Víkurfréttir - 30.10.2014, Side 18
18 fimmtudagurinn 30. október 2014 • VÍKURFRÉTTIR
-íþróttir pósturX eythor@vf.is
Njarðvíkingurinn Elvar Már Friðriksson hefur komið sér nokkuð vel fyrir í Brooklyn hverfi New
York borgar í Bandaríkjunum. Þar mun hann stunda
nám og leika körfubolta næstu fjögur árin við LIU
Brooklyn háskólann. „Það er mikil breyting að koma
úr svona rólegu umhverfi í brjálaða umferð. Það að búa
í miðju Brooklyn hverfi með lestarkerfið fyrir neðan
húsið svo það er ekki beint rólegt. En það er mjög gaman
að koma í annað umhverfi og fá að upplifa aðra menn-
ingu,“ segir bakvörðurinn hæfileikaríki.
Óvinir á vellinum en perluvinur utan vallar
Nú stendur yfir undirbúningstímabil og Elvar æfir af kappi
ásamt liðsfélögum sínum. Meðal þeirra er Martin Her-
mannsson sem lék áður með KR. Þeir voru án efa tveir af
bestu íslensku leikmönnum Domino’s deildarinnar í fyrra.
Þeir hafa oft leikið gegn hvor öðrum í gegnum tíðina og
háð margar rimmur. „Við vorum alltaf mestu óvinir inni á
vellinum og það var alltaf hörð barátta á milli okkar svo það
er gaman að fá að spila með honum núna,“ segir Elvar en
þeim hefur alltaf verið vel til vina og hafa þekkst frá því að
þeir voru kornabörn. Feður þeirra, Friðrik Ragnarsson og
Hermann Hauksson, spiluðu saman bæði hjá bæði KR
og Njarðvík og eru góðir vinir.
„Við erum búnir að vera á löngum varnaræfingum án
bolta sem gátu verið mjög lengi að líða, það var mikið
um spretti á þeim æfingum. En fyrir skömmu byrjuðu
allar æfingar með bolta. Þar höfum við verið að fara í
gegnum allt kerfið sem við ætlum að spila í vetur.“ Elvar
segir undirbúningstímabilið nokkuð langt en fyrsti leikur
er þann 19. nóvember. Þá leikur liðið gegn hinum sterka
St. John’s háskóla. „Undirbúningstímabilið er búið að vera
miklu lengra en maður er vanur. Fyrsta mánuðinn vorum
við bara að lyfta og hlaupa hjá styrktarþjálfara og fórum á
nokkrar einstaklingsæfingar með þjálfurum. Við máttum
ekkert æfa saman sem lið samkvæmt NCAA reglum svo
liðsæfingarnar byrjuðu fyrir skömmu og nú er allur undir-
búningur kominn á fullt fyrir fyrsta leik.“
Elvar segir að boltinn í Brooklyn sé afar hraður og mikið
um hlaup. Það hentar Elvari einkar vel að hans sögn. Hann
segir mikla áherslu vera lagða á varnarleik. Elvar segir að
skólinn byrji rólega en hann sinni náminu samviskusam-
lega. Þeir Elvar og Martin leigja íbúð ásamt þremur öðrum
strákum í fimm mínútna fjarlægð frá skólanum, þar eru
þeir að koma sér hægt og rólega fyrir.
FRÁ NJARÐLEM
TIL BROOKLYN
Njarðvíkingnum Elvari Má líkar lífið í Stóra eplinu. Hóf nám í LIU Brooklyn háskólanum í haust.
Aldís og Sylvía
íþróttamenn Brimfaxa
XX Íþróttamaður Brimfaxa var
valinn í fyrsta sinn í ár og voru
verðlaunin afhent á aðalfundi
félagsins þann 22. október. Í
þetta sinn voru tvær stúlkur úr
unglingaflokki valdar, þær Al-
dís Gestsdóttir og Sylvía Sól
Magnúsdóttir. Þær hafa keppt á
allnokkrum opnum mótum fyrir
Brimfaxa á árinu í fjórgangi og
tölti.
Suðurnesjafólk sigursælt
XXTaekwondosamband Íslands
hélt barnamót í taekwondo um
liðna helgi. Keflavíkurdeildin
vann til flestra verðlauna á mót-
inu, 13 gull, 13 silfur og 7 brons,
féllu Keflvíkingum í skaut.
Grindvíkingar náðu einnig mjög
góðum árangri, unnu 3 gull, 2
silfur og 6 brons.
Reynismenn innsigluðu
sigurinn á vítalínunni
XXReynismenn unnu 75-70 sigur
á KV í 2. deild karla í körfubolta.
Leikurinn var í járnum allan tím-
ann og var munurinn aldrei mik-
ill. Reynismenn höfðu forskot í
hálfleik, 39-34, en Sandgerðingar
náðu mest 12 stiga forystu um
miðjan þriðja leikhluta. Gest-
irnir náðu hins vegar að vinna
það forskot niður og var staðan
67-66, Reyni í vil, þegar rúm-
lega tvær mínútur voru eftir. Það
voru svo þeir Rúnar Ágúst Páls-
son og Elvar Sigurjónsson sem
innsigluðu sigurinn á vítalínuni
undir lokin. Rúnar skoraði 20
stig í leiknum og Alfreð Elíasson
skoraði 12 fyrir Sandgerðinga.
Máni líklega á leið
til Keflavíkur
XXKnattspyrnuþjálfarinn, Máni
Pétursson, mun að öllum lík-
indum bætast í þjálfarateymi
Keflavíkur á næstu dögum.
Þorsteinn Magnússon, fram-
kvæmdarstjóri knattspyrnu-
deildar Keflavíkur, sagði í sam-
tali við Víkurfréttir að Máni
myndi þá verða annar aðstoðar-
þjálfari liðsins, en fyrir er Gunn-
ar Magnús Jónsson.
Hjörtur og Hafsteinn
taka við Reyni
XXKnattspyrnudeild Reynis
Sandgerði samdi við þá Hjört
Fjeldsted og Hafstein Rúnar
Helgason, um að þjálfa meistara-
flokk karla hjá Reyni næstu þrjú
árin. Hjörtur er 34 ára keflvík-
ingur sem verið hefur viðloðandi
knattspyrnuna í Sandgerði frá
árinu 2004, ýmist sem leikmaður
eða þjálfari. Hann á að baki 144
leiki með Reynir. Hafsteinn er 29
ára Sandgerðingur sem lék síðast
með Reyni árið 2007. Hafsteinn á
að baki 101 leik með Reyni. Haf-
steinn mun ennfremur leika með
liðinu.
Hólmar í
heimahagana
Grindvíkingurinn skotvissi, Páll Axel Vilbergsson, skor-
aði í vikunni sína þúsundustu
þriggja stiga körfu í efstu deild
í körfubolta karla, fyrstur allra.
„Ég get ekki sagt að ein karfa
sé eftirminnilegri en önnur. Ég
man þó eftir leik þar sem ég var
ungur maður og skoraði úr 12 af
15 þriggja stiga skotum mínum,“
rifjar Paxel upp.
Umræddur leikur átti sér stað
í janúar árið 1999 gegn Vals-
mönnum. Þessi frammistaða upp
á 80% nýtingu dugði til þess að slá
met yfir flestar þriggja stiga körfur
Íslendings í leik. Þess má geta að
Keflvíkingurinn Damon Johnson
skoraði úr 14 af 17 þriggja stiga
skotum sínum daginn eftir í leik
gegn KFÍ.
Fyrstu þriggja stiga körfu sína í
efstu deild skoraði Páll Axel með
Grindvíkingum árið 1995, eða
fyrir tæpum 19 árum. Páll hefur
skorað 1002 þriggja stiga körfur
í 476 leikjum, sem gerir rúmlega
tvo þrista í leik.
ÞÚSUND ÞRISTAR
Á FÆRIBANDINU
-frammistaða vikunnar
Miðjumaðurinn Hólmar Örn Rúnarsson hefur gengið frá
samningum við Keflavík og mun
leika með liðinu næstu tvö árin
í Pepsi-deildinni. Hólmar er al-
inn upp hjá Keflavík og á að baki
rúmlega 180 leiki með félaginu í
meistaraflokki. Hann hefur hins
vegar undanfarin fjögur tíma-
bil leikið með FH. „Ég er mjög
ánægður með það að vera kom-
inn aftur til Keflavíkur. Það er
vonandi að maður geti aðstoðað
við að fara ofan og berjast um
Evrópusæti,“ sagði Hólmar.
Þegar hann yfirgaf æskufélagið á
sínum tíma var hann orðinn leiður
og óttaðist að smita út frá sér nei-
kvæðum straumum. „Við vorum
sífellt í því að byggja upp nýtt lið,
en ég hafði eytt nokkrum árum í
það. Ég var bara á þeim aldri að
ég þurfti að komast í lið sem gæti
unnið titill, sem svo gerðist. Ég var
jafnvel orðinn dragbítur og nei-
kvæður leiðtogi hjá Keflavík. Ég
hefði frekar gefið frá mér neikvæða
orku eftir því sem ég var að fjar-
lægjast mín markmið. Ef við tölum
bara hreint út þá var kominn leiði
í mig hjá Keflavík áður en ég fór
til FH og nauðsynlegt fyrir mig að
komst í nýtt umhverfi, en það var
eitthvað sem ég hélt að myndi aldr-
ei gerast.“