Víkurfréttir - 22.10.2015, Page 15
15VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 22. október 2015
Jólin koma í Reykjanesbæ
Stórglæsilegir jólatónleikar 18. desember í Hljómahöll
með landsþekktum söngvurum sem mæta með jólaandann.
Tryggðu þér miða tímanlega!
Nánari upplysingar má finna á Facebooksíðunni Jólin koma.
Forsala miða fer fram á tix.is og hefst föstudaginn 23. október kl. 13.00
Helga Möller Stefán HilmarssonSigríður Beinteinsdóttir
-aðsent pósturu vf@vf.is
Eftir töluverða baráttu og undirskriftir rúmlega 25%
íbúa Reykjanesbæjar, tókst að
herja út leyfi til að íbúakosning
yrði haldin um hvort að þriðja
stóriðjan skyldi rísa í túnfæti
bæjarins. Mótbárurnar voru þær
helstar að slík íbúakosning myndi
kosta bæjarfélagið tugi milljóna.
Seinna kom í ljós að þetta var ekki
rétt. Kosningarnar eru alfarið
kostaðar af Þjóðskrá, Það er svo
undir bæjaryfirvöldum komið
hversu miklu púðri þau vilja eyða
í að auglýsa kosningarnar og
kynna íbúum augljósan rétt sinn
til að hafa áhrif á eigin framtíð.
Í stað þess að leggja í þá vegferð
hefur meirihlutinn gefið bæjar-
búum langt nef og sagt; „þið megið
alveg kjósa en það verður ekkert
mark tekið á niðurstöðunni”. Rökin
og mótbárurnar eru eins og fyrr
fjárhagslegs eðlis. Margir taka yfir-
lýsingum bæjarstjórnar, um að
hunsa útkomu kosninganna á þann
veg að það borgi sig ekki að kjósa.
Því er einmitt öfugt farið. Núna
verða íbúar að krefjast áheyrnar
og kjósa um framtíðarsýn bæjar-
félagsins.
Hvað er málið ?
Tvö stóriðjuver, álver Norðuráls og
kísilmálmverksmiðja United Sili-
con hafa þegar fengið tilskilin leyfi
til að hefja rekstur í Helguvík. Um
er að ræða orkufrekan iðnað sem
mikill styrr stendur um í þjóðfélag-
inu. Stöðugt sterkari rök hníga í þá
átt að stóriðjan skili samfélaginu
sáralitlum arði, gangi um of á orku-
búskap framtíðar og auki mengun.
Þrátt fyrir þetta hafa bæjaryfirvöld
í Reykjanesbæ valið að greiða götur
fyrir enn eina stóriðjuna, stærstu
kísilmálmverksmiðju í heimi.
Leynd yfir samningum við Thorsil
Hver er samningurinn við Reykja-
neshöfn og Thorsil? Nokkrir
bæjarbúar hafa ítrekað sóst eftir
því að fá að sjá þennan samning en
bæjaryfirvöld hafna fyrirspurninni
vegna þess að Thorsil vill ekki að
hann sé opinberaður? Hvað er í
þessum samningi sem ekki má líta
dagsins ljós? Er það nóg ef forsvars-
menn bæjarins segja að bæjar-
félagið verði bótaskylt án nokk-
urra útskýringa eða röksemda. Það
getur varla talist málefnaleg rök að
segja t.d. “við erum á einhvern hátt
bundinn í báða skó,“ eins og for-
ráðamenn bæjarins hafa látið hafa
eftir sér.
Mengunarlaus stóriðja
í bakgarðinum
Flestum þætti nógu róttæk aðgerð
að reisa álver í eins kílómeters fjar-
lægð frá byggð, en að bæta í og
reisa tvö mega kísilver á sama stað
er einhvernveginn svo stórkallalegt
að tekur engu tali. Við skulum hafa
það alveg á hreinu að mengunar-
laus stóriðja er ekki til enda eru
kísilverin
tvö þegar farin að metast um það
í fjölmiðlum hvor þeirra mengi
meira. Saman tekst þeim ábyggi-
lega vel upp.
Atvinnuleysið
Ein megin röksemdin fyrir upp-
byggingu stóriðju er meint at-
vinnuleysi á svæðinu. Þetta at-
vinnuleysi hefur verið mest áber-
andi meðal kvenna. Ekki geri ég
ráð fyrir því að konur fagni nýjum
atvinnutækifærum á vöktum í
stóriðju. Atvinnuleysi hefur sem
betur fer minnkað á undanförnum
misserum fór úr 5,4% í janúar í 3,1
% í ágúst sem er minna en á höfuð-
borgarsvæðinu. Með auknum
ferðamannafstraumi eykst álagið
á Leifsstöð og nú er svo komið að
starfsfólk þar kemur í heilu rútu-
förmunum úr öðrum byggðar-
lögum. Á næstu árum er því spáð
að það þurfi 5000 nýja starfsmenn
í ferðaþjónustuna í landinu. Ætlar
Reykjanesbær ekki að taka þátt í
þeirri uppbyggingu ? Reykjanesið
er dásamleg náttúruperla og ferða-
þjónustan á þar ótæmandi mögu-
leika ef okkur auðnast að eyðileggja
þá ekki með úreltri atvinnustefnu.
Viljum við vera verksmiðjubær-
inn sem síaukinn straumur ferða-
manna sneiðir hjá?
Erfðasilfrið
Það má segja að núverandi bæjar-
stjórn hafi fengið þennan málatil-
búnað í arf. Það réttlætir þó engan
veginn að hún bregðist við með því
að vanvirða vilja þeirra sem studdu
hana til valda. Við töluðum mikið
um íbúalýðræði og aukið gegnsæi
í aðdraganda síðustu kosninga. Við
vildum breyta stjórnarháttum fyrri
stjórnar. Það skýtur því skökku við
að fulltrúar okkar í bæjarstjórn
bregðist við óskum íbúanna með
valdhroka og lítilsvirðingu.
Kosningar
24. október - 4. nóvember
Það var ljóst við söfnun undir-
skrifta í sumar að bæjarbúar vildu
fá eitthvað að segja um stóriðju-
framkvæmdirnar í Helguvík og
greinilegt að menn voru uggandi
yfir öllum þessum ósköpum. Það
er óþarft að ræða hvort það verði
mengun eða ekki það vita allir heil-
vita menn og að þræta um það er
kjánalegt. Mengunin fer þangað
sem vindurinn blæs sem sannað-
ist best þegar fnykurinn frá fiski
bræðslunni í Helguvík lág dögum
saman yfir Heiðarhverfinu í stífri
norðanáttinni í sumar. Menn höfðu
orð á því að þeim hefði verið lofað
á sínum tíma að óþefurinn frá
bræðslunni í Helguvík mundi aldr-
ei ná í byggð. Sitt sýnist hverjum að
treysta háleitum loforðum þeirra
sem eiga allt undir fjárhagslegum
hagnaði.
Stóriðjuframkvæmdirnar í Helgu-
vík er eitt stærsta umhverfismál
okkar tíma og áhrif þess munu hafa
gríðarlegar breytingar í för með sér
fyrir í framtíð fólksins og bæjar-
félagsins. Loftgæði munu rýrna,
sjónmengun aukast og samfara
því mun fasteignaverð falla. Við
verðum spyrja okkur hvað verður
um menningar-og rokk bæinn
okkar? Munum við hvetja börn og
barnabörn okkar til að hefja búskap
sinn í bæjarfélaginu og munum við
vera sátt við ákvarðanir
okkar að fórna náttúruperlu okkar,
í mengandi iðnað sem engin þörf
er fyrir? Hvernig svörum við fyrir
það. „Við vorum á einhvern hátt
bundinn í báða skó“!
Ég hvet alla til að dusta rykið af
rafrænu skilríkjunum sínum og
taka þátt. Látum á það reyna hvort
við höfum eitthvað með framtíð
bæjarins okkar að segja. www.isl-
and.is/islykill.
Dagný Alda Steinsdóttir
■■ Dagný Alda Steinsdóttir skrifar:
Íbúar kjósa um framtíð Reykjanesbæjar
– Verksmiðjubær eða náttúruperla?