Víkurfréttir - 30.10.2014, Blaðsíða 4
4 fimmtudagurinn 30. október 2014 • VÍKURFRÉTTIR
-fréttir pósturX vf@vf.is
72% sölustaða fylgja reglum um tóbakssölu
XXKönnun á því hvort sölustaðir á Suðurnesjum færu að lögum um
sölu á tóbaki til ungmenna var gerð föstudaginn 19. september. Könn-
unin var á vegum Samtaka félagsmiðstöðva á Suðurnesjum (SamSuð)
og fór fram í öllum sveitarfélögunum á svæðinu.
Í sjö af þeim tuttugu og fimm sölustöðum sem voru kannaðir var tóbak
selt of ungum unglingum. Það þýðir að um 72% sölustaða á Suðurnesjum
seldu ekki tóbak til ungmenna undir 18 ára aldri.
Könnunin fór þannig fram að 14 til 16 ára ungmenni fóru á sölustaði á
Suðurnesjum og freistuðu þess að fá keypt tóbak. Ef starfsmaður seldi
viðkomandi ungmenni tóbak fór aðili á vegum SamSuð í verslunina og
óskaði eftir því að fá tóbakið endurgreitt og vakti jafnframt athygli á að
lög um tóbaksvarnir hefðu verið brotin.
Framkvæmdin gekk vel og það er ánægjuefni hversu stór hluti sölustaða
seldi ekki tóbak til of ungra einstaklinga, segir í tilkynningu frá Sam-
tökum félagsmiðstöðva á Suðurnesjum. Þar segir að tilgangur og mark-
mið með könnuninni sé að vekja athygli á að 18 ára aldurstakmark er
til að kaupa tóbak á sölustöðum. Könnunin verður endurtekin fljótlega.
Vasaþjófur eða farand-
glæpamaður í Keflavík?
XXVegfarandi um Hafnargötu í
Keflavík varð fórnarlamb vasa-
þjófnaðar á föstudagskvöld. „Ég var
rændur bæði síma og kreditkortum
á Hafnargötunni í Keflavík. Honum
tókst að losa úrið af mér en náði
ekki að stela því. Alveg stórfurðu-
legur einstaklingur sem hagaði sér
einkennilega og var mjög ágengur!
Greinilega fagmaður!,“ segir í fés-
bókarfærslu þess sem varð fyrir
glæpnum.
Talsverð umræða skapaðist um
málið en þar kemur fram að meintur
vasaþjófur talaði ekki orð íslensku
né ensku. Var giskað á að hann væri
grikki, tyrki eða frá löndum þar í
kring. Í einni færslu var bent á að sá
sem hér væri á ferð gæti verið far-
andglæpamaður nýkominn til lands-
ins. Því sé brýnt að kæra þetta til lög-
reglu og gefa lýsingu á manninum.
Garðmenn funda
um stefnumótun
í atvinnumálum
XXSveitarfélagið Garður hefur
boðað til opins fundar nk. mánu-
dagskvöld um stefnumótun í at-
vinnumálum. Garður vinnur að
stefnumótun í atvinnumálum, þar
sem m.a. er áhersla á ferðaþjónustu.
Verkefnisstjórar eru Sigurður Þor-
steinsson og Jóhann Ísberg.
Mánudaginn 3. nóvember nk. verður
opinn fundur um verkefnið, þar
sem íbúum og atvinnurekendum í
Garði er boðið að koma og taka þátt í
verkefninu. Fundurinn verður í Mið-
garði í Gerðaskóla og hefst kl. 20:00.
Magnús Stefánsson, bæjarstjóri í
Garði, hvetur í tilkynningu til þess að
sem flestir mæti á fundinn, taki þátt
og leggi þannig sitt af mörkum.
Vill auglýsingaskjá
á húsgafl
XXEigendur Greniteigs 53 í Kefla-
vík hafa óskað eftir að setja upp
auglýsingaskjá á norðurhlið húss-
ins. Umhverfis- og skipulagsráðs
Reykjanesbæjar hefur tekið óskina
til afgreiðslu og vísað málinu til
umsagnar lögreglu og afgreiðslu
framkvæmdastjóra USK í samræmi
við skiltareglugerð.
Strætó ekki ekið um Iðavelli
XXAkstur upp á Iðavelli verður
ek k i s em v i ðb ót v i ð núver-
andi leiðarkerfi í almennings-
s a mg öng u m í R e y kj a n e s b æ .
Tillaga barst á íbúavef Reykjanes-
bæjar um að breyta leiðakerfi strætó
þannig að það liggi nær Danskomp-
aní sem er staðsett á Smiðjuvöllum 5.
Fleiri en 50 aðilar studdu tillöguna.
Breytingin hefur í för með sér mikinn
tilkostnað og rask á tímaáætlun. Ekki
verður farið í breytingar á leiðarkerf-
inu að svo stöddu, segir umhverf-
is- og skipulagsráð Reykjanesbæjar.
Ráðið mælir hins vegar með að tekið
verði tillit til tillögunnar við næstu
endurskoðun á leiðarkerfi almenn-
ingssamgangna. Á bæjarstjórnar-
fundi í Reykjanesbæ í síðustu viku
var tekið undir það.Framkvæmdastjóri Reykjanes-hafnar hefur lagt fram drög
að óskum Reykjaneshafnar til
hafnargerðar og sjóvarna í nýja
samgönguáætlun 2015 - 2018.
Stærstu verkefnin eru 100 m. við-
legukantur í Helguvík vestur af
núverandi 150 m. viðlegukanti
og 60 m. viðlegukantur í austur
sem munu þjóna væntanlegum
kísilverum. Einnig er lögð fram
ósk um nýjan 360 m. viðlegukant
fyrir gámaskip og súrálskip sem
mun þjóna álverinu og útflutningi
frá kísilverunum ofl. fyrirtækjum
í Helguvík og á Reykjanesi. At-
vinnu- og hafnaráð Reykjanesbæ
samþykkti á síðasta fundi sínum
tillögu framkvæmdastjóra um
óskir að ríkisframlagi í Sam-
gönguáætlun 2015 - 2018.
Nágrannavörslu hefur verið komið upp við Hraundal
í Reykjanesbæ. Íbúarnir hafa
bundist samtökum um að gæta að
eignum hvers annars og fylgjast
með híbýlum þegar nágrannar
eru að heiman. Nágrannavarsla er
nú við ellefu götur í Reykjanesbæ.
Reykjanesbær tók formlega upp
Nágrannavörslu árið 2008 en verk-
efnið er samstarfsverkefni um-
hverfissviðs Reykjanesbæjar og
forvarnadeildar lögreglunnar á
Suðurnesjum. Jóna Hrefna Berg-
steinsdóttir, starfsmaður um-
hverfs- og skipulagssviðs, afhenti
íbúum við Hraundal upplýsingar
um nágrannavörslu og límmiða til
að setja í rúður og á hurðir. Merki
verkefnisins var einnig komið fyrir
á staurum við Hraundal.
Íbúar og nágrannar í Reykjanesbæ
sem vilja taka upp formlega ná-
grannavörslu eru hvattir til að hafa
samband við Reykjanesbæ í síma
421 6700 eða á usk@reykjanesbaer.
is. Nauðsynlegt er að fá upplýsingar
um ferli og kynningu áður en gata
er útnefnd með nágrannavörslu.
Vantar 520 metra af við-
leguköntun í Helguvík
Íbúar við Hraundal taka
upp nágrannavörslu
Jóna Hrefna, starfsmaður Um-
hverfis- og skipulagssviðs, afhenti
íbúum við Hraundal upplýsingar
um nágrannavörslu.
Verið velkomin við opnun einkasýningar Finns Arnars
í sal Listasafns Reykjanesbæjar í Duushúsum
föstudaginn 31. október kl. 18.00.
Sýningin stendur til 21. desember. Safnið er opið virka
daga kl. 12.00 -17.00, helgar kl. 13.00 -17.00.
Ókeypis aðgangur.
Farandsýning frá Síldarminjasafninu á Siglufirði
Opnuð í Bíósal Duushúsa föstudaginn 31. október
kl. 18.00.
Árið 2012 var 100 ára sögu bræðsluiðnaðarins á Íslandi
minnst með sögusýningu í Síldarminjasafninu á Siglu-
firði. Um 80 bræðsluverksmiðjur stórar og smáar hafa
verið reknar hér á landi á 45 stöðum, meðal annars í
þessu bæjarfélagi.
Á sýningunni verða einnig myndir úr myndasafni
Byggðasafns Reykjanesbæjar og fleira,
sýningin stendur út árið.
Fræðslufundur miðvikudaginn 5. nóv. kl. 17:15.
Stutt kynning á sýningunni.
Sérstakur gestur Eiríkur Hermannsson sem segir frá
rannsóknum sínum á tímaritinu Þrótti sem UMFK gaf út
á árunum 1934-1935
Allir velkomnir
Við hvetjum bæjarbúa til að
taka þátt í landskeppninni
Allir lesa og framreiðum
margvíslegar bækur með
ýmsum hætti.
Skráning lesturs fer fram á
vefnum allirlesa.is.
Er nafnið þitt þar?
Kl. 14:00
Anna Lóa Ólafsdóttir, bæjarfulltrúi, kemur og segir
okkur frá lífshlaupi sínu, Hamingjuhorninu og af hverju
hún fór í pólitík.
Anna Lóa er náms- og starfsráðgjafi og var að klára
framhaldsnám í sálgæslu.
Allir hjartanlega velkomnir
LISTASAFN REYKJANESBÆJAR
FERÐ
BÍÓSALUR
NÝ SÝNING
BÓKASAFN REYKJANESBÆJAR
ALLIR LESA
NESVELLIR
LÉTTUR FÖSTUDAGUR