Víkurfréttir - 23.07.2015, Blaðsíða 4
4 fimmtudagur 23. júlí 2015 • VÍKURFRÉTTIR
-fréttir pósturu dagny@vf.is
15
-1
61
4
- H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
SÍ
A
Byrjaðu fríið fyrr og njóttu lífsins #wheninKEF
Besti flugvöllur í Evrópu
Ferðalög eru uppbrot og ævintýri – tími til
að njóta þess sem lífið býður upp á. KEF er
upphafsreiturinn, staður til að láta ýmislegt
eftir sér.
Gefðu þér tíma
til að njóta
#wheninKEF
Ferðin hefst í
flugstöðinni
#wheninKEF
Hágæðavörur á
frábæru verði
#wheninKEF
Mundu að deila
upplifuninni
#wheninKEF
Nú er meira pláss, betri aðstaða, fjölbreyttari veitingar og meira
vöruframboð á Keflavíkurflugvelli.
Eggert hafði áður kynnst hug-myndafræði Geopark þegar
hann starfaði sem forstöðumaður
Kötluseturs í Vík í Mýrdal en
hann býr nú í Grindavík ásamt
eiginkonu sinni Þuríði (Lollu)
Gísladóttur og tveimur börnum
þeirra.
Reykjanes Geopark verkefnið
hefur nú skilað skýrslu til Global
Geoparks Network en hún er svar
við erindi matsnefndar UNESCO
sem tók svæðið út í kjölfar um-
sóknarinnar. Þurfti að þeirra mati
að vinna í nokkrum þáttum og
svarar skýrslan því þ.e. útlistar
hvað hafi verið gert og hvað áætlað
sé að vinna á næsta ári. Faghópur
mun taka skýrsluna til umsagnar
og endanleg ákvörðun verður tekin
á haustfundi samtakanna í septem-
ber.
Eggert er bjartsýnn og segist vona
það besta.
„Mér finnst við hafa gert mjög
margt á þeim stutta tíma frá því að
verkefnið hófst. Við erum í raun
mjög ungur jarðvangur og höfðum
starfað í stuttan tíma þegar við
sóttum um. Sem dæmi má nefna
að danskur jarðvangur sem sótti
um að komast inn í fyrra hafði
verið starfræktir í 10 ár. En hvernig
sem fer þá mun öll sú vinna sem
ráðist hefur verið í nýtast svæðinu
og íbúunum hér.”
En hvað er Geopark?
„Geopark er svæði sem er einstakt
á heimsvísu og hefur að geyma
einstakar jarðminjar og merkilega
menningarsögu. Reykjanesið hefur
allt til að bera til þess að hljóta
þessa vottun en matsaðilar sögðu
okkar sérstöðu liggja í því að við
búum á eldfjallaskaga og hér er
jarðhiti sem við höfum verið að
nýta okkur. Hér eru fornar göngu-
leiðir í hrauninu og fjölbreyttar
gerðir eldstöðva en allt þetta er
tilkomið vegna flekaskilanna og
Atlantshafshryggjarins sem gengur
hér á land. Þetta er sérstaða sem
við þurfum að draga frekar fram í
okkar markaðssetningu.”
Í dag eru starfandi yfir 100 jarð-
vangar í heiminum, hverju mun
vottunin skila okkur?
„Vottunin er mikil viðurkenning
fyrir þá sem starfa á svæðinu í dag
og skapar tækifæri til vöruþróunar
og nýsköpunar sem byggir á sér-
stöðu svæðisins. En þetta styrkir
líka stöðu svæðisins í markaðs-
legu tilliti og á vonandi eftir að efla
þekkingu íbúa á svæðinu um sögu
og sérstöðu þess. Fyrst og fremst
er þetta fyrir rekstraraðila á svæð-
inu, sem geta nýtt sér Reykjanes
Geopark til framdráttar, með því að
kenna sig við það.”
Eggert tekur fram að Reykjanes
Geopark fjalli ekki bara um jarð-
fræði.
„Sérstaða okkar liggur líka í menn-
ingunni og því hvernig samfélagið
á Suðurnesjum hefur þróast í
gegnum aldirnar. Þar má nefna
matarmenningu en þar liggja tæki-
færi fyrir veitingaaðila en rann-
sóknir hafa sýnt að með því að setja
logo Geopark á vörurnar má auka
eftirspurn og sölu.
Mikilvægt samstarf
Reykjanes Geopark er samstarfs-
verkefni sveitarfélaganna á svæð-
inu en samstarfsaðilar eru jafn-
framt Keilir, Þekkingarsetur Suður-
nesja, Bláa lónið, Ferðamálasamtök
Reykjaness, HS orka og Heklan, at-
vinnuþróunarfélag Suðurnesja. Að
sögn Eggerts er mikilvægt að með
samstarfinu hafa sveitarfélögin
komið sér saman um ákveðna
forgangsröðun og uppbyggingu á
svæðinu.
„Markmiðið er að byggja upp
þetta svæði og leggja í sameigin-
legan sjóð og okkur hefur gengið
vel að sækja mótframlög. Á síðsta
ári fengum við 5 milljónir frá sam-
starfsaðilum en mótframlög úr
öðrum sjóðum upp á 8 og hálfa
milljón.
Nú er verið að vinna deiliskipulag
á Reykjanesi og þegar uppbygg-
ingu er lokið þar erum við komin
með ferðamannaveg sem tengir
saman svæðið. Þar má nefna marga
áhugaverða staði eins og Hafnar-
berg, Brú milli heimsálfa og Vala-
hnúk. Svo gætir þú haldið áfram og
tekið Ósabotnaveginn og farið út í
Garð, þá ertu kominn með stærri
leið eða lengri.”
Eggert leggur áherslu á að það taki
tíma að skipuleggja svæði og ná
samningum við landeigendur en á
sama tíma hafi verið lögð áhersla á
innri markaðssetningu og fræðslu
um svæðið sem sé ekki síður mikil-
vægt.
„Það sem mér finnst ganga vel er
áherslan á að koma því á fram-
færi hvað Reykjanesið er merki-
legt svæði, við verðum jú að byrja
á sjálfum okkur. Við gáfum út
grallarabókina fyrir elstu börn leik-
skóla og ynstu börn grunnskóla
og munum halda áfram að þróa
námsefni í samstarfi við kennara.
Ný gestastofa í Duushúsum leikur
stórt hlutverk í fræðslunni og hug-
myndin er að byggja upp net þeirra
í þéttbýlisstöðum á svæðinu sem
hugsanlega verða sérhæfðari og
erum við komin með fjármagn í
aðra gestastofu. Allt miðar þetta að
því að koma fræðslu á framfæri, þú
gengur betur um landið ef þú veist
hversu verðmætt og fallegt það er
- ef þú þekkir til svæðisins. Það er
líka mikilvægt að það komi fram
að Reykjanes Geopark er ekki bara
fyrir ferðamenn, það er ekki síður
fyrir íbúa á svæðinu en markmiðið
er að auðvelda þeim aðgengin að
náttúruperlum í nágrenninu.
Með skilgreindum ferðamanna-
vegi á Reykjanesi skapast tækifæri
fyrir þjónustuaðila sem vilja nýta
sér þann mikla fjölda sem fer um
svæðið en gamlar tölur segja gesti
vera 200.000 árlega. með bættri að-
stöðu mætti fjölga þeim að sögn
Eggerts en í deiliskipulagi á Reykja-
nesi er gert ráð fyrir þjónustuhúsi.
„Jarðvangurinn er í raun bara þró-
unarverkefni og markmið hans er
að byggja upp áfangastaði eða án-
ingastaði. Það er hins vegar ekki
verkefni jarðvangsins að reisa eða
reka veitingstað eða kaffihús. Það
er okkar hlutverk að koma á fram-
færi sérstöðu svæðisins til þess að
aðrir geti nýtt sér það til verðmæta-
sköpunar. það er von okkar að
menn nýti sér það tækifæri.”
Skilgreindir hafa verið 55 áhuga-
verðir staðir í sveitarfélögum á
Reykjanesi sem þykja merkilegir
jarðfræðilega og menningarlega.
Ætlunin er að sögn Eggerts að gera
þessa staði aðgengilegri m.a. með
fræðsluskiltum en það verður gert
í samráði við viðkomandi sveitar-
félög og landeigendur til lengri
tíma.
„Reykjanes Geopark á bara eftir
að verða meira áberandi á næstu
árum og þegar ég lít til baka hefur
heilmikið gerst á þessum tveimur
árum þrátt fyrir að okkar fjármagn
sé mun minna en það sem aðrir
jarðvangar úti í heimi hafa.
Nú er verið að vinna deiliskipulag
fyrir Reykjanes og Brimketil. Þá
er unnið að uppsetningu á þriðja
tug fræðsluskilta. Markmiðið er
ekki bara að fjölga ferðamönnum
heldur líka að fá þá sem þegar
sækja svæðið til að dvelja þar
lengur. Eins má búast við því að
samsetning þeirra sem heimsækja
svæðið breytist sem og eðli heim-
sóknanna.
Þó svo við fáum ekki aðild að sam-
tökunum í ár þá nýtist sú mikla
vinna sem farið hefur í verkefnið
íbúum á Suðurnesjum og gestum
þeirra, s.s. uppbygging áningar-
staða, upplýsingamiðstöð fyrir
ferðamenn, fræðsluefni, áætlanir
og stefnumótun, en ekki síst aukið
samstarf ólíkra aðila”
Reykjanes jarðvangur sækir um inngöngu í Global Geoparks Network:
Margt áunnist á stuttum tíma
-Segir Eggert Sólberg Jónsson verkefnastjóri
Eggert Sólberg Jónsson er verkefnastjóri Reykjanes Geopark verkefnisins sem hófst árið 2012 með skipan stjórnar og ráðningu
verkefnastjóra en markmiðið er að hljóta alþjóðlega vottun Global Geoparks Networks en það eru samtök sem eru studd og vernduð af UNESCO.
Jarðvang-
urinn er í
raun bara þró-
unarverkefni og
markmið hans
er að byggja upp
áfangastaði eða
áningastaði