Víkurfréttir - 24.09.2015, Blaðsíða 15
15VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 24. september 2015
-aðsent pósturu vf@vf.is
Heilsu- og forvarnarvika haldin í áttunda sinn
Vikuna 28. september - 4. o k t ó b e r n æ s t k o m a n d i
verður heilsu- og forvarnarvika
í Reykjanesbæ. Þetta er í áttunda
skiptið sem heilsu- og forvarnar-
vikan er haldin undir kjörorðinu
Samvinna-Þátttaka-Árangur.
Vonast er til að fyrirtæki og stofn-
anir í bænum taki virkan þátt í
verkefninu með því að bjóða
bæjarbúum upp á heilsutengda
viðburði. Skila þarf inn upplýs-
ingum fyrir 21. september nk.
Markmiðið með heilsu- og for-
varnarvikunni er að draga úr þeim
áhættuþáttum sem einstaklingar
geta staðið frammi fyrir á lífsleið-
inni og hlúa að verndandi þáttum
með þátttöku allra bæjarbúa. Að
sögn Hafþórs Barða Birgissonar
íþrótta- og tómstundafulltrúa
Reykjanesbæjar er vonast til að
fyrirtæki og stofnanir taki virkan
þátt í verkefninu með fjölbreyttum
viðburðum og tilboðum sem höfði
til sem flestra. „Allar stofnanir
Reykjanesbæjar taka þátt í verk-
efninu og er það von okkar að sem
flest fyrirtæki, stofnanir, félaga-
samtök og íþrótta-og tómstunda-
félög í Reykjanesbæ sjái hag sinn í
þátttöku verkefnisins.“
Ætlunin er að útbúa viðburða-
dagatal yfir þau tilboð og verkefni
sem verða í gangi í heilsu- og for-
varnarvikunni og verða ýmsar
leiðir nýttar við að auglýsa verk-
efnið sjálft. Frekari upplýsingar eru
veittar í síma 898 1394 eða á net-
fangið heilsuvika@reykjanesbaer.
is.
Miðstöð símenntunar hefur boðið upp á raun-færnimat í hinum ýmsu greinum frá árinu
2010 og hafa nú yfir 100 manns fengið starfsreynslu
sína metna á móti námsgreinum á framhaldsskóla-
stigi. Viðkomandi þarf því ekki að sækja nám í þeim
námsáföngum sem hann fær metna. Stytting náms-
tíma er því töluverð og meiri hvati til að ljúka námi.
Raunfærnimat er stökkpallur fyrir fullorðna einstakl-
inga inn í menntakerfið á ný þar sem starfsreynsla,
félagsstörf, nám og lífsreynsla er metin formlega í
skipulögðu ferli. Náms- og starfsráðgjafi fylgir þátt-
takendum í gegnum ferlið alla leið og styður jafnframt
við einstaklinginn eftir matið.
Í haust er Miðstöðin m.a. með raunfærnimat í Fisk-
tækni sem er hagnýtt 2ja ára nám og byggt upp sem
bóklegt og verklegt nám. Námið skiptist í þrjár línur,
fiskvinnslulínu, fiskveiðilínu og fiskeldislínu. Námið
gefur möguleika á fjölbreyttum atvinnutækifærum í
vaxandi sjávarútvegi og/eða til áframhaldandi náms.
Einstaklingar sem hafa að minnsta kosti 3ja ára starfs-
reynslu á þessu sviði og eru orðir 23ja ára eiga erindi
í raunfærnimat á þessari braut. Eftir matið hefur þátt-
takandi tækifæri til að ljúka brautinni en jafnframt
möguleika á áframhaldandi sérhæfðu námi fyrir
sjávarútveginn eins og Marel vinnslutækni og gæða-
stjórnun. Marel vinnslutækni er eins árs nám við vélar
og hugbúnað frá Marel. Gæðastjórnun er einnig eins
árs nám sem skiptist í fagbóklegar greinar og vinnu-
staðanám undir leiðsögn tilsjónarmanns.
Raunfærnimat í Fisktækni er frábært tækifæri fyrir
einstaklinga sem hafa starfsreynslu í fiskvinnslu, á sjó
eða í fiskeldi. Þess ber að geta að raunfærnimat er þátt-
takanda að kostnaðarlausu.
Raunfærnimat er ekki skuldbinding af hálfu þátt-
takanda til frekari náms. En oft leiðir matið til frek-
ari náms. Nokkuð margir sem hafa mikla reynslu úr
sjávarútveginum hafa fengið 75-85% metið af fisk-
tæknibrautinni og hafa í kjölfarið nýtt sér matið til
frekara náms.
Sveinn Örvar er einn
þeirra sem fór í gegnum
raunfærnimat í fisk-
tækni og er nú í miðju
námi í fiskeldisfræði í
Hólaskóla.
„Starfsmaður hjá MSS
og gamall nágranni
vissi að ég hafði slasað
mig út á sjó og þá
hafði ég verið mörg ár
á sjónum. Hún benti
mér á að raunfærni-
mat í fisktækni væri
sniðugt fyrir mig til að
fá reynslu mína á sjó
metna til eininga. Ég
tók vel í þetta og í gang
fór ferli. Ég þurfti að
svara nokkrum spurningum og meta hvar ég stæði á
hinum ýmsu sviðum sem tengjast sjómennsku. Seinna
fór ég síðan í munnlegt samtal þar sem ég þurfti að
svara hinum ýmsu spurningum um sjómennskuna. Ég
var ansi stressaður um að ég hafði klúðrað því, huggaði
mig þó við að ég hafði gert mitt besta og meira var ekki
hægt að gera. Seinna fékk ég út úr matinu og stóðst
ég það með stæl og fékk tæpar 80 feiningar metnar.
Í framhaldi af því skellti ég mér í Fisktækniskólann í
Grindavík og útskrifaðist þaðan sem fisktæknir. Núna
er ég í Háskólanum á Hólum að læra fiskeldisfræði og
líkar mjög vel. Þannig að raunfærnimatið kom mér af
stað aftur í skóla og mæli ég með því að fólk með mikla
starfsreynslu á sjó skelli sér í matið, því það hefur engu
að tapa.“
Áhugasamir um raunfærnimat geta haft samband við
Jónínu Magnúsdóttur náms- og starfsráðgjafa MSS
með því að senda póst á netfangið jm@mss.is eða
hringja í síma 412c5958.
■■ Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum:
Af hverju raunfærnimat?
Öldungaráð Suðurnesja hefur starfað í tæpt ár en það
var stofnað 29. nóvember 2014.
Meginhlutverk ráðsins er að gæta
hagsmuna eldri borgara á Suður-
nesjum og vera bæjarstjórnum á
Suðurnesjum og þeim sem mál
þeirra varða til ráðgjafar. Lögð
er áhersla á að tengja saman alla
þá sem koma að málefnum eldri
borgara, fá heildarsýn á stöðuna
eins og hún er í dag og geta þaðan
unnið að einni framtíðarsýn, að
vita hvert við stefnum auðveldar
okkur að ná markmiðum okkar.
Öldungaráð hefur unnið að verk-
efninu „Brúum bilið“ en þar höfum
við kannað þjónustu við eldri
borgara í þeim bæjarfélögum sem
aðild eiga að ráðinu og sameiginleg
verkefni sem unnið er með. Farið
var á fund bæjarráða / bæjar-
stjórna með niðurstöður, þakkað
það sem vel er gert og bent á það
sem betur má gera, munum við
vera með eftirfylgni sem hvetja á til
framkvæmda. Við höfum m.a. lagt
áherslu á fjölgun hjúkrunarrýma
og samþættingu heimahjúkrunar
og heimilishjálpar, með það í huga
að auka þjónustuna og nýta sem
best mannauð og rekstrarfé.
Aðalfundur Öldungaráðs Suður-
nesja verður haldinn mánudaginn
28. september kl.16 á Nesvöllum,
Njarðarvöllum 4, Reykjanesbæ.
Auk almennra aðalfundarstarfa
mun Þórunn Benediktsdóttir,
framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá
HSS, kynna hjúkrunar- og lækna-
þjónustu hjá Heilsugæslunni s.s.
sysa-, bráða- og sykursýkisþjón-
ustu, Margrét Blöndal deildarstjóri
heimahjúkrunar kynnir heima-
þjónustu/heimahjúkrun, hvíldar-
innlögn eldri borgara og endur-
hæfingu.
Ágætu eldri borgarar, Öldungaráð
Suðurnesja er ykkar hagsmunaað-
ili, við hvetjum ykkur til að huga
vel að því, sem getur bætt líf okkar
á efri árum. Munum að huga vel að
eigin heilsu, það gerir það enginn
betur en við sjálf.
Jórunn Alda Guðmundsdóttir
Form. Öldungaráðs Suðurnesja.
Hvernig er hægt að stuðla
að farsælum efri árum?
Að lesa á milli línanna
Jóhann Fr. Friðriksson, lýðheilsu-
fræðingur, heldur örnámskeið
um heilsulæsi í tengslum við
Heilsu-og forvarnarviku
í Reykjanesbæ.
Viltu efla þekkingu þína og skilning á
heilsutengdum upplýsingum?
Rannsóknir
Mataræði
Lyf
Læknisráð
Hreyfing
Næring
Skilningur InnihaldBlaðagreinar
Lýðheilsa
Læ
kningar
Upplýst ák
vörðun
Ráðleggingar
Andleg
líðan
Áhrifaþ
ættir
Vísindi
Heilsulæsi
Heimildir
Vægi
Heilbrigði
• 2. október kl.20.00
í sal Eldeyjar, Ásbrú.
• Skráning & upplýsingar:
johannfridrik.com & jff@jff.is
Námskeið í heilsulæsi
• Verð: 2500 kr.
Sigurður Þ.
Þorsteinsson
Sálfræðingur
sigurdur@salsud.is
sími: 847 6015
Sálfræðistofa Suðurnesja Hafnargata 51-55
Hulda
Sævarsdóttir
Sálfræðingur
hulda@salsud.is
sími: 898 6846
ÞJÓNUSTA
Get bætt við mig verkefnum. Park-
etlagnir, innréttingar, hurðar, milli-
veggir og fl uppl í sima 866-9103.
Bílaviðgerðir
Partasala
Kaupum bilaða
og tjónaða bíla
Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
- smáauglýsingar
Verið velkomin
á samkomu
alla sunnudaga kl. 11.00
Hvítasunnu-
kirkjan í Keflavík,
Hafnargötu 84
WWW.VF.IS
www.vf.is
83% LESTUR
+