Víkurfréttir - 24.09.2015, Side 8
8 fimmtudagur 24. september 2015 • VÍKURFRÉTTIR
Í Sandgerði eru um 550 fast-eignir sem eru flokkaðar sem
íbúðir. Af þessum eignum eru um
90 í eigu Íbúðalánasjóðs og hafa
komist í eigu sjóðsins eftir Hrun.
Það er hins vegar sorglegra að á
uppgangstímum á Suðurnesjum
þá standa um 50 af þessum 90
eignum í Sandgerði auðar og yfir-
gefnar. Uppbygging er í atvinnu-
lífinu í Sandgerði og íbúum ætti
að vera að fjölga. Þeim hefur hins
vegar fækkað, því skortur er á
húsnæði á sama tíma og þessar 50
fasteignir standa auðar.
Starfshópur skipaður fulltrúum
Sandgerðisbæjar og Íbúðalána-
sjóðs hefur verið að skoða stöðu
eigna sjóðsins í Sandgerði með það
að markmiði að leggja fram til-
lögur um það hvernig megi bæta
ástandið. Þessi vinna hefur leitt í
ljós að stór hluti af þessum fast-
eignum Íbúðalánasjóðs sem standa
auðar í bæjarfélaginu eru farnar
að súrna. Hvað er átt við því að
þær séu að súrna? Jú, eignirnar
eru verðlagðar of hátt, og ástand
eignanna er þannig að of dýrt er að
koma þeim aftur á markað, hvort
sem er í sölu eða leigu. Íbúðirnar
eru sem sagt verðlagaðar þannig að
þær seljast ekki og þegar kostnaður
við viðhald bætist við yrði dæmið
kaupandanum ofviða.
Áberandi að margir
misstu eignir sínar
Ólafur Þór Ólafsson, forseti bæjar-
stjórnar Sandgerðis, segist í við-
tali við Víkurfréttir hafa áhyggjur
af stöðu íbúðamarkaðar í sveitar-
félaginu Sandgerði. „Síðustu ár
hafa verið mörgum erfið fjárhags-
lega hér í Sandgerði og því miður
hafa margir misst eignir sínar sem
margar hverjar standa nú tómar.
Það sem við gerðum er að við
sendum erindi til ráðherra og til
Íbúðalánasjóðs og áttum samtal
við þessa aðila í fyrra. Úr því sam-
tali varð til vinnuhópur fulltrúa frá
bænum og Íbúðalánasjóði til að
fara yfir þessar eignir til að finna
lausnir á þessum vanda. Sú vinna
hefur verið í gangi í nokkurn tíma
en gengur alltof hægt. Þetta er allt
ofboðslega þungt og erfitt að ýta
málum áfram,“ segir Ólafur Þór.
Eignirnar sem nú súrna í eigna-
safni Íbúðalánasjóðs í Sandgerði
eiga það sameiginlegt að vera verð-
lagðar of hátt, þær þurfi mikið við-
hald og Íbúðalánasjóður hafi sett
sér viðmiðunarupphæð í stand-
setningu húsnæðis fyrir leigu.
Sé kostnaðurinn meiri en við-
mið haldi Íbúðalánasjóður að sér
höndum og eignin standi áfram
auð og haldi áfram að súrna.
Enginn vilji svo kaupa eignina því
hún sé hátt verðlögð og Íbúðalána-
sjóður sé tregur til að veita afslætti“.
Illa farnar eignir
„Stór hluti þessara eigna hér í
Sandgerði eru það illa farnar að
þær falla í þennan flokk þannig að
Íbúðalánasjóður vill ekkert gera.
Þetta eru þessar súru eignir og það
sem verra er að þær súrna með
hverju árinu sem líður. Ástandið í
þeim lagast ekkert og það er ekkert
verið að gera fyrir þær. Þær verða
sífellt þyngri og sitja í eignasafni
Íbúðalánasjóðs sem losnar ekki
við þær. Á sama tíma eru þessar
eignir samfélagsmein hér hjá okkur
í Sandgerði. Þetta eru oft eldri hús
og við gömlu aðalgöturnar okkar,
Suðurgötu og Brekkustíg. Þetta
hefur bæði áhrif á bæjarmyndina
og bæjarsálina,“ segir Ólafur Þór.
90 eignir Íbúðalánasjóðs
í Sandgerði
Íbúðalánasjóður á um 90 fasteignir
í Sandgerði eins og áður segir og er
um helmingur þeirra auðar og yfir-
gefnar íbúðir. Nú hefur farið fram
greining á þessu húsnæði og segist
Ólafur Þór vonast til að nú komi
fram tillögur um hvað gert verði.
Töluverður hluti þeirra eigna sem
standa auðar flokkast sem súrar
eignir. „Eitthvað af þessum eignum
eru ónýtar. Við vitum að eitthvað
af þessum húsum eru orðin það
léleg að þau verða aldrei mannabú-
staðir aftur. Þá þarf bara líka að
taka ákvörðun um það að þau hús
verði ekki gerð upp. Íbúðalána-
sjóður þarf hins vegar að taka
þá ákvörðun, það sé ekki á valdi
sveitarfélagins“.
Eitthvað af húsunum eru sem sagt
ónýt og önnur eru þannig að það
þarf að setja aukið fjármagn í að
gera við þau til þess að koma þeim í
not, hvort sem það sé leiga eða sala.
„Íbúðalánasjóður hefur ekki hag
af því að eiga þessar eignir. Hann
þarf að losna við þær. Fasteigna-
markaðurinn hér í Sandgerði, er
eins og annarsstaðar, að lifna við.
Ef það tekst að gera við þessar
eignir þá myndu þær líklegast selj-
ast strax eða verða leigðar út.
Það þarf bæði kjark og fjármagn til
að leysa þessi mál. Íbúðalánasjóður
þarf að hafa kjark til að taka þessa
ákvörðun, því lengur sem beðið er,
þá vesnar ástandið. Það þarf líka
fjármagn, sem þá líklega kemur úr
ríksissjóði, til að fara í þetta verk-
efni,“ segir Ólafur Þór og bætir við:
„Þetta eru ekki bara súrar eignir,
þetta er líka súrt ástand því að á
sama tíma og við sitjum uppi með
þessar tómu eignir hér í Sandgerði
þá finnum við fyrir töluvert mikilli
eftirspurn frá fólki sem vill koma
og búa í sveitarfélaginu“.
Önnur hlið á vandanum er að það
er orðin eftirspurn eftir smærri og
meðalstórum eignum. Þá er einnig
orðin meiri eftirspurn eftir því að
leigja en að kaupa.
Sárt að geta ekki hjálpað fólki
„Sem forsvarsmaður sveitarfélags
er það sárt og vont að horfa uppá
fjölskyldufólk og fólk sem á ekki
þak yfir höfuðið, vitandi um tómu
eignirnar, að sveitarfélagið geti ekki
hjálpað þessu fólki,“segir Ólafur
Þór.
Þegar allar forsendur segja að
íbúum ætti að vera að fjölga, þá er
íbúum Sandgerðis að fækka, segir
Ólafur Þór. Það er uppbygging í at-
vinnulífi Sandgerðis og hefur verið
aukning í atvinnu á öllu svæðinu
en útaf þessari stöðu á fasteigna-
markaði þá er að fækka íbúum.
„Það eru færri börn í skólanum og
við nýtum leikskólann ekki eins vel.
Við viljum fjölga íbúum, því þann-
ig er auðveldara að standa undir
rekstri sveitarfélags og mannlífið
verður blómlegra“.
Ólafur Þór segir rétt að taka það
fram að þeir sem vinna þessa vinnu
með sveitarfélaginu hjá Íbúðalána-
sjóði eru allir af vilja gerðir. „Vand-
inn liggur ekki hjá þeim, heldur
þarf að taka pólitískar ákvarðanir.
Íbúðalánasjóður er bundinn af
samþykktum sínum. Það þarf að
taka ákvarðanir sem gefa Íbúðal-
ánasjóði svigrúm til að gera það
sem þarf að gera“.
Skila af sér tillögum
á næstu vikum
Vinnuhópur sveitarfélagsins og
Íbúðalánasjóðs mun skila af sér til-
lögum á næstu vikum. „Vonandi
fara þær til stjórnar sjóðsins sem
mun þá vinna þær áfram. Til-
lögurnar verði þá verkfæri til að
vinna hlutina áfram,“ segir Ólafur
Þór Ólafsson, forseti bæjarstjórnar
Sandgerði í samtali við Víkurfréttir.
Um fimmtíu auðar og yfirgefnar fasteignir Íbúðalánasjóðs í Sandgerði:
Súrar eignir eru samfélagsmein
-viðtal pósturu hilmar@vf.is
Ólafur Þór Ólafsson,
forseti bæjarstjórnar Sandgerðis.
Þessar eignir standa
við Brekkustíg í Sand-
gerði og súrna í eigna-
safni Íbúðalánasjóðs.