Víkurfréttir - 05.06.2014, Side 8
fimmtudagurinn 5. júní 2014 • VÍKURFRÉTTIR8
Glöð æska á Sjóaranum síkáta
Heimafólk og gestir klæddu sig eftir veðri
og nutu hátíðarinnar.
-mannlíf pósturu vf@vf.is
Hollustusafi sem jafnar hormónana
Við konur getum sennilega verið sammála um að okkur líður stundum eins og við séum í rús-
sibana þegar kemur að hormónakerfinu okkar þar sem við sveiflumst gjarnan á milli þess að vera
glaðar, leiðar, pirraðar, þreyttar, ofvirkar, viðkvæmar eða eins og eldfjall sem er við það að gjósa
á ákveðnum tíma mánaðarins! Við getum sem betur fer haft áhrif á hormónakerfið okkar
sjálfar með því að hugsa vel um okkur og því ætla ég að deila með ykkur svone ‘feel good’
safa sem er mjög vænn fyrir hormónana. Þessi safi inniheldur fullt af virkum efnum sem
örva og aðstoða lifrina í að hreinsa út notaða hormóna sem þjóna okkur ekki lengur og
einnig ýmis hormónaspillandi efni (xenoestrogens) sem líkja eftir hormónum og trufla
kerfið okkar. Rauðrófur er vel þekktar fyrir að hreinsa blóðið, örva lifrina og veita okkur
járn og önnur steinefni. Þær innihalda betaine sem er virkt efni sem eykur ákveðið ensím
í lifrinni og hefur þar með áhrif á niðurbrot á ‘slæmu’ estrógeni. Sellerí inniheldur jurta-
estrógena sem hafa sýnt fram á jákvæð stillandi áhrif á hormónakerfið en þau keppa við
okkar eigið estrógen. Sítrónur innihalda d-Limonene sem aðstoðar við estrogenniðurbrot
í lifrinni. Epli gefa okkur mikilvægar trefjar sem geta bundist umframestrógeni. Hörfræ
innihalda omega 3 og jurtaestrógena. Hollar fitusýrur eru mikilvægar fyrir eðlilega fram-
leiðslu hormóna. Túnfífilsblöð eða önnur beisk salatblöð örva lifrina mjög kröftuglega og
innihalda þar að auki glutathione, sem er ensím sem afeitrar lifrina. Turmerik og engifer
geta linað krampakennda verki í tengslum við tíðablæðingar en turmerik er einnig góð jurt fyrir
lifrina. ‘Happy wife, happy life’!
Innihald:
1 stór fersk rauðrófa
3 sellerístilkar
1 grænt epli
1/3 hnefi túnfífilsblöð
(hægt að nota klettasalat)
1-2 bitar fersk turmerik rót
1 bútur fersk engifer rót
1 msk möluð hörfræ (t.d. frá Now)
1 sítróna
1 lime
Setjið allt í djúsvél (nema hörfræ). Þegar safinn er tilbúinn hrærið möluðum hörfræjum út í. Gott
að bera fram með klökum. Njóta!
Heilsukveðja, Ásdís grasalæknir.
www.facebook.com/grasalaeknir.is, www.pinterest.com/grasalaeknir
HEILSUHORNIÐ
ÁSDÍS
GRASALÆKNIR
SKRIFAR
Sjóarinn síkáti fór fram síð-ustu daga í Grindavík og
má sannarlega segja að um fjöl-
skylduhátíð hafi verið að ræða.
Fjölskyldufólk var áberandi á
bryggjunni og þar í kring þegar
Víkurfréttir bar að garði í gær.
Þótt veðrið hafi sett töluvert
strik í reikninginn létu ungir sem
aldnir ekki votviðri og smávegis
hvassviðri koma í veg fyrir að
njóta glæsilegrar dagskrá sem
var í boði. Fjöldi leiktækja var
einnig á svæðinu og börnin
undu sér vel. Yngsta kynslóðin
söng og dansaði með Íþrótta-
álfinum og Sollu stirðu, fór
snúning í veltubílnum, skellti
sér á hestbak og hoppaði og
skoppaði í köstulum.