Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.09.2015, Side 9

Víkurfréttir - 24.09.2015, Side 9
9VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 24. september 2015 Leikskólinn Háaleiti á Ásbrú hélt upp á sjö ára afmæli sitt á dögunum. Ýmislegt var gert í tilefni afmælisins og þá fékk leik- skólinn afhentan Grænfánann. Börnin á leikskólanum byrjuðu daginn á árlegu Háaleitishlaupi. Eftir hlaupið fengu öll börnin viðurkenningarverðlaunapening sem var afhentur við hátíðlega at- höfn inn í sal fyrir hádegi. Verð- launapeningana höfðu börnin á Djúpa- og Kotvogi gert nokkrum dögum áður í listasmiðjunni. Góðir gestir mættu í afmæli leik- skólans, foreldrar, fyrrum nem- endur, starfsfólk fræðsluskrifstof- unnar, starfsfólk og eigandi Skóla ehf., skólastjórar í Reykjanesbæ og síðast en ekki síst Kjartan Már bæjarstjóri og hljólbörubandið. Bandið lék fyrir fyrir gesti nokkur vel valin lög. Þá var tekið formlega á móti Grænfánanum. „Það er óhætt að segja að það hafi verið mikil gleði meðal starfsfólks og barnanna að hafa náð þessum áfanga en honum náðum við með því að gera umhverfisvernd að föstum þætti í skólastarfinu. Á umhverfisfundi með börnunum í vor ræddum við um hvað hægt væri að gera fyrir umhverfið og þá komu margir áhugaverðir og góðir punktar frá börnunum. Úr þessum punktum sömdum við umhverfis- sáttmálann okkar og settum hann í lag sem flutt var af þessu tilefni,“ segir í frétt frá Háaleiti. Landsnet býður út undirbúningsvinnu vegna Suðurnesjalínu 2 XXLandsnet hefur auglýst eftir tilboðum í gerð vegslóða, jarðvinnu og undirstöður vegna byggingar Suðurnes- jalínu 2, 220 kílóvolta (KV) háspennulínu frá Hraunhellu Í Hafnarfirði að Rauðamel norðan Svartengis. Línu- leiðin er rúmir 32 kílómetrar og möstrin verða alls 100 talsins. Verkið felur í sér gerð nýs vegslóða með línunni og vinnuplana við möstur auk jarðvinnu við undirstöður og ýmislegt fleira. Verkinu skal fullu lokið fyrir septemberlok 2016. Suðurnesjalína 2 verður hluti af almennu raforkuflutningskerfi Landsnets. Áætlaður framkvæmdakostnaður eru tæpir þrír milljarðar króna, framkvæmdatími er um tvö ár og er nú stefnt að því að þær hefjist á næstu mánuðum. Mannaflaþörf verkefnisins er 42 ársverk og ráðgert að allt að 50 manns vinni að því þegar umsvifin verða hvað mest. Leikskólinn Háaleiti á Ásbrú: Fékk Grænfánann í afmælisgjöf Þegar Grænfánanum var fagnað þótti ástæða til að faðma fánastöngina. -fréttir pósturX vf@vf.is Grænfáninn afhentur formlega í leikskólanum Háaleiti. VERKAMENN ÍAV hf. | Höfðabakka 9 | 110 Reykjavík | s. 530 4200 | www.iav.is ÍAV óskar eftir að ráða öfluga verkamenn til starfa í Helguvík. Nánari upplýsingar veitir Magni Helgason mannauðsstjóri í síma 530 4200. Umsóknir má finna á heimasíðu ÍAV, www.iav.is Við breytum vilja í verk ATVINNA Starfsmaður Óskast  á Básnum. Kvöldvaktir 2-3-2 vaktakerfi, 30% starf. Æskilegt að umsækjandin sé ekki yngri en 18 ára Umsóknareyðublöð á staðnum Básinn Keflanding er ferða- og söluskrifstofa með aðsetur í Reykjanesbæ. Vegna aukinna verkefna í ferðaþjónustu leitum við að jákvæðum og samviskusömum samstarfsmönnum með góða þjónustulund í eftirfarandi störf:   SÖLU – OG MARKAÐSSTJÓRI Leitum eftir öflugum aðila til að sjá um alhliða markaðsmál, heimasíðu, kynningarefni, tilboðsgerð og önnur verkefni. Sjálfstæð vinnubrögð, þekking og reynsla á ferðaþjónustumarkaði hérlendis og erlendis eru kostir. Um er að ræða afleysingarstarf næstu 6-9 mánuði vegna fæðingarorlofs en með möguleika á framtíðarstarfi.   BIFREIÐASTJÓRI Leitum eftir traustum og áreiðanlegum bifreiðastjórum með rútupróf í tilfallandi akstur í dags- og kvöldferðir.     Umsóknarfrestur er til og með 4. október. Umsóknir sendast á mariaben@keflanding.com SPENNANDI STÖRF Í FERÐAÞJÓNUSTU Keflanding .com Ljósmyndir: Jón Óskar

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.