Víkurfréttir - 24.09.2015, Blaðsíða 1
vf.is
Víkurfréttir
Krossmóa 4a, 4. hæð,
260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000
Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin
virka daga kl. 09-17
Auglýsingasíminn
er 421 0001
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2015 • 37. TÖLUBLAÐ • 36. ÁRGANGUR
Meðal efnis í
þætti vikunnar:
PÓSTKORTUM
RIGNIR YFIR
MYLLUNEMA
Í KVÖLD
Sjónvarp Víkurfrétta
FIMMTUDAGSKVÖLD KL. 21:30 Á ÍNN
Íbúðalánasjóður á um 90 fasteignir íSandgerði sem eru flokkaðar sem íbúðir.
Þetta eru ríflega 16% af öllum íbúðum í
bæjarfélaginu. Fimmtíu íbúðir, eða rúmur
helmingur þessara eigna Íbúðalánasjóðs
standa auðar og yfirgefnar á sama tíma
og íbúum í Sandgerði. Þetta þýðir að ein
af hverjum ellefu íbúðum í Sandgerði er
tóm. Atvinnulífið í Sandgerði blómstarar
og samkvæmt öllu ætti bæjarbúum að
vera að fjölga. Ólafur Þór Ólafsson, forseti
bæjarstjórnar Sandgerðis, segir hins vegar
að skortur á íbúðarhúsnæði valdi því að
bæjarbúum fækki.
Starfshópur skipaður fulltrúum Sandgerðis-
bæjar og Íbúðalánasjóðs hefur verið að skoða
stöðu eigna sjóðsins í Sandgerði með það að
markmiði að leggja fram tillögur um það
hvernig megi bæta ástandið. Þessi vinna
hefur leitt í ljós að stór hluti af þessum fast-
eignum Íbúðalánasjóðs sem standa auðar í
bæjarfélaginu eru farnar að súrna. Hvað er
átt við því að þær séu að súrna? Eignirnar
eru verðlagðar of hátt og ástand eignanna er
þannig að of dýrt er að koma þeim aftur á
markað, hvort sem er í sölu eða leigu. Íbúð-
irnar eru sem sagt verðlagaðar þannig að þær
seljast ekki og þegar kostnaður við viðhald
bætist við yrði dæmið kaupandanum ofviða.
Þá þurfa eignirnar mikið viðhald og Íbú-
ðalánasjóður hafi sett sér viðmiðunarupp-
hæð í standsetningu húsnæðis fyrir leigu.
Sé kostnaðurinn meiri en viðmið haldi Íbú-
ðalánasjóður að sér höndum og eignin standi
áfram auð og haldi áfram að súrna.
Illa farnar eignir
„Stór hluti eigna Íbúðalánasjóðs hér í Sand-
gerði eru það illa farnar að þær falla í þennan
flokk þannig að Íbúðalánasjóður vill ekkert
gera. Þetta eru þessar súru eignir og það
sem verra er að þær súrna með hverju árinu
sem líður. Ástandið í þeim lagast ekkert og
það er ekkert verið að gera fyrir þær. Þær
verða sífellt þyngri og sitja í eignasafni Íbú-
ðalánasjóðs sem losnar ekki við þær. Á sama
tíma eru þessar eignir samfélagsmein hér hjá
okkur í Sandgerði. Þetta eru oft eldri hús og
við gömlu aðalgöturnar okkar, Suðurgötu og
Brekkustíg. Þetta hefur bæði áhrif á bæjar-
myndina og bæjarsálina,“ segir Ólafur Þór.
Nánar er fjallað um málið í viðtali við Ólaf
Þór í blaðinu í dag.
Skortur á íbúðum í bæ fullum af tómu húsnæði
- ein af hverjum ellefu íbúðum í Sandgerði yfirgefin. „Þetta hefur bæði áhrif á bæjarmyndina og bæjarsálina.“
Við Brekkustíg í Sandgerði standa margar
yfirgefnar eignir í eigu Íbúðalánasjóðs.
VF-mynd: Hilmar Bragi
Það að vera tvíburi er nokkuð merkilegt og hvað þá þríburi. Í Fjölbrautaskóla Suðurnesja hefur aldrei áður sést annar eins fjöldi tvíbura og þríbura. Þar eru í dag tuttugu og eitt par af tvíburum og
tvö pör af þríburum. Þetta mun vera óstaðfest met í íslenskum framhaldsskóla því samkvæmt lauslegri könnun í stærstu framhaldsskólum landsins, þá komast þeir ekki með tærnar þar sem Fjöl-
brautaskóli Suðurnesja hafði hælana. Hópurinn var kallaður saman í myndatöku á dögunum en þegar ná þarf 46 einstaklingum saman á mynd, þá vandast málið. Hér að ofan má sjá þá tvíbura og
þríbura sem mættu í myndatökuna.
FJÖLBURAFJÖLDI Í FJÖLBRAUT