Læknablaðið - 01.05.2017, Blaðsíða 11
LÆKNAblaðið 2017/103 223
Inngangur
Rúmlega 2000 manns deyja á Íslandi á hverju ári, 52% á
sjúkrahúsum, 34% á hjúkrunarheimilum en 12% deyja heima.1
Helstu dánarorsakir eru langvinnir sjúkdómar og er yfirleitt
nokkur aðdragandi að andláti. Þegar ljóst er að andlát sjúklings er
yfirvofandi er megináhersla á að draga úr einkennum og þjáningu
og tryggja að viðkomandi geti dáið með reisn.2
Ýmis einkenni sem fylgja banalegunni og eru eðlilegur hluti af
henni getur verið erfitt að meðhöndla, svo sem þreytu og lystar-
leysi, en önnur einkenni eins og verki og óróleika er hægt að með-
höndla með markvissri umönnun og meðferð.3,4 Rannsóknir síð-
ustu 20 ára sýna að allt að 2/3 deyjandi sjúklinga á síðustu viku lífs
hafa verki, lystarleysi og þreytu og rúmlega þriðjungur mæði, óró-
leika eða rugl.4,5 Verkir af ýmsum orsökum eru algengir hjá deyj-
andi sjúklingum með útbreitt krabbamein á spítala (55-95%)6 og á
hjúkrunarheimilum (37-60%)7 og og hjá þeim sem hafa aðra langt
gengna sjúkdóma eins og hjartasjúkdóm og lungnateppu (77%)8 og
heilabilun (52%).9 Óróleika hefur verið lýst hjá 35%-88% sjúklinga
á síðustu viku/dögum lífs9 og hryglu hjá 12-92%.5,10 Um helming-
ur sjúklinga með krabbamein hefur mæði á síðustu viku lífs11 en
um þriðjungur sjúklinga með heilabilun.9 Ógleði og uppköst eru
mun óalgengari í öllum sjúklingahópum. Mælt er með notkun
Inngangur: Tilgangur rannsóknarinnar er að meta tíðni 5 algengra ein-
kenna og meðferð þeirra á síðasta sólarhring lífs hjá deyjandi sjúklingum á
11 lyflækningadeildum Landspítala og 7 hjúkrunarheimilum.
Efniviður og aðferðir: Upplýsingum var safnað afturskyggnt úr skráningu
í Meðferðarferli fyrir deyjandi sjúklinga í sjúkraskrá, af lyfjablöðum og úr
lyfjafyrirmælakerfinu Therapy hjá 232 einstaklingum sem létust árið 2012.
Niðurstöður: Um helmingur einstaklinganna lést á Landspítala (n=119)
og var kynjahlutfall jafnt en 70% þeirra sem létust á hjúkrunarheimilum
voru konur. Meðferðarferli fyrir deyjandi sjúklinga var tekið í notkun í 50%
andláta á Landspítala og 58% á hjúkrunarheimilum. Í 45% tilvika var ferlið
notað í sólarhring eða skemur fyrir andlát. Algengustu einkenni á síðasta
sólarhring lífs voru verkir (51%), óróleiki (36%) og hrygla (36%). Tíðni ein-
kenna var svipuð milli stofnana og sjúkdómahópa en marktækur munur
var á óróleika hjá sjúklingum með krabbamein og sjúklingum með aðra
sjúkdóma. Tæp 81% sjúklinga voru fast á morfínskyldum lyfjum, fastir
morfínskammtar og skammtar gefnir eftir þörfum voru marktækt hærri
hjá krabbameinssjúklingum og sjúklingum á Landspítala. Fastar lyfjagjafir
við óróleika voru halóperidól (45%), díasepam (40%) og mídazólam (5%).
Scopoderm-plástur var gefinn við hryglu hjá 70% sjúklinga.
Ályktun: Töluverður fjöldi sjúklinga var með einkenni á síðasta sólarhring
lífs, bæði á Landspítala og hjúkrunarheimilum. Niðurstöðurnar benda til
þess að þörf sé á að yfirfara og bæta einkennameðferð, meðal annars
með því að aðlaga betur morfínskammta að þörfum sjúklingsins, nota
fasta skammta róandi lyfja við óróleika og nýta fleiri andkólínvirk lyf við
hryglu.
Tíðni einkenna og meðferð þeirra á síðasta
sólarhring lífs hjá deyjandi sjúklingum á
Landspítala og á hjúkrunarheimilum
Svandís Íris Hálfdánardóttir1 hjúkrunarfræðingur, Kristín Lára Ólafsdóttir2 hjúkrunarfræðingur,
Valgerður Sigurðardóttir1,2,3 læknir
morfínlyfja við verkjum og mæði, bensódíasepínum við kvíða og
óróleika, halóperidóli við óráði og morfíntengdri ógleði, andkólín-
virkum lyfjum við hryglu og metaklópramíði við ógleði.2,12
Að greina yfirvofandi andlát er bæði flókið og erfitt ferli en er
fyrsta skrefið í að skipuleggja og veita góða meðferð við lok lífs.
Lækni ber að meta og greina sjúkdómsástand sjúklings og hvort
unnt sé að breyta því til hins betra. Ef sjúklingur er álitinn deyj-
andi eru samskipti um yfirvofandi andlát mikilvæg, við sjúkling
ef við á og fjölskyldu. Þetta getur gefið þeim tækifæri til að ganga
frá málum, kveðja og undirbúa það sem koma skal. Mikilvægt er
að teymið sem sinnir sjúklingi sé sammála um markmið meðferð-
ar og þá meðferðaráætlun sem lagt er upp með.2
Meðferðarferli fyrir deyjandi sjúklinga
Í Bretlandi var þróað og tekið í notkun árið 1998 skráningar- og
leiðbeiningarform til að nota þegar sjúklingur er deyjandi. Til-
gangurinn var að flytja vinnulag sem fram fer á líknarheimilum
(hospice) yfir á aðrar stofnanir. Skráningar- og leiðbeiningarformið
sem kallað hefur verið Meðferðarferli fyrir deyjandi sjúklinga (Liver-
pool Care Pathway for the dying patient), hefur verið í notkun í
fleiri löndum utan Bretlands, meðal annars í Ástralíu, Svíþjóð, Nor-
egi og á Íslandi frá 2008. Framkvæmdastjórn Landspítala ákvað að
innleiða ferlið árið 2010 og síðar hófst innleiðing á nokkrum hjúkr-
unarheimilum. Tilgangur með notkun Meðferðarferlisins er að
bæta umönnun og meðferð deyjandi sjúklinga á síðustu klukku-
stundum/dögum lífs og efla stuðning við aðstandendur.3 Ferlið er
tekið í notkun þegar sjúklingur er metinn deyjandi af þverfaglega
R A N N S Ó K N
Á G R I P
1Líknardeild, 2líknarráðgjafarteymi, 3heimahlynning Landspítala.
Fyrirspurnum svarar Svandís Íris Hálfdánardóttir, svaniris@landspitali.is
https://doi.org/10.17992/lbl.2017.05.135
Greinin barst blaðinu 12. apríl 2016, samþykkt til birtingar 27. mars 2017.
Fagmenntað fólk í þína þágu
Á heilbrigðissviði Eirbergs á Stórhöfða 25 starfar hópur fólks með sérþekkingu og mikla
reynslu. Heilbrigðismenntað starfsfólk býr yfir víðtækri fagþekkingu á vörum og búnaði
en metnaður er lagður í að greina þarfir viðskiptavina og koma til móts við óskir þeir-
ra. Við veitum heilbrigðisstofnunum, fagfólki og einstaklingum faglega ráðgjöf og góða
þjónustu.
Við bjóðum fagfólki, og skjólstæðinga þeirra, velkomið í nýjan sýningarsal okkar stað-
settan á Stórhöfða en þar eru til sýnis, og prófunar, mörg þau hjálpartæki og vörur sem
heilbrigðissvið hefur upp á að bjóða. Sem áður bjóðum við einnig upp á að bóka tíma í
lokuðum viðtalsherbergjum og í göngugreiningu sjúkraþjálfara í sérhönnuðu rými.
Markmið okkar eru að efla heilsu og auka lífsgæði, auðvelda störf og daglegt líf, stuðla
að vinnuvernd og hagræði.
Heilbrigðissvið Eirbergs er staðsett að Stórhöfða 25 og er fagþjónusta veitt alla virka
daga frá kl. 9:00 til 16:30. Tímapantanir eru í síma 569 3100.
Rakel Dögg
sjúkraþjálfari
Sigrún
sjúkraþjálfari
Arna Mekkín
sjúkraþjálfari
Elfa Björt
þroskaþjálfi
Edda
hjúkrunar-
fræðingur
Jóhanna
iðjuþjálfi
Katrín Klara
hjúkrunar-
fræðingur
Gígja
hjúkrunar-
fræðingur
Magnea Freyja
heilbrigðis-
verkfræði
Heilbrigðissvið
Medical & Healthcare
Eirberg Heilsa, Stórhöfða 25 • Eirberg Lífstíll, Kringlunni 1. Hæð • Sími 569 3100 • eirberg.is