Víkurfréttir - 24.09.2015, Síða 17
Í KVÖLD
Sjónvarp Víkurfrétta
Meðal efnis í þætti vikunnar:
PÓSTKORT
MERKILEGUR
FRÁ SEX HEIMSÁLFU
M
JARÐVANGUR
HORFÐU Í HÁSKERPU
þegar þér hentar best á vef Víkurfrétta, vf.is
REYKJANES GEOPARK vinnur að því að
kveikja áhuga íbúa og gesta á Jörðinni, m.a.
með því að vekja athygli á áhugaverðri jarð-
sögu, fræða og annast landið. Hugtakið Geop-
ark er skilgrein af alþjóðlegum samtökum jarð-
vanga sem nefnast Global Geoparks Network
og starfa þau undir verndarvæng UNESCO. Um
100 geoparkar eru aðilar að samtökunum í dag,
þ.e. svæði svæði sem innihalda merkilegar jarð-
minjar og koma þeim á framfæri. Reykjanes
Geopark fékk formlega vottun sem geopark á
þrettándu haustráðstefnu European Geoparks
Network í Rokua Geopark í Finnlandi á dögun-
um. Sjónvarp Víkurfrétta kynnti sér það hvað
Reykjanes Geopark stendur fyrir.
NEMENDUR MYLLUBAKKASKÓLA fá núna
send póstkort víðsvegar að úr heiminum eft-
ir að hafa sett mynd á fésbókarsíðu þar sem
óskað var eftir póstkortum. Nemendurnir eru
í valáfanga og fengu þessa hugmynd að láta
reyna á mátt netsins til að komast í samband
við fólk um víða veröld. Þegar Sjónvarp Víkur-
frétta heimsótti nemendurna og kennara þeirra
á dögunum voru póstkortin orðin vel á fimmta
hundrað og daglega komu ný póstkort í hús.
Kortin eru frá yfir 50 löndum í sex heimsálfum.
Meira um það í Sjónvarpi Víkurfrétta.
SJÓNVARP VÍKURFRÉTTA er í eigu Víkurfrétta ehf. sem þú finnur á fjórðu
hæð Krossmóa 4a í Reykjanesbæ. Fyrirtækið gefur einnig út Víkurfréttir alla fimmtudaga og
heldur úti vefsíðunum vf.is og kylfingur.is. Ef þú vilt auglýsa í miðlum Víkurfrétta, í sjónvarpi,
blaði eða á vef, þá biðjum við þig að setja þig í samband við auglýsingadeild í síma 421 0001
nú eða bara að kíkja í kaffi í Krossmóa og kynna þér nánar auglýsingamöguleika Víkurfrétta ehf.
Ef þig vantar hönnun og prentun, þá er sú þjónusta einnig á sama stað.
FIMMTUDAGSKVÖLD KL. 21:30 Á ÍNN