Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.12.2015, Blaðsíða 8

Víkurfréttir - 03.12.2015, Blaðsíða 8
8 fimmtudagur 3. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR -fréttir pósturu vf@vf.is Mælingar á mengun á vegum kísilveranna Reykjanesbær hefur farið fram á að vera virkur aðili í eftirliti á mengunarvöktuninni Mælingar á útblæstri frá kísi lverum í Helguvík verður skipulögð af fyrirtækj­ unum sjálfum. Fyrirtækin velja eftirlitsaðila sem Umhverfis­ stofnun þarf svo að samþykkja. Þetta kemur fram í skriflegu svari frá Reykjanesbæ við fyrir­ spurn Víkurfrétta um tilhögun mælinga í Helguvík. Starfsleyfi veranna eru háð vöktunaráætl­ unum sem fyrirtækin sjálf leggja til. Í þeim er tiltekið hver muni sjá um mælingarnar. Umhverfis­ stofnun þarf svo að samþykkja vöktunaráætlunina og þar með þá aðila sem sjá um vöktunina. Kísilverin sjálf greiða svo fyrir vöktunina. Auk þessara mælinga mun Umhverfisstofnun fram­ kvæma skyndimælingar þar sem mætt er óvænt í fyrirtækið og mælingar framkvæmdar. Heil­ brigðiseftirlit Suðurnesja mun einnig hafa eftirlit með útblæstri kísilveranna. Ekki hefur verið ákveðið hvort Reykjanesbær verði með sérstakar mælingar en sam­ kvæmt upplýsingum frá bænum er það í skoðun. Vöktunaráætlun United Silicon er nú í endurskoðun hjá Umhverfis- stofnun sem hefur óskað eftir frekari gögnum. Vöktunaráætlun Thorsil er ekki tilbúin. Farið hefur verið fram á sameiginlega vöktun- aráætlun allra verksmiðjanna í Helguvík, það er kísilveranna tveggja og álvers ef af byggingu þess verður. Vöktunaráætlanirnar verða opinber gögn og aðgengileg á síðu Umhverfisstofnunar. Ragnheiður Þorgrímsdóttir, bóndi á bænum Kúludalsá í Hvalfjarðar- sveit, hefur í mörg ár barist fyrir því að mælingar á mengun frá stóriðju þar séu í höndum óháðra aðila. Hún sat í pallborði á íbúafundi um deiliskipulagsbreytingu og íbú- akosningu vegna hennar í Reykja- nesbæ á dögunum. „Ég vil vara bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ við því að treysta Umhverfisstofnun og öðrum eftirlitsstofnunum fyrir framtíð bæjarbúa. Bæjarfulltrúar virðast halda að iðjuver í Reykja- nesbæ muni þurfa að lúta strang- ara eftirliti vegna mengunar en á Grundartanga. Umhverfisstofnun er nýbúin að senda frá sér tillögu að nýju starfsleyfi fyrir Norðurál á Grundartanga og þar er allt utan- umhald vegna mengunarmælinga lagt í hendur iðjuversins,“ segir hún. Ragnheiður segir mikilvægt að íbúar Reykjanesbæjar þekki og geti tekið mið af reynslu annarra af stóriðju. Fjallað var um umhverfisáhrif Norðuráls á Grundartanga í Stund- inni 7. nóvember síðastliðinn. Þar kemur fram að í starfsleyfi Norður- áls sé kveðið á um að fyrirtækið sjái sjálft um vöktun og rannsóknir á umhverfisáhrifum sínum og leggi til hvernig sú vinna fari fram. Íbú- ar á svæðinu hafa lengi gagnrýnt fyrirkomulagið og hefur sveitar- stjórn Hvalfjarðarsveitar nú tekið undir þá gagnrýni. Krafa þeirra er samhljóða; að óháðir aðilar haldi alfarið utan um mælingar vegna umhverfisvöktunar. Útblástur frá álverinu á Grundartanga á öðru en brennisteinstvíoxíði og brenni- steinsvetni, er aðeins mældur í sex mánuði á ári, frá apríl og fram í október utan þynningarsvæðanna. Á næstunni verður starfsleyfi Norðuráls endurnýjað og hefur sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar krafist þess að mælingar flúors fari fram allt árið. Árið 2006 slapp mikið magn eitur- efna úr álveri Norðuráls á Grundar- tanga og frétti Ragnheiður ekki af því fyrr en um 18 mánuðum síðar, fyrir tilviljun í spjalli við dýralækni. „Það var enginn á svæðinu látinn vita. Umhverfisstofnun þagði yfir þessu,“ segir hún. Þau svör fengust frá Reykjanesbæ að þar verði mæl- ingar allt árið og er gert ráð fyrir að hægt verði að fylgjast með stöðunni á heimasíðu Umhverfisstofnunar. Reykjanesbær hefur farið fram á að vera virkur aðili í eftirliti á vöktun- inni og verður ásamt kísilverunum og Umhverfisstofnun í samráðshóp þar sem farið er yfir niðurstöður mælinga. Bæjaryfirvöld í Reykja- nesbæ hafa farið fram á að fá að vita ef mengunaróhöpp verða. Suðurnesjamaður vikunnar Er svakalegur bakari Dalrós Jóhannsdóttir er Suðurnesjamaður vikunnar. Hún hefur staðið vaktina í Skóbúðinni í Reykja- nesbæ undanfarin 3 ár. Nú er að fara í hönd mesti annatími ársins hjá Dalrósu eins og hjá flestum öðrum kaupmönnum á landinu. Fullt nafn: Lína Dalrós Jóhannsdóttir Aldur: 46 ára Fjölskylda: Gift og á 3 börn Áhugamál: Fjölskyldan, ferðalög og að elda góðan mat. Uppáhalds bók: Karitas og Óreiða á striga. Fannst líka mjög gaman að lesa bókina Bernsku- dagar eftir föðurbróðir minn, Óskar Jóhannsson. Fyrsta bernskuminningin: Eitthvað að dúllast með mömmu á Hraunsveginum. Leyndur hæfileiki: Er svakalegur bakari. Gæludýr: Dóttir mín og tengdasonur eiga labrador tíkina París sem kemur stundum í heimsókn. Uppáhalds nammi: Finnst eiginlega allt nammi gott. Nýj- asta æðið er súkkulaði popp. Fallegasta náttúruperlan á Suðurnesjum: Það eru mjög margar fallegar nátt- uruperlur á suðurnesjum. Reykja- nesvitinn og svæðið í kring er fallegt. ATVINNA Starfsmaður óskast í útkeyrslu og afgreiðslu á Fitjabakka 2 - 4. Vinnutími frá kl. 12:00 til 18:00. Umsóknareyðublöð eru á staðnum einnig er hægt að sækja um á steinar@olis.is Æskilegt að umsækjandi sé ekki yngri en 20 ára. s. 511-1141101 ReykjavíkLaugavegi 61 ● Allar bestu hárvörurnar á einum stað ● Pantaðu í netverslun okkar og fáðu sent heim ● Úrval af fallegum jólagjöfum www.sapa.is Skólamatur auglýsir eftir viðhaldsmanni til starfa. Um er að ræða 100% stöðugildi. Helstu verkefni: • Viðhald og umsjón fasteigna, tækja og búnaðar, m.a. bifreiða. • Umsjón með lager. • Vinnuvernd og öryggismál. Hæfniskröfur: • Iðnmenntun sem nýtist í starfi er kostur en reynsla af framkvæmdum og almennu viðhaldi er nauðsynleg. • Samskipta- og skipulagshæfni. Fyrirspurnir og umsóknir berist til Fannýjar Axelsdóttur mannauðsstjóra á fanny@skolamatur.is eða í síma 420 2500. Umsóknarfrestur er til og með 15. desember 2015. Skólamatur er fjölskylduvænn vinnustaður sem starfar á Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu. Viðhaldsmaður Hollt, gott og heimilislegt Sími 420 2500 I skolamatur@skolamatur.is skolamatur.is

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.