Læknablaðið - 01.05.2017, Síða 4
216 LÆKNAblaðið 2017/103
F R Æ Ð I G R E I N A R
5. tölublað ● 103. árgangur ● 2017
219
Stefán Karlsson
Góður árangur
erfðalækninga
Fullyrða má að genalækningar
hafa tekist vel við marga sjúk-
dóma og má búast við góðum
framförum á næsta áratug
með notkun veiruvektora.
Nýlega var lýst aðferðum við
að gera minni breytingar á
erfaefninu með tækni þar sem
unnt er að gera við stökk-
breytingar.
223
Svandís Hálfdánardóttir, Kristín Lára Ólafsdóttir, Valgerður Sigurðardóttir
Tíðni einkenna og meðferð þeirra á síðasta sólarhring lífs hjá
deyjandi sjúklingum á Landspítala og hjúkrunarheimilum
Að greina yfirvofandi andlát er bæði flókið og erfitt ferli en er fyrsta skrefið í að skipu-
leggja og veita góða meðferð við lok lífs. Lækni ber að meta og greina sjúkdóms-
ástand sjúklings og hvort unnt sé að breyta því til hins betra. Mikilvægt er að teymið
sem sinnir sjúklingi sé sammála um markmið meðferðar og þeirri meðferðaráætlun
sem lagt er upp með. Markmiðið með þessari rannsókn var að kanna tíðni algengra
einkenna á síðasta sólarhring lífs, lyfjafyrirmæli og lyfjagjafir við þessum einkennum.
231
Guðlaug Þórsdóttir, Elísabet Benedikz, Sigríður A. Þorgeirsdóttir,
Magnús Jóhannsson
Auka ópíóíðar, róandi lyf, svefnlyf og prótónu-
pumpuhemlar hættu á beinbrotum?
Tvo toppa má sjá í tíðni beinbrota hjá Vesturlandabúum, - hjá börnum og hjá eldri
einstaklingum. Tíðni beinbrota hjá fullorðnum fer hækkandi eftir 35 ára aldur, hækkar
áfram með vaxandi aldri og tengist beingisnun og aukinni byltuhættu. Beinbrot valda
miklum heilbrigðiskostnaði og hafa veruleg hafa áhrif á lífsgæði og lifun aldraðra
einstaklinga. Þannig eru mjaðmarbrot talin minnka lífslíkur um 10-20%, einnig hefur
verið sýnt fram á að samfallsbrot í hrygg geta aukið dánarlíkur um 19%. Í ljósi þess
hve alvarlegar afleiðingar beinbrota geta verið fyrir einstaklinginn og samfélagið er
mikilvægt að greina áhættuþætti fyrir byltur og beinbrot svo forvarnir verði mark-
vissari.
237
Þórunn Halldóra Þórðardóttir, Árni Jón Geirsson, Sif Hansdóttir
Hverfandi lungu - sjúkratilfelli
Bandvefssjúkdómar eru oft erfiðir í greiningu og flokkun enda einkennin margbreyti-
leg. Meðferð samanstendur af ónæmisbælandi lyfjum sem hafa aukaverkanir en
vegna ónæmisbælingar eru þessir sjúklingar útsettir fyrir sýkingum. Sjúkdómarnir
geta valdið hita og slappleika og erfitt að greina milli versnunar á sjúkdómnum, sýk-
inga og aukaverkana lyfja. Við lýsum tilfelli með sjaldgæfri birtingu rauðra úlfa sem
komu fram vegna lyfja (drug induced lupus) og reyndist erfitt að greina en svaraði vel
meðferð þegar greining lá fyrir.
221
Ingibjörg Guðmundsdóttir
TAVI-aðgerðir –
ósæðarlokuísetning
með þræðingartækni
Með vaxandi aldri þjóð-
ar fjölgar sjúklingum með
ósæðarlokuþrengsl og ís-
lensk rannsókn bendir til að
fjöldi þeirra muni tvöfaldast
á næstu 25 árum. Fyrsta
ósæðarlokuaðgerð var gerð
með þræðingartækni í Frakk-
landi árið 2002. Framkvæmd-
ar hafa verið yfir 300.000
TAVI-aðgerðir heiminum
síðan.
L E I Ð A R A R