Víkurfréttir - 22.10.2015, Qupperneq 9
9VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 22. október 2015
Þrjár landgöngubr ýr v ið suðurbyggingu Flugstöðvar
Leifs Eiríkssonar verða endur-
nýjaðar í vetur. Það er spænska
fyrirtækið Thyssen Krupp, fram-
leiðandi búnna, sem mun sjá um
verkið. Isavia hefur haft samning
við fyrirtækið undanfarin þrjú ár
en það hefur gert úttekt á öllum
landgöngubrúm Flugstöðvar
Leifs Eiríkssonar.
Eftir úttekt var ákveðið að gera upp
þrjár af fimm brúnum á Suður-
byggingu flugstöðvarinnar. Guðni
Sigurðsson, upplýsingafulltrúi
flugstöðvarinnar, sagði í samtali
við Víkurfréttir að þær þrjár sem
voru verst farnar verði gerðar upp
í vetur en hinar tvær líklega seint
á næsta ári.
„Ástandið var orðið mjög slæmt
og þurfti að skipta út öllum stjórn-
búnaði, köplum og hinum ýmsu
hlutum brúna ásamt því að gera
upp,“ segir Guðni.
Kostnaður við verkið er í heild
90 milljónir króna. „Megnið af
kostnaðinum fer í nýja varahluti.
Stærsti kostnaðarhlutinn er endur-
nýjun á búnaði sem aðeins fæst
hjá framleiðanda og vinna við að
skipta búnaðnum út sem er mjög
sérhæfð vinna sem fá fyrirtæki hafa
reynslu af og engin íslensk.“
Guðni segir t.d. sandblástur vera
einungis lítinn hluta af verkinu.
„Við mátum að þar sem þetta væri
það sérhæft væri ekki hægt að bjóða
verkið út ásamt því að við gerum
kröfu um að einungis séu notaðir
upprunalegir varahlutir í brýrnar
sem er aðeins hægt að kaupa hjá
framleiðanda. Að auki má nefna að
landgöngubrýrnar hjá okkur eru
með kröfu um 100% uppitíma og
getum við ekki tekið neina áhættu
varðandi verkefni sem þetta.“
Verktakinn, Thyssen Krupp, er að
koma sér upp aðstöðu til að vinna
að viðgerð brúnna í byggingu 885
á Keflavíkurflugvelli eða gamla
stóra flugskýlinu. Það hús bíður
niðurrifs en af því eru greiddir fast-
eignaskattar og auk þess er sérstök
trygging fyrir þá starfsemi sem er í
húsinu. „Húsnæðið uppfyllir því öll
skilyrði fyrir þessa starfsemi,“ segir
Guðni Sigurðsson, upplýsingafull-
trúi í samtali við Víkurfréttir.
ATVINNA
Vantar starfsfólk í dekkjavertíð.
Möguleiki á framtíðarstarfi.
Upplýsingar veittar á
staðnum Sólning Fitjabraut 12
JÓLAHLAÐBORÐ
á Hótel Örk
föstudagurinn 4. desember 2015
Jólahlaðborð, gisting og morgunverður 12.000.- kr.
á mann í tveggja manna herbergi
(aukagjald í einbýli kr. 3000.-)
Borðhald hefst kl. 19:30, en dvöl getur hast kl. 16:00.
Rútuferðir: Farið verður frá Garði kl. 14:00, Sandgerði
kl. 14:15, Nesvöllum kl.14:30 og Vogum kl. 14:45.
Skráning er han hjá Erni, 846-7334, Vogum. Lýdíu,
423-7604, Sandgerði. Brynju, 422-7177, Garðinum.
Bjarneyju, 421-1961, Reykjanesbæ.
Skemmtinefnd
Elskulegur sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi, langafi og langalangafi,
Sigurbergur Sverrisson,
Diddi í HF,
Njarðarvöllum 6, Njarðvík
áður Sóltúni 10, Keflavík,
lést miðvikudaginn 14. október.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, föstudaginn 23. október kl. 13:00.
Fanney Sigurjónsdóttir,
Ólafía Sigurbergsdóttir, Gylfi Ármannsson,
Hafdís Sigurbergsdóttir, Björgvin Gunnlaugsson,
Jóhann Sigurbergsson, Þórunn Sveinsdóttir,
Guðmundur Sigurbergssson, Gunnhildur Gunnarsdóttir,
Kolbrún Sigurbergsdóttir,
Hrafnhildur Sigurbergsdóttir, Gísli Helgason,
Sveindís Sigurbergsdóttir,
Kristín Sigríður Hansdóttir, Hjalti Garðarsson,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Krossmóa sími 511-2021 // www.dyrabaer.is
Atvinna
Dýrabær Krossmóa óskar eftir starfsmanni í hlutastarf.
Viðkomandi þarf að hafa góða þekkingu á dýrum,
vera 20 ára eða eldri og tala íslensku.
Umsóknir sendist til dyrabaer@dyrabaer.is.
Dýrabær er reyklaus vinnustaður.
-fréttir pósturu vf@vf.is
Í dag eru öll smáforrit Raddlistar komin í iPhone útgáfu. Smáforritin voru áður gefin út eingöngu
fyrir iPad spjaldtölvur. Með þessu framtaki er for-
eldrum gert auðveldara að hlaða niður forritum
sem stuðla að auknum málþroska og undirbúa
börn fyrir læsi, beint í símana, hvar og hvenær
sem er. Um er að ræða forrit sem sameina leik við
hljóðakennslu, undirbúa læsi og réttan framburð.
Þau eru Lærum og leikum með hljóðin, Froska-
leikur 1, 2 og 3 og Froskaleikur Skólmeistarinn
(skólútgáfa).
„Nú á ekkert að vera því til fyrirstöðu að tugþúsundir
uppalenda sem nota iPad eða iPhone geti aðstoðað
börnin á markvissan hátt við grunninn að læsi“ segir
Bryndís Guðmundsdóttir, talmeinafræðingur, aðal-
höfundur efnisins. „Drengir standa almennt verr að
vígi en stúlkur í lestrarundirbúningi. Þeim hentar vel
tenging við leik, tækni og hreyfingu, eins og er í smá-
forritunum. Ég vona því að þetta geri gæfumun fyrir
marga,“ segir Bryndís. „Til að geta ráðist í iPhone
útgáfu fékk ég mikilvægan stuðning frá nokkrum
íslenskum fyrirtækjum sem í verki gerðu okkur kleift
að stuðla enn frekar að læsi íslenskra barna með
stærri notendahópi“, segir Bryndís. Fyrirtækin sem
studdu við gerð iPhone útgáfunnar eru Novator,
Norðurál, Hagar, KPMG og HS Orka.
Smáforrit Raddlistar
komin fyrir iPhone
Ragnar Hafsteinsson, faðir úr Keflavík, berst nú fyrir því
að Adam, sex ára gamall sonur
hans, snúi til taka frá Slóvakíu.
Drengurinn fór þangað í viku
langa heimsókn til móður sinnar
sem býr þar. Ragnar
átti von á drengnum
til baka sunnudaginn
11. október síðast-
liðinn en hefur hvorki
heyrt frá syni sínum
né barnsmóður. „Þetta
er ekki forsjárdeila,
heldur barnsrán,“ segir
Ragnar. „Hún er búin
að slíta öllum sam-
skiptum við mig og ég
veit í rauninni ekkert
hvar sonur minn er
niður kominn. Ég get
ekki hringt í móðurina
né náð til hennar með
öðrum leiðum. Öll fjölskylda
hennar er búin að loka á mig á
facebook. Ég er búinn að reyna
allt en hef ekki fengið nein svör.“
Ragnar og móðir drengsins slitu
sambandi sínu árið 2012. Héraðs-
dómur Reykjaness úrskurðaði
Ragnari forræði yfir drengnum í
apríl 2014 en að hann skyldi dvelja
hjá móður sinni fjórar vikur á
hverju sumri og önnur hver jól og
áramót. „Hún hefur fengið meiri
umgengni en dómurinn kvað á um.
Til dæmis fór hann til hennar núna
vegna þess að það var vetrarfrí í
skólanum,“ segir Ragnar.
Feðgarnir fluttu til Sandnes í Nor-
egi síðasta vor og hóf Adam nám
í fyrsta bekk nú í haust. „Hann
hefur aðlagast mjög vel, talar góða
norsku og á marga vini. Það er því
ansi hart að rífa hann í burtu því
honum líður vel hér. Samkvæmt
lögfræðingnum mínum er þetta
erfitt mál að sækja og ef
það tekur of langan tíma
verður þeim mun erfiðara
að fá drenginn til baka.
Þá verður hann búinn að
skjóta rótum í Slóvakíu og
ef hún kemur í veg fyrir
samskipti mín við dreng-
inn er það mjög slæmt.“
Ragnar bíður nú svara
frá utanríkisráðuneyti
Noregs og segir næstu
skref vera í höndum lög-
fræðinga sinna. „Þetta er
ömurleg staða því ég þarf
bæði lögfræðing í Noregi
og í Slóvakíu og því fylgir
mikill kostnaður.“ Búið er að stofna
styrktarsíðu á facebook undir nafn-
inu Bring Adam back home þar
sem hægt er að leggja Ragnari lið.
Þrjár landgöngubrýr endurnýjaðar
- við suðurbyggingu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar
Landgöngubrú við suðurbyggingu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar.
VF-mynd: Hilmar Bargi Bárðarson
Sonurinn kom ekki til baka úr vetrarfríi