Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.12.2015, Síða 25

Víkurfréttir - 03.12.2015, Síða 25
25VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 3. desember 2015 Kertatónleikar Karlakórs Keflavíkur XuAðventunni fylgja ýmsir siðir sem hafa skapast, bæði hjá einstakl­ ingum, fyrirtækjum og hjá félagasamtökum. Einn sá siður sem hefur verið áberandi á aðventunni í menningarlífi Suðurnesjamanna eru Kertatónleikar Karlakórs Keflavíkur sem þetta árið verða haldnir í Ytri­Njarðvíkurkirkju miðvikudaginn 9. desember klukkan 20:30. Gestakórar verða að þessu sinni Söngsveitin Víkingar sem syngja undir stjórn Jóhanns Smára Sævarssonar og Barnakór Sandgerðis sem Sigurbjörg Hjálmarsdóttir stjórnar. Miðasala fer fram hjá kór­ félögum Karlakórsins og við innganginn. Aðeins verða einir tón­ leikar og þá má enginn láta fram hjá sér fara. Umgjörðin er alltaf mjög hátíðleg því kirkjan er prýdd kertaljósum og svo er efnisskráin afar fjölbreytt samkvæmt venju. Karlakór Keflavíkur hefur átt starfsamt haust því í október stóð kórinn fyrir Kötlumóti sem heppnaðist afar vel og var umgjörðin sú allra glæsilegasta á slíku móti og tónleikarnir allir mjög vel heppnaðir. Að loknu karlakóramótinu tók nýr stjórnandi við taumunum hjá kórnum, Stefán E. Petersen og hefur hans helsta verkefni verið að undirbúa kór- inn undir Kertatónleikana. Honum til aðstoðar á tónleikunum verður eiginkona hans Erla Gígja Garðarsdóttir óperusöngkona. Lionsklúbbur Njarðvíkur veitir styrki XuFyrsta sunnudag í aðventu hófst formleg sala á jólahappdrætt­ ismiðum hjá Lionsklúbbi Njarðvíkur í Nettó í Krossmóa. Af þessu tilefni veitti Lionsklúbbs Njarðvíkur styrki upp á 1.220.000 krónur til verkefna á Suðurnesjum. Styrkirnir eru veittir af fé sem safnast í árlegu bílahappdrætti klúbbsins. Brunavarnir Suðurnesja fengu 300.000 króna styrk til kaupa á þremur spjaldtölvum sem settar verða í sjúkrabifreiðar Brunavarna Suðurnesja. Við styrknum tók Jón Guðlaugsson. Velferðarsjóður Suðurnesja fékk 250.000 krónur frá klúbbnum. Við styrknum tók Þórunn Þórisdóttir. Þjónustumiðstöð eldri borgara á Nesvöllum fékk 320.000 króna styrk til kaupa á skjávarpa. Við styrknum tók Ása Eyjólfsdóttir. Fjölsmiðjan á Iðavöllum fékk 100.000 króna styrk. Við styrknum tók Þorvarður Guðmundsson. Bjöllukór Tónlistarskóla Reykjanesbæjar fékk 100.000 krónur. Við styrknum tók Haraldur Árni Haraldsson. Einnig veitti klúbburinn styrki til einstaklinga að upphæð 150.000 krónur. Lionsfélagar hvetja fólk að kíkja við í Nettó og tryggja sér miða. - alltaf eitthvað nýtt í hverri viku! SJÓNVARP VÍKURFRÉTTA Sjónvp Vík é a fimmtudagskvöld kl. 21:30 og á vf.is - Guðmundur Sigurðsson segir áhorfendum frá alþjóðlegu verkefni sem byggir á samstarfi Special Olympics og lögreglumanna Löeglan hljóp með kyndil um Ke avík Á dagskrá í kvöld á Í Þaargjörð í Oceraklúnum    - amerísk matarveisla í gömlu herstöðinni ... og allt það helsta í fréttum þessarar viku frá Suðurnesjum - segir verðlaunarithöfundurinn Jón Kalman Stefánsson í áhugaverðu viðtali við Sjónvarp Víkurfrétta. „Óþai að ríst við bók“ HD á vf.is HD á vf.is

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.