jarð-
vang og kemur jarðvangurinn til
með að gefa bækur í alla leik- og
grunnskóla á Suðurnesjum. Fyrstu
eintökin voru afhent í Grunnskól-
anum í Sandgerði við upphaf jarð-
vangsviku á Reykjanesi sem fram
fer 2.-8. júní.
Selma Hrönn er ánægð með að
Grallararnir hafi ákveðið að heim-
sækja Reykjanesskagann á nýjan
leik en til er bók um ævintýri þeirra
í Sandgerði. Þessi saga standi henni
nærri enda býr hún og starfar í
Sandgerði. Þá er hún í fyrsta skipti
að teikna myndirnar í bókinni
sjálf. Að hennar sögn eru Grallar-
arnir alsælir eftir skemmtilegt og
fróðlegt ferðalag um svæðið og
áhugasamir um frekari ævintýri á
Reykjanesskaganum.
Eggert Sólberg Jónsson verkefna-
stjóri Reykjanes jarðvangs segir að
bókin ætti að höfða til fjölskyldu-
fólks en sérstaklega barna yngri en
10 ára. Jarðvangurinn sé sífellt að
leita leiða til að auka framboð af
fræðslu um svæðið og þetta er ein
leið til þess. Þá sé bókin vonandi
hvatning fyrir fjölskyldur að skoða
svæðið betur og jafnvel sjá það í
nýju ljósi.
Bókin kemur m.a. í verslanir Nettó
og Samkaupa í vikunni.
Eggert og Selma Hrönn afhenda Fanney D. Hall-
dórsdóttur skólastjóra í Grunnskólanum í Sand-
gerði fyrstu eintökin af nýrri bók um Grallarana.
■■ Njarðvíkurkirkja:
Ný hönnun á minningarreit um
drukknaða og horfna sjómenn