Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.10.2015, Qupperneq 2

Víkurfréttir - 22.10.2015, Qupperneq 2
2 fimmtudagur 22. október 2015 • VÍKURFRÉTTIR UPPLÝSINGAVEFUR UM ÍBÚAKOSNINGU OPNAÐUR STAPI 50 ÁRA HLÍÐARHVERFI (NICEL SVÆÐI) DEILISKIPU- LAGSTILLAGA STARFSMAÐUR SKÓLA ÓSKAST Upplýsingavefur um fyrirhugaða íbúakosningu vegna breytinga á deiliskipulagi í Helguvík hefur verið opnaður á www.ibuakosning.is. Þar eru upplýsingar um ástæður kosningarinnar og kosningartímabil, framkvæmd kosningarinnar og um hvað verður kosið. Þar verða einnig sjónarmið bæjaryfirvalda og sjónarmið þeirra sem eru mótfallnir breytingunni. Sunnudaginn 25. október verður haldið upp á 50 ára afmæli hins sögufræga félagsheimilis Stapa. Húsið var formlega vígt þann 23. október árið 1965. Afmælisboðið stendur frá 15-17. Á meðal þeirra sem flytja erindi eru Hilmar Hafsteinsson og Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Valdimar Guðmundsson kemur fram ásamt gítarleikara. Afmælisterta og aðrar kaffiveitingar í boði fyrir gesti. Allir velkomnir. Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst til kynningar eftirfarandi deiliskipulagstillaga. Deiliskipulagstillaga Hlíðahverfi Deiliskipulagssvæðið er um 14. ha sunnan Efstaleitis, vestan Holtahverfis og nær að Þjóðbraut. Á svæðinu er eingöngu reiknað með íbúðum sem ýmist eru einbýli, parhús, raðhús eða fjölbýli. Hæð húsa er frá einni hæð upp í fjórar hæðir. Tillaga ásamt fylgigögnum verður til sýnis á skrif- stofu Reykjanesbæjar að Tjarnargötu 12 frá og með 22. október til 3. desember 2015. Tillögurnar eru einnig aðgengilegar á heimasíðu Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 3. desem- ber 2014. Skila skal inn skriflegum athugasemdum á skrifstofu Reykjanesbæjar á Tjarnargötu 12 Reykjanesbæ. Reykjanesbæ, 22.október 2015. Skipulagsfulltrúi Heiðarskóli óskar eftir starfsmanni skóla í 70% starf.  Starfsmaður aðstoðar nemendur í leik og starfi, innan og utan kennslustofu og sinnir öðrum verkefnum sem skólastjóri felur honum. Umsóknum skal skilað rafrænt á www.reykjanesbaer. is/stjornkerfi/laus-storf þar sem einnig eru að finna upplýsingar um hæfniskröfur, laun og starfskjör.  Umsóknarfrestur er til og með 1. nóvember.   Nánari upplýsingar veitir Sóley Halla Þórhallsdóttir skólastjóri í síma 4204500 og 8944501. -fréttir pósturu vf@vf.is Reykjaneshöfn fékk greiðslu-frest á lánum sem voru á gjalddaga í dag 15. október að upphæð 140 milljónir króna. Fresturinn var veittur til 30. nóvember nk. Ekki kom því til greiðslufalls. Kjartan Már Kjart- ansson, bæjarstjóri Reykjanes- bæjar segist vona að hægt verði að nýta tímann fram að því til að ganga frá málunum. Fulltrúar bæjarins og hafnarinnar fund- uðu með lánadrottnum en m.a. er um að ræða tvær afborganir af skuldabréfum í skuldabréfa- flokkum sem skráðir eru í Kaup- höllina. Aðkoma kröfuhafa Reykjanes- hafnar í formi endurskipulagningar skulda er forsenda fyrir fjárhags- legri endurskipulagningu Reykja- nesbæjar. Ef ekki nást samningar við kröfu- hafa verður óskað eftir því að bæjarfélaginu verði skipuð fjár- hagsstjórn, eins og skylt er sam- kvæmt sveitastjórnarlögum. Í viðtali við Viðskiptablaðið segir Kjartan Már að margir lánadrottna hafnarinnar séu fagfjárfestar. „Ef höfnin fer í greiðslustöðvun, ef við getum ekki greitt, þá verður náttúrulega bara rekstrarstöðvun og við vitum ekki hvað gerist ná- kvæmlega í framhaldinu.“ Fjárhagsvandi Reykjaneshafnar er aðeins einn angi af fjárhagsvand- ræðum bæjarfélagsins. Kjartan Már sagði viðræður við lána- drottna ganga þokkalega. Við- skiptablaðið segist hafa heimildir fyrir því að bærinn hafi óskað eftir allt að 9 milljarða króna eftirgjöf af skuldum sínum en þær nema rúm- lega 40 milljörðum kr. Það er því verið að tala um niðurfellingu á um það bil fjórðungi skuldanna. Samkvæmt tilkynningu Reykja- nesbæjar fyrr í mánuðinum áætlar bæjarfélagið að leggja fram tillögur að heildarskipulagningu fjárhags bæjarins á næstunni. Kjartan Már segir að áfram sé unnið eftir þeim markmiðum að Reykjanesbær komi fjármálunum í lag og muni ekki fá yfir sig fjárhagsstjórn en til þess þurfi að ná samningum við kröfuhafa. „Það hefur ekkert sveitarfélag á Íslandi verið í þessari stöðu sem við erum í en vonandi tekst okkur að ná samningum við kröfuhafa.“ Þúsund tonna kvóti í Garðinn með Kópi BA XuNesfiskur í Garði er að festa kaup á skipinu Kópi BA frá Tálknafirði með af laheim- ildum upp á rúmlega þúsund tonn. Skipið kaupir Nesfiskur af fyrirtækinu Þórsbergi. Að sögn Bergþórs Baldvinssonar, framkvæmdastjóra Nesfisks, verður skipið að öllu óbreyttu afhent í næsta mánuði. „Ekki er þó ákveðið hvort eða hvenær Kópur fer til veiða. Við erum með marga báta og eigum eftir að hugsa það hvernig Kópur nýt- ist okkur,“ segir hann. Nesfiskur greiddi að hluta til fyrir kaupin með krókaaflamarki. Bergþór segir að kaupin muni ekki hafa í för með sér mikla fjölgun starfsmanna Nesfisks en að hún verði þó einhver. Íbúðalánasjóður vill selja Garði Xu Íbúðalánasjóður hefur sent Sveitarfélaginu Garði erindi þar sem sjóðurinn býður sveitar- félaginu húseignir sjóðsins í bæjarfélaginu til kaups. Erindið var tekið fyrir í bæjar- ráði Garðs í vikunni. Bæjarráð fól bæjarstjóra að afla nánari upp- lýsinga hjá sjóðnum, m.a. um það hvaða húseignir um er að ræða. Hlutfall fyrstu kaupa af þing-lýstum kaupsamningum það sem af er ári er hæst á Suður- nesjum, rétt rúm 32%. Þetta kemur fram í frétt á vef Þjóðskrár Íslands. Fylgst hefur verið með upplýsingum um þinglýsingu fyrstu kaupa frá því heimild til lægri stimpilgjalda vegna fyrstu kaupa var gefin út 1. júlí 2008. Í vinnslu Þjóðskrár eru þinglýstir kaupsamningar taldir og afsöl um íbúðarhúsnæði án undangengins kaupsamnings og eignayfirlýsingar. Ekki eru taldar með eignatilfærslur byggðar á erfðum eða öðru slíku, eins og segir í fréttinni. „Rannsókn á því hvort um fyrstu kaup var að ræða fór fram við móttöku skjala til þinglýsingar hjá sýslumönnum.“ Af þeim 615 kaupsamningum sem hafa verið þinglýstir á Suður- nesjum það sem af er ári eru 198 fyrstu kaup. Á eftir Suðurnesjum kemur Austurland með rétt tæp 32%, þá Vestfirðir, síðan Suður- land, Norðurland vestra, Vestur- land, Höfuðborgarsvæðið og loks Norðurland vestra. Í gögnunum er ekki að finna skiptingu milli sveitarfélaga innan landssvæða. Kaupendur fyrstu fast- eignar velja Suðurnes Reykjaneshöfn fékk greiðslufrest til 30. nóvember Xu Ísaga ehf. hefur lýst áformum fyrirtækisins um uppbyggingu nýrrar súrefnis- og köfnunar- efnisverksmiðju á iðnaðarsvæði við Vogabraut í Vogum, ásamt því að starfsemi fyrirhugaðrar verk- smiðju er lýst nánar. Í erindinu er þess farið á leit við Sveitarfélagið Voga að það gefi á þessu stigi umsögn um fyrirhugaða framkvæmd og þeirri breytingu sem fyrirséð er að gera þurfi á deili- skipulagi vegna hæðar kæliturns og tanka, áður en lengra er haldið í undirbúningi. Bæjarráð Voga fagnaði á dögunum áhuga Ísaga ehf. og tekur jákvætt í erindið. Því var vísað til umfjöll- unar hjá Umhverfis- og skipulags- nefnd, hvað varðar skipulagsþætti málsins. Þá hefur bæjarstjórn Voga nú samþykkt afgreiðslu bæjarráðs með öllum sínum sjö atkvæðum. XuTækniklasi Suðurnesja verður stofnaður formlega í dag, fimmtu- dag, í Eldey á Ásbrú í Reykja- nesbæ. Stofnun klasans verður kl. 17 en klukkutíma áður verður Hakkit vísindasmiðjan kynnt sem er í frumkvöðlasetrinu. Ragnheiður Elín Árnadóttir, ný- sköpunarráðherra, mun ávarpa samkomuna. Þór Sigfússon, fram- kvæmdastjóri Sjávarklasans, mun greina frá reynslunni af þeim klasa. Þá verða nokkur verkefni sem unnin eru á vegum Keilis kynnt, sem og verkefnin „Fly-bókunar- kerfið“ og „Flugvirkinn“. Að end- ingu verður svo Tækniklasi Suður- nesja formlega stofnaður. Taka vel í áhuga á Ísaga á Vogum – fyrirséð er að gera þurfi breytingu á deiliskipulagi vegna hæðar kæliturns Tækniklasi Suðurnesja stofnaður í dag Frá framkvæmdum í Helguvík í vikunni.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.