Víkurfréttir - 04.05.2016, Qupperneq 12
12 miðvikudagur 4. apríl 2016VÍKURFRÉTTIR
Bátur, vef ja
eða salat
Stór bátur 999 kr.
599 kr.
Lambakjöt, óðalsostur, rauðlaukur, sveppir,
sterkt sinnep og BBQ-sósa
Bátur vikunnar
PI
PA
R
\T
BW
A
•
S
ÍA þú velur bát,
veu eða salat
quiznos.is
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ:
NORÐLINGAHOLTI · GULLINBRÚ
ÁLFHEIMUM · SÆBRAUT · MJÓDD
GARÐABÆ · MOSFELLSBÆ
LANDSBYGGÐIN:
BORGARNESI · AKRANESI
AKUREYRI · REYÐARFIRÐI
KEFLAVÍK · SELFOSSI · HELLU
ÍSLENDINGUR
Lambakjöt
2.–8. MAÍ
599kr.
Júlíus Viggó Ólafsson, nemandi í 9.
BB í Grunnskólanum í Sandgerði,
komst alla leið í lokakeppni Pangea
Stærðfræðikeppninnar sem haldin
var í Reykjavík, laugardaginn 30. apríl
síðastliðinn.
Júlíus Viggó tók þátt í fyrstu umferð
keppninnar ásamt þremur bekkjar-
félögum sínum í Sandgerði. Tveir
nemendur komust áfram í aðra um-
ferð og eins og áður sagði komst Júlíus
Viggó alla leið í þriðju umferð og tók
þátt í lokahátíðinni. Um það bil 1000
íslenskir nemendur úr 9. og 10. bekk
úr 45 skólum vítt og breytt af landið
tóku þátt. Árangur hans var glæsi-
legur, hann hafnaði í 17 sæti en aðeins
35 nemendur komust áfram í loka-
keppnina í hvorum aldursflokki.
Pangea er þekkt keppni sem fjölmörg
ungmenni frá 20 Evrópulöndum taka
árlega þátt í og núna, í fyrsta sinn á Ís-
landi. Yfir 400 þúsund nemendur víðs-
vegar að úr Evrópu tóku þátt í Pangea
stærðfræðikeppninni í fyrra og virð-
ist fjöldi þátttakanda hafa tvöfaldast
þetta ár. Pangea Stærðfræðikeppni er
skemmtileg og krefjandi keppni fyrir
nemendur í áttunda og níunda bekk.
Í þessum keppnum koma saman nem-
endur með svipuð áhugamál og hæfi-
leika, sem gerir þeim kleift að hittast,
upplifa vinskap, auka innblástur og
hvatningu í mun meiri mæli en þessir
nemendur upplifa að jafnaði í dæmi-
gerðum skólastofum. Auk þess að
hvetja til áhuga á stærðfræði aðstoða
keppnir sem þessi ungt fólk við undir-
búning fyrir stærri keppnir og hjálpa
þeim við að þróa getu sína til að hugsa
um og leysa flókin stærðfræðidæmi.
Með Pangea Stærðfræðikeppninni
vilja skipuleggjendur sýna það að
stærðfræði er skemmtileg og spenn-
andi. Í þessari keppni segja þeir að
„Óttinn við stærðfræði er ástæðulaus
og hver sem er getur notið velgengni”.
Skólaþing um heimanám sem haldið
var í Grunnskóla Grindavíkur þann
13. apríl sl. tókst sérlega vel. Þingið var
haldið af stjórnendum skólans ásamt
skólaráði og mun afrakstur af um-
ræðum og þeirri vinnu er fram fór
verða leiðarljós í stefnumótun heima-
náms við skólann, segir í tilkynningu
frá Grunnskóla Grindavíkur.
Halldóra K. Magnúsdóttir skólastjóri
byrjaði þingið, bauð alla velkomna og
kynnti til leiks stjórnanda þingsins,
Önnu Kristínu Sigurðardóttur dósent
við Menntavísindasvið Háskóla Ís-
lands. Þinggestir voru á mjög breiðum
aldri, samsettir af nemendum frá 2.
til 10. bekkjar, foreldrum og starfs-
fólki skólans. Í heildina um 70 til 80
manns. Margar áhugaverðar tillögur
komu fram jafnt frá yngri og eldri
þátttakendum. Heimanám var rætt
frá öllum hliðum, kostir þess og gallar
ígrundaðir. Anna Kristín kallaði eftir
skýrum tillögum þinggesta til að nýta
í áframhaldandi vinnu, stýrði þinginu
af kostgæfni, fór yfir allt það er rætt
var í hópunum og gaf einnig kost á
frekari spurningum og umræðum í
lokin.
Á miðju þingi var tekið matarhlé þar
sem borin var fram dýrindis súpa og
brauð frá veitingastaðnum Hjá Höllu
og mæltist einnig vel fyrir hjá ungu
kynslóðinni að fá íspinna í eftirrétt!
Nemendur á öllum aldursstigum voru
virkir og áhugasamir og skólanum til
mikils sóma.
Geopark-vika á Reykjanesi
6. til 12. júní
■ Reykjanes UNESCO Global Geopark stendur fyrir sinni fjórðu Geopark-
viku 6. til 12. júní næstkomandi. Markmið vikunnar er að bjóða upp á áhuga-
verða viðburði sem endurspegla náttúru og mannlíf á Reykjanesskaga.
Allir sem hafa áhuga á að taka þátt í dagskráinni, setja upp viðburði eða koma
viðburðum á dagskrá er bent á að hafa samband við Eggert Sólberg Jónsson,
forstöðumann Reykjanes Geopark á netfangið eggert@heklan.is fyrir 15. maí
næstkomandi.
Sandgerðingur í hópi fremstu
stærðfræðinga á landinu
Vel heppnað skólaþing um heimanám
Ragnar Örn Pétursson fyrrverendi
íþróttafulltrúi Reykjanesbæjar lést á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja föstu-
daginn 29. apríl eftir skammvinna
baráttu við krabbamein.
Ragnar Örn starfaði
s em íþróttafu l l t r ú i
Reykjanesbæjar í nær
20 ár. Hann var ötull
þátttakandi í íþrótta-
starfi Reykjanesbæjar
og átti sæti í íþróttaráði
Keflavíkur frá 1986 til
1998. Hann var for-
maður Íþróttabanda-
lags Keflavíkur frá árinu
1994 til 1998. Ragnar
Örn var varabæjarfull-
trúi fyrir Sjálstæðis-
flokkinn í Keflavík frá 1990 til 1994 og
starfaði fram til dánardags fyrir Sjál-
stæðisflokkinn í Keflavík og var for-
maður Fulltrúaráðs flokksins. Ragnar
Örn var formaður Starfsmannafélags
Suðurnesja í 14 ár frá 1999 til 2013 og
sat þau ár einnig í stjórn BSRB. Ragnar
Örn var virkur með-
limur Kiwanis-hreyf-
ingarinnar og gegndi
þar fjölmörgum trúnað-
arstörfum, þar á meðal
var hann umdæmis-
stjóri hreyfingarinnar á
Íslandi og í Færeyjum
frá árinu 2011 til 2012
og sat í Evrópustjórn
þann tíma.
Ragnar Örn lætur eftir
sig eiginkonu og fjögur
uppkomin börn og 10
barnabörn
Útför verður frá Keflavíkurkirkju
miðvikudaginn 4. maí klukkan 13.
Ragnar Örn Pétursson látinn
ATVINNA
Óskum eftir handflakara.
Upplýsingar í síma 896 9830
eða elfar@flatfiskur.is