Víkurfréttir - 05.06.2014, Blaðsíða 14
fimmtudagurinn 5. júní 2014 • VÍKURFRÉTTIR14
Jón Axel bestur á NM
- Sigur hjá U16 liðinu
XXGrindvíkingurinn Jón Axel Guð-
mundsson var kjörinn besti leik-
maður Norðurlandamóts yngri
landsliða í körfubolta sem haldið var
í Solna í Svíþjóð. Jón Axel, sem leikur
með U18 liði Íslands, fór hamförum
á mótinu og skoraði að meðaltali 29
stig í leik. Einnig var Grindvíkingur-
inn valinn í úrvalslið mótsins en fleiri
Suðurnesjamenn urðu þess heiðurs
aðnjótandi. Þær Sara Rún Hinriks-
dóttir (U18) og Emelía Ósk Gunn-
arsdóttir (U16) frá Keflavík voru í
úrvalsliði kvenna á mótinu. Íslenska
U16 liðið fagnaði glæsilegum sigri
á mótinu en er þetta fyrsti Norður-
landameistaratitill Íslands í kvenna-
flokki síðan árið 2004.
-íþróttir pósturX eythor@vf.is
Keflvíski markvörðurinn Sindri Kristinn Ólafsson varð þess heiðurs aðnjótandi að fá að æfa með bestu knattspyrnumönnum landsins, þegar A-landslið karla í knattspyrnu var við æfingar í Garðinum um
helgina. Sindri sem er 17 ára leikmaður með 2. flokki Keflavík/Njarðvík fékk símtal frá Kristjáni Keflavíkur-
þjálfara kvöldið fyrir æfinguna en svo hafði Guðmundur Hreiðarsson markmannsþjálfari landsliðsins sam-
band í kjölfarið. „Þetta var hrikalega mikil upplifun og stórt tækifæri sem ekki allir fá,“ sagði Sindri glaður
í bragði þegar Víkurfréttir heyrðu í honum hljóðið. Sindri segir landsliðsstrákana hafa tekið honum opnum
örmum. „Þeir voru allir mjög almennilegir og gáfu sig allir á tal við mig. Hallgrímur Jónasson fyrrum Kefl-
víkingur var mér þarna innan handar og allir voru mjög fínir,“ segir markvörðurinn efnilegi sem hefur verið
á bekknum hjá Keflvíkingum í Pepsi-deildinni nokkrum sinnum á tímabilinu til þessa.
Gaman að vera í kringum þessa
bestu fótboltamenn Íslands
„Þetta voru aðeins betri leikmenn
en maður er vanur að fást við dags
daglega. Þeir eru hrikalega góðir,“
segir markvörðurinn ungi. Sindri er
hógvær og jarðbundinn en viður-
kennir þó að hafa kannski varið
einn og einn bolta frá mönnum
eins og Gylfa Sigurðssyni. Sindri
á að baki þrjá leiki fyrir 17 ára lið
Íslands en hann segir að umgjörðin
sé mun stærri og fagmannlegri.
„Það dreymir alla stráka og stelpur
um að spila fyrir A-landsliðið einn
daginn. Þetta er auðvitað bara ein
æfing af vonandi mörgum í fram-
tíðinni. Maður á ekkert að vera að
fara fram úr sér og halda að maður
sé orðinn bestur, það er langt því
frá. Það er fyrst og fremst gaman
að vera í kringum þessa bestu fót-
boltamenn Íslands enda mjög stórt
tækifæri.“
Sindri segir að Guðmundur
Hreiðarsson markmannsþjálfari
hafi verið afar hjálpsamur enda sé
hann hokinn af reynslu. „Þetta er
mjög hvetjandi fyrir mig og gefur
mér eitthvað til þess að byggja á.
Maður heldur áfram að einbeita
sér að Keflavík og gera vel þar.“
Það vantar ekki reynslumikla
markmenn í kringum Sindra, en
hinn sænski Jonas Sandqvist mark-
vörður Keflavíkurliðsins á m.a. að
baki landsleik fyrir Svíþjóð. „Það
er mjög stórt afrek og hann er dug-
legur að segja mér til,“ segir þessi
efnilegi markvörður að lokum.
Varði nokkra
bolta frá Gylfa
Sindri var á bekknum í leiknum gegn Fjölni á sunnudag.
- 17 ára Keflvíkingur æfði með
A-landsliðinu í Garðinum
Karen sló 12 ára gamalt met Erlu
XXKaren Mist Arngeirsdóttir sló
12 ára gamalt telpnamet Erlu
Daggar Haraldsdóttur í 50 metra
bringusundi. Karen synti á 34,64
sekúndum en gamla met Erlu var
34,68. Metið sló Karen á vormóti
ÍRB sem var liður í undirbúningi
ÍRB liða fyrir Aldurflokkamót
Íslands sem fram fer í Reykja-
nesbæ þann 12. júní n.k. Þar
munu 48 keppendur frá ÍRB
mæta til leiks en liðið hafði yfir-
burði á síðasta AMÍ.
Á dögunum fagnaði ÍRB svo sigri
á móti á Akranesi þar sem um
100 keppendur frá liðinu mættu
til leiks.
Áslaugarbikarinn afhentur í fyrsta sinn
XXLokahóf yngri flokka í körfu-
boltanum hjá Njarðvík fór fram
á dögunum þar sem veitt voru
verðlaun fyrir árangur vetrarins.
Magnús Már Traustason hlaut Elf-
arsbikarinn í ár en þetta er í fyrsta
sinn sem Elfarsbikar er einungis
afhentur karlamegin, en bikarinn
er jafnan gefinn efnilegasta leik-
manni innan raða UMFN. Nú er
svo komið að Áslaugarbikar er
gefinn kvennamegin en það var
Guðlaug Björt Júlíusdóttir sem
hlaut hann fyrst allra.
Áslaugarbikarinn er gefinn af fjöl-
skyldu Áslaugar Óladóttur sem lést
árið 2000 en Áslaug var leikmaður
í yngri flokkum félagsins og einnig
virk í starfi Unglingaráðs í sjopp-
unni í Ljónagryfjunni. Ungling-
aráð ákvað í samráði við Einar
Árna Jóhannsson yfirþjálfara að
veita báðum kynjum bikar fyrir
efnilegasta leikmann félagsins.
Jón Norðdal aðstoðar
Helga Jónas
Jón Norðdal Hafsteinsson, fyrrum leikmaður Keflavíkur
og landsliðsins í körfubolta, hefur
verið ráðinn aðstoðarþjálfari
meistaraflokks karla hjá Kefla-
vík í körfuboltanum til næstu
tveggja ára. Auk þess að aðstoða
Helga Jónas Guðfinnsson með
meistaraflokk karla mun Jón
þjálfa unglingaflokk karla.
Sævar Sævarsson og Jón
handsala samninginn.