Víkurfréttir - 04.05.2016, Blaðsíða 30
3ÁSBRÚ
„Við tókum yfir rekstur setursins árið 2011 þegar
Atvinnuþróunarfélag Suðurnesja varð til og höfum
unnið að þróun þess í góðu samstarfi við Kadeco,“
segir Dagný en frumkvöðlasetrið opnaði formlega
árið 2008. Setrið þjónar frumkvöðlum og sprotafyr-
irtækjum á öllum stigum, allt frá þeim sem eru að
stíga sín fyrstu skref og til þeirra sem komnir eru í
rekstur, auk stærri fyrirtækja sem vilja efla sig með
nýsköpun og vöruþróun.
„Þetta var mjög spennandi verkefni og mikil áskor-
un í upphafi þar sem fjölga þurfti fyrirtækjum í
setrinu til þess að ná þessari sérstöku dýnamík sem
blómstrar í frumkvöðlasetrum en í dag er komin
ákveðin kjölfesta í reksturinn og fjöldi fyrirtækja er
venjulega nokkuð vel yfir 20, og alltaf mikil hreyfing
í húsinu sem er að mínu mati jákvætt,“ segir Dagný
en biðlisti er eftir aðstöðu í smiðjurými sem eru frá
50 – 160fm en að auki er hægt að leigja skrifstofur og
stærri rými í skrifstofuhluta sem hentar frekar þeim
sem ekki eru í framleiðslu.
Eldey er bæði vinnustaður og samfélag
„Eldey er bæði vinnustaður og samfélag. Það er svo
mikið af frumkvöðlum sem sitja heima í eldhúsi,
einir með sína hugmynd. Það er svolítið erfitt ef
þetta á að blómstra. Um leið og þú kemur inn í
svona umhverfi, ekki bara húsnæði, heldur samfélag
annarra frumkvöðla, þá verður allt miklu opnara. Þú
nærð að ræða hugmyndina þína við hina sem hérna
eru og þá oft fara hlutirnar að gerast. Við reynum því
að skapa umgjörð sem ýtir undir þetta samstarf og
þetta tengslanet sem hér skapast auk þess að standa
fyrir sameiginlegum viðburðum og kynningum á
þeim fyrirtækjum sem hér starfa.“
Hlutverk Eldeyjar er að sögn Dagnýjar að skapa
þekkingarumhverfi, aðstöðu og umgjörð fyrir frum-
kvöðla til að vinna að nýsköpun og veita þeim fag-
lega þjónustu og stuðning við framgang hugmynda
sinna. Eldey býður leigu til frumkvöðla á lágu verði
og þar er veitt ráðgjöf s.s. við gerð viðskiptaáætlunar,
styrkumsóknir og markaðssetningu en einnig stend-
ur setrið reglulega fyrir fræðslu og fyrirlestrum sem
hefur verið vel sóttis.
Vel sótt fræðsla
„Við höfum boðið upp á reglulega hádegisfyrir-
lestra í húsinu um allt það sem snýr að nýsköpun
og sprotafyritækjum auk námskeiða þar sem farið
er ítarlega í hlutina. Þetta hefur verið vel sótt svo
það verður framhald á enda gott að fá nýtt fólk í
húsið og kynna það þannig um leið auk þess sem
fyrirtækin í setrinu eru dugleg að nýta sér þessa
fræðslu“, segir Dagný en þessa dagana býðst einmitt
áhugasömum að taka þátt í námskeiði Íslandsstofu
um markaðsstarf á netinu í samstarfi við Markaðs-
stofu Reykjaness.
Mikilvægt samstarf við Keili
Eldey er stutt frá Keili, miðstöð vísinda, fræða og at-
vinnulífs á Ásbrú og hafa nemendur og frumkvöðlar
þaðan nýtt sér aðstöðuna bæði á meðan á námi
stendur og eins til að fylgja eftir sprotaverkefnum
að loknu námi. Eitt af þessum sprotafyrirtækjum
er Geosilica sem framleiðir heilsuvörur úr kísli sem
unnin er úr affallsvatni jarðvarmavirkjana og annað
er Mekano en þess má geta að bæði fyrirtækin hafa
unnið til verðlauna í Gullegginu og verið tilnefnd til
Nordic Startup Awards.
Hakkit – stafræn smiðja
„Þá má nefna annað skemmtilegt verkefni sem orðið
hefur til í samstarfi við Keili en það er stafræna
smiðjan okkar hér í Eldey, Hakkit – en hún er knúin
afram af miklum áhuga tæknifræðinga sem út-
skrifaðir eru úr Keili og eins nemum þar. Þar gefst
frumkvöðlum í húsinu, og á öllum Suðurnesjum,
tækifæri til þess að spreyta sig á stafrænni tækni en í
smiðjunni er þrívíddarprentari, cnc fræsari og laser-
skeri svo eitthvað sé nefnt auk búnaðar til einfaldrar
forritunar sem gaman verður að prófa með nemend-
um á svæðinu. „Hakkit er opið þrisvar sinnum í viku
og leiðbeinandi á staðnum en þar er jafnframt boðið
upp á námskeið í hönnunar- og tilraunasmiðju í
samstarfi við Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum
og tómstundasmiðju fyrir unga fiktara.
„Þarna erum við að búa til forritara framtíðar-
innar og hönnuði sem nýta sér stafræna tækni og
möguleikarnir eru endalausir. Markmiðið er að efla
tæknilæsi og þekkingu á persónumiðaðri fram-
leiðslu og efla nýsköpun og tæknivitund. Ein leið
til þess er til dæmis að bjóða ungum nemanda að
taka í sundur tölvu og skoða hvernig hún virkar,“
segir Dagný og leggur áherslu á að verkefni Eldeyjar
sé einmitt að skapa umgjörð og veita aðgang að
þekkingu og stuðningi en framtíðin muni leiða í ljós
hver ávinningurinn verður fyrir atvinnuþróun og
nýsköpun á Suðurnesjum.
„Við erum að byggja upp litla sprota, margir þeirra
verða aldrei fullvaxta, en samkvæmt nýsköpunar-
fræðum getum við verið sátt ef 10% þeirra komast á
legg. Þar búa gríðarleg tækifæri og það er mikilvægt
að leyfa fjölbreytninni að blómstra og gefa sem
flestum tækifæri til þess að vinna að sinni viðskipta-
hugmynd og styðja þá og efla á leiðinni. Það má því
líkja Eldey við gróðurhús, við þurfum að vera dugleg
að vökva og skapa góð uppvaxtarskilyrði – mjór er
mikils vísir.“
[ F R U M K V Ö Ð L A S E T R I Ð Á Á S B R Ú ]
gróðurhús
ÞAÐ MÁ LÍKJA ELDEY VIÐ
FRUMKVÖÐLASETRIÐ Á ÁSBRÚ hóf starfsemi sína árið 2008
og hefur skapað umgjörð og vettvang fyrir fjölda nýsköpunarfyrirtækja
sem hafa þar stigið sín fyrstu skref í þróun sinnar viðskiptahugmyndar.
Setrið er rekið af Heklunni, atvinnuþróunarfélagi Suðurnesja, í samstarfi
við KADECO Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar sem er eigandi húsnæðis-
ins en verkefnastjóri er Dagný Gísladóttir.
„Það má því líkja Eldey við
gróðurhús, við þurfum að
vera dugleg að vökva og
skapa góð uppvaxtarskil-
yrði – mjór er mikils vísir.“
Tvö fyrirtæki í Eldey hafa
unnið til verðlauna í Gull-
egginu og verið tilnefnd til
Nordic Startup Awards.
- segir Dagný Gísladóttir verkefnastjóri í Frumkvöðlasetrinu á Ásbrú