Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.10.2015, Side 15

Víkurfréttir - 22.10.2015, Side 15
15VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 22. október 2015 Jólin koma í Reykjanesbæ Stórglæsilegir jólatónleikar 18. desember í Hljómahöll með landsþekktum söngvurum sem mæta með jólaandann. Tryggðu þér miða tímanlega! Nánari upplysingar má finna á Facebooksíðunni Jólin koma. Forsala miða fer fram á tix.is og hefst föstudaginn 23. október kl. 13.00 Helga Möller Stefán HilmarssonSigríður Beinteinsdóttir -aðsent pósturu vf@vf.is Eftir töluverða baráttu og undirskriftir rúmlega 25% íbúa Reykjanesbæjar, tókst að herja út leyfi til að íbúakosning yrði haldin um hvort að þriðja stóriðjan skyldi rísa í túnfæti bæjarins. Mótbárurnar voru þær helstar að slík íbúakosning myndi kosta bæjarfélagið tugi milljóna. Seinna kom í ljós að þetta var ekki rétt. Kosningarnar eru alfarið kostaðar af Þjóðskrá, Það er svo undir bæjaryfirvöldum komið hversu miklu púðri þau vilja eyða í að auglýsa kosningarnar og kynna íbúum augljósan rétt sinn til að hafa áhrif á eigin framtíð. Í stað þess að leggja í þá vegferð hefur meirihlutinn gefið bæjar- búum langt nef og sagt; „þið megið alveg kjósa en það verður ekkert mark tekið á niðurstöðunni”. Rökin og mótbárurnar eru eins og fyrr fjárhagslegs eðlis. Margir taka yfir- lýsingum bæjarstjórnar, um að hunsa útkomu kosninganna á þann veg að það borgi sig ekki að kjósa. Því er einmitt öfugt farið. Núna verða íbúar að krefjast áheyrnar og kjósa um framtíðarsýn bæjar- félagsins. Hvað er málið ? Tvö stóriðjuver, álver Norðuráls og kísilmálmverksmiðja United Sili- con hafa þegar fengið tilskilin leyfi til að hefja rekstur í Helguvík. Um er að ræða orkufrekan iðnað sem mikill styrr stendur um í þjóðfélag- inu. Stöðugt sterkari rök hníga í þá átt að stóriðjan skili samfélaginu sáralitlum arði, gangi um of á orku- búskap framtíðar og auki mengun. Þrátt fyrir þetta hafa bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ valið að greiða götur fyrir enn eina stóriðjuna, stærstu kísilmálmverksmiðju í heimi. Leynd yfir samningum við Thorsil Hver er samningurinn við Reykja- neshöfn og Thorsil? Nokkrir bæjarbúar hafa ítrekað sóst eftir því að fá að sjá þennan samning en bæjaryfirvöld hafna fyrirspurninni vegna þess að Thorsil vill ekki að hann sé opinberaður? Hvað er í þessum samningi sem ekki má líta dagsins ljós? Er það nóg ef forsvars- menn bæjarins segja að bæjar- félagið verði bótaskylt án nokk- urra útskýringa eða röksemda. Það getur varla talist málefnaleg rök að segja t.d. “við erum á einhvern hátt bundinn í báða skó,“ eins og for- ráðamenn bæjarins hafa látið hafa eftir sér. Mengunarlaus stóriðja í bakgarðinum Flestum þætti nógu róttæk aðgerð að reisa álver í eins kílómeters fjar- lægð frá byggð, en að bæta í og reisa tvö mega kísilver á sama stað er einhvernveginn svo stórkallalegt að tekur engu tali. Við skulum hafa það alveg á hreinu að mengunar- laus stóriðja er ekki til enda eru kísilverin tvö þegar farin að metast um það í fjölmiðlum hvor þeirra mengi meira. Saman tekst þeim ábyggi- lega vel upp. Atvinnuleysið Ein megin röksemdin fyrir upp- byggingu stóriðju er meint at- vinnuleysi á svæðinu. Þetta at- vinnuleysi hefur verið mest áber- andi meðal kvenna. Ekki geri ég ráð fyrir því að konur fagni nýjum atvinnutækifærum á vöktum í stóriðju. Atvinnuleysi hefur sem betur fer minnkað á undanförnum misserum fór úr 5,4% í janúar í 3,1 % í ágúst sem er minna en á höfuð- borgarsvæðinu. Með auknum ferðamannafstraumi eykst álagið á Leifsstöð og nú er svo komið að starfsfólk þar kemur í heilu rútu- förmunum úr öðrum byggðar- lögum. Á næstu árum er því spáð að það þurfi 5000 nýja starfsmenn í ferðaþjónustuna í landinu. Ætlar Reykjanesbær ekki að taka þátt í þeirri uppbyggingu ? Reykjanesið er dásamleg náttúruperla og ferða- þjónustan á þar ótæmandi mögu- leika ef okkur auðnast að eyðileggja þá ekki með úreltri atvinnustefnu. Viljum við vera verksmiðjubær- inn sem síaukinn straumur ferða- manna sneiðir hjá? Erfðasilfrið Það má segja að núverandi bæjar- stjórn hafi fengið þennan málatil- búnað í arf. Það réttlætir þó engan veginn að hún bregðist við með því að vanvirða vilja þeirra sem studdu hana til valda. Við töluðum mikið um íbúalýðræði og aukið gegnsæi í aðdraganda síðustu kosninga. Við vildum breyta stjórnarháttum fyrri stjórnar. Það skýtur því skökku við að fulltrúar okkar í bæjarstjórn bregðist við óskum íbúanna með valdhroka og lítilsvirðingu. Kosningar 24. október - 4. nóvember Það var ljóst við söfnun undir- skrifta í sumar að bæjarbúar vildu fá eitthvað að segja um stóriðju- framkvæmdirnar í Helguvík og greinilegt að menn voru uggandi yfir öllum þessum ósköpum. Það er óþarft að ræða hvort það verði mengun eða ekki það vita allir heil- vita menn og að þræta um það er kjánalegt. Mengunin fer þangað sem vindurinn blæs sem sannað- ist best þegar fnykurinn frá fiski bræðslunni í Helguvík lág dögum saman yfir Heiðarhverfinu í stífri norðanáttinni í sumar. Menn höfðu orð á því að þeim hefði verið lofað á sínum tíma að óþefurinn frá bræðslunni í Helguvík mundi aldr- ei ná í byggð. Sitt sýnist hverjum að treysta háleitum loforðum þeirra sem eiga allt undir fjárhagslegum hagnaði. Stóriðjuframkvæmdirnar í Helgu- vík er eitt stærsta umhverfismál okkar tíma og áhrif þess munu hafa gríðarlegar breytingar í för með sér fyrir í framtíð fólksins og bæjar- félagsins. Loftgæði munu rýrna, sjónmengun aukast og samfara því mun fasteignaverð falla. Við verðum spyrja okkur hvað verður um menningar-og rokk bæinn okkar? Munum við hvetja börn og barnabörn okkar til að hefja búskap sinn í bæjarfélaginu og munum við vera sátt við ákvarðanir okkar að fórna náttúruperlu okkar, í mengandi iðnað sem engin þörf er fyrir? Hvernig svörum við fyrir það. „Við vorum á einhvern hátt bundinn í báða skó“! Ég hvet alla til að dusta rykið af rafrænu skilríkjunum sínum og taka þátt. Látum á það reyna hvort við höfum eitthvað með framtíð bæjarins okkar að segja. www.isl- and.is/islykill. Dagný Alda Steinsdóttir ■■ Dagný Alda Steinsdóttir skrifar: Íbúar kjósa um framtíð Reykjanesbæjar – Verksmiðjubær eða náttúruperla?

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.