Víkurfréttir - 03.12.2015, Side 10
10 fimmtudagur 3. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR
Flugakademía Keilis hefur samið við TRU Flig ht Train
ing Ice land um aðgang að flug
hermi félagsins fyrir þjálfun
atvinnuflugmannsnemenda
skólans í áhafnarsamstarfi
(MCC). Þjálfunin fer fram í full
komnasta flughermi á landinu
sem er staðsettur á Flugvöllum
í Hafnarfirði og nýtist meðal
annars við þjálfun flugmanna
Icelandair.
Flughermirinn er af gerðinni
B757 „Level D” og er rekinn af
fyrirtækinu TRU Simulation and
Training og er hann nákvæm
eftirlíking af stjórnklefa Boeing
757 flugvélar eins og Icelandair
notar í sínum flugrekstri. Í flug-
herminum er hægt að kalla fram
öll helstu landsvæði í heiminum í
gegnum gagnagrunn sem heldur
utan um alla grafík sem birtist á
fullkomnum myndvörpum. Hægt
er að kalla fram öll helstu veður-
skilyrði, stilla inn krefjandi að-
stæður og ókyrrð, auk þess sem
líkja má eftir helstu bilunum sem
geta komið upp á en með því geta
flugmenn látið reyna á færni sína.
Þrautreyndir flugmenn munu
koma að þjálfun nemenda í
áhafnarsamstarfinu, meðal ann-
ars Kári Kárason (þjálfunarflugs-
tjóri hjá Icelandair), Arnar Már
Baldvinsson (flugstjóri hjá Icel-
andair), Arnar Jökull Agnarsson
(flugstjóri hjá Icelandair), Tómas
Beck (flugmaður hjá Icelandair)
og Friðrik Ólafsson (flugstjóri hjá
WOW air).
Snorri Páll Snorrason, skóla-
stjóri Flugakademíu Keilis og
Guðmund ur Örn Gunn ars son,
fram kvæmda stjóri TRU Flig ht
Train ing Ice land, skrifuðu undir
samninginn 20. nóvember síð-
astliðinn. Við það tækifæri gafst
nemendum í atvinnuflugmanns-
námi Keilis kostur á að skoða
flugherminn og húsakynni TRU,
ásamt því að fá upplýsingar um
fyrirkomulag námsins. Met-
fjöldi nemenda stundar nú nám
við Flugakademíu Keilis og mun
samningurinn þýða að nemendur
skólans geta sótt enn fjölbreyttari
þjálfun í fullkomnasta tækjabún-
aði á landinu.
Nánari upplýsingar um flugnám
í Flugakademíu Keilis má nálgast
áflugakademia.is.
Nemendur Keilis fá þjálfun í
fullkomnasta flughermi Íslands
-fréttir pósturu vf@vf.is
Úr flugherminum.
Vinna saman að styrkingu
ímyndar Reykjaness
SAR, samtök atvinnurekenda á Reykjanes, Samband sveitar
félaga á Suðurnesjum og Mark
aðsstofa Reykjaness hafa ákveðið
að vinna saman að styrkingu
ímyndar Reykjaness sem búsetu,
atvinnu og áfangastaðar.
Ákveðið hefur verið að ganga til
samstarfs við HN markaðssam-
skipti og munu forsvarsmenn fyrir-
tæksins kynna niðurstöðu könn-
unar um viðhorf til svæðisins.
„Þetta er sennilega í fyrsta skiptið
sem atvinnulífið með stærstu fyrir-
tækin á Reykjanesi í fararbroddi,
öll sveitarfélögin og markaðs-
stofan ætla sér í samhent átak til
að bæta ímyndarsköpun hér á
svæðinu og marka einnig þáttaskil
í samvinnu milli aðila sem gagnast
okkur öllum,“ segir Guðmundur
Pétursson, formaður SAR, Sam-
taka atvinnurekenda á Reykjanesi
en samtökin voru stofnuð fyrir
fimm árum síðan. Berglind Krist-
insdóttir, framkvæmdstjóri Sam-
bands sveitarfélaga á Suðurnesjum
tók undir orð Guðmundar og var
ánægð með fyrstu skrefin í þessu
samstarfi.
Í dag, fimmtudag kl. 12, verður
opinn fundur í Hljómahöll þar sem
spurt verður: Hver er staðan? Hvar
liggja tækifæin á Suðurnesjum
og hverjar eru hindranir. Meðal
frumælenda eru Skúli Mogensen,
eigandi Wow flugfélagsins. HN
markaðssamskipti munu kynna
niðurstöður könnunar um ímynd
Suðurnesja og Tómas Þór Eiríks-
son, framkvæmdastjóri nýsköp-
unarfyrirtækisins Codlands mun
ræða um nýsköpun í sjávarútvegi.
Kristján Ásmundsson skólameist-
ari FS mun fjalla um starfsnám/
iðnnám á Suðurnesjum og loks
mun Magnea Guðmundsdóttir
kynningarstjóri Bláa Lónssins segja
frá upplifun gesta og mikilvægi
mannauðs.
Fundarstjóri verður Berglind Krist-
insdóttir framkvæmdastjóri Sam-
bands sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Fulltrúar fyrirtækja á Reykjanesi á fundi
Samtaka atvinnurekenda á Reykjanesi
eftir undirritun samningsins.
Á myndinni eru fulltrúar frá Flugakademíu Keilis og TRU Flight
Training Iceland fyrir framan flugherminn í Hafnarfirði.
-aðsent pósturu vf@vf.is
Nú er að koma sá tími ársins þar sem dagsbirtunnar
nýtur sem minnst og erfitt getur
verið að greina svörtu fötin okkar
sem við flest klæðumst á þessum
árstíma. Við vitum nú öll af þessu
litla gagnsama öryggistæki sem
heitir endurskinsmerki og er gætt
þeim eiginleika að við sjáumst
mikið fyrr í myrkrinu, Þau eru til
í ýmsum útgáfum, lítil og stór, til
að hengja utan á okkur, til að líma
á flíkur og til að klæða okkur
í. Einnig er til úrval af þessum
mikilvægu ör yggistækjum á
dýrin okkar.
Á heimasíðu Samgöngustofu eru
ýmsar upplýsingar um endurskins-
merki og m.a. er þar sú staðreynd
að ökumaður getur greint þann
sem er með endurskinmerki í um
125 metra fjarlægð meðan að sá
sem er ekki með endurskinsmerki
sést varla fyrr en keyrt er fram hjá
honum (og sést það vel ef hlekkur-
inn hér er skoðaður. http://www.
samgongustofa.is/um/frettir/um-
ferdarfrettir/nr/241 )
Slysavarnadeildin Dagbjörg í
Reykjanesbæ hvetur bæjarbúa til
að vera duglega að nota þetta litla
öryggistæki sem er svo ótrúlega
áhrifamikið.
Það er svalt að vera upplýstur
2015
Skafmiðaleikur Víkurfrétta
og verslana á Suðurnesjum
2015
Skafmiðaleikur Víkurfrétta
og verslana á Suðurnesjum
2015
Skafmiðaleikur Víkurfrétta
og verslana á Suðurnesjum
2015
Skafmiðaleikur Víkurfrétta
og verslana á Suðurnesjum
2015
Skafmiðaleikur Víkurfrétta
og verslana á Suðurnesjum
ÞAÐ GETUR FYLGT ÞVÍ MIKIL LUKKA AÐ
GERA JÓLAINNKAUPIN Á SUÐURNESJUM