Læknablaðið - 01.05.2017, Blaðsíða 34
246 LÆKNAblaðið 2017/103
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
Enginn verður óbarinn biskup er oft
sagt og það á við um fleiri stéttir en þá
geistlegu. Þótt beinar líkamsmeiðingar
séu kannski ekki lengur á námskrám
gildir það um lækna að nám þeirra er
bæði langt og strangt. Eftir 6 ára almennt
læknanám tekur við eins árs starfsnám
– kandídatsár er það kallað – og að því
loknu hlýtur viðkomandi almennt lækn-
ingaleyfi. Þá er sérnámið eftir og það
tekur mismörg ár, en sjaldan færri en
fimm, oft talsvert fleiri.
En hvers vegna er verið að telja upp
þessa sjálfsögðu hluti sem allir lesendur
blaðsins þekkja út í þaula? Jú, það er gert
vegna þess að eftir almennt læknanám
er framhaldið komið undir eigi færri en
þremur nefndum sem skipaðar eru af
opinberum aðilum. Í nýrri reglugerð frá
2015 voru þessar nefndir skilgreindar og
síðan hafa þær verið að endurskipuleggja
og yfirfara þetta nám. Læknablaðið ætlar
að kynna starf þeirra í þessu tölublaði og
tveim næstu og við byrjum á byrjuninni.
Kennum þeim að vera læknar
Inga Sif Ólafsdóttir lungnalæknir er for-
maður þeirrar nefndar sem heldur utan
um starfsnám læknakandídata. Í spjalli
við Læknablaðið sagði hún að nefndin hefði
verið skipuð sumarið 2015 en þá hefði ver-
ið búið að ganga frá öllu varðandi starfs-
nám kandídata á komandi vetri. Nefndar-
menn hófust þá handa við að undirbúa
kandídatsárið 2016-2017 samkvæmt til-
mælum reglugerðarinnar.
– Reglugerðin lagði okkur í fyrsta lagi
til það verkefni að búa til nýja marklýs-
ingu fyrir starfsnámið. Við á Landspítala
kynntum okkur hvernig farið er að í
löndunum í kringum okkur og ákváðum
að taka marklýsingu frá Bretlandi til fyr-
irmyndar. Við völdum hana frekar en nor-
rænar marklýsingar vegna þess að okkur
fannst hún nær þeim hugmyndum sem
við höfðum um námið. Marklýsing okkar
leggur áherslu á að kenna kandidötunum
að starfa sem læknar, hefur fagmennsku
og öryggi sjúklingsins að leiðarljósi og
er með vel skilgreindar hæfnikröfur og
lokamarkmið. Áherslan er á að læknirinn
starfi með öðrum fagstéttum og eigi góð
samskipti við sjúklingana, jafnframt því
að kenna honum það sem þarf til að sinna
daglegum læknastörfum, segir Inga Sif.
Nefndin lagði til að þessi marklýsing gilti
á landsvísu og heimilislæknar skrifuðu
sérkafla. Reynir Tómas Geirsson aðstoðaði
Ingu Sif við þýðingu marklýsingarinnar
og var þetta fyrsta marklýsingin sem
mats- og hæfisnefnd samþykkti.
Í öðru lagi felur reglugerðin nefndinni
að skipuleggja starfsnámið sem „náms-
blokkakerfi í eitt ár í senn frá 15. júní ár
hvert“ eins og þar segir. Hún á að auglýsa
stöður námslækna og stýra ráðningarferli
kandídatanna í samvinnu við þær heil-
brigðisstofnanir sem viðurkenndar eru til
að veita starfsnám. Nefndin hefur gert það
sem henni er falið í reglugerðinni og ýmis-
legt fleira sem ekki er kveðið á um þar.
Mikil breyting frá fyrri tíð
– Breytingin á starfsnáminu er mjög mikil.
Þegar við komum að verki var ekkert sam-
eiginlegt skipulag á milli stofnanna þegar
kom að kandídatsárinu. Hver stofnun
skipulagði námið hjá sér svo kandídatinn
varð að púsla náminu saman sjálfur ef
hann var á fleiri en einum stað. Það var
heldur engin marklýsing til sem heitið gat,
engar skilgreindar hæfniskröfur og mats-
blöð fá og ekki samræmd. Kerfið sem við
höfum komið á er miklu heildstæðara og
betra fyrir kandídatinn. Það er mikilvægt
því þarna eiga í hlut ungir læknar sem við
þurfum að hjálpa svo fyrstu skrefin í starfi
verði jákvæð, segir Inga Sif.
Reglurnar kveða á um að klínískt
starfsnám séu 12 mánuðir sem skiptast
þannig: fjórir mánuðir á lyflækn-
ingadeild, tveir mánuðir á skurðdeild
eða bráðamóttöku, fjórir mánuðir á
heilsugæslu og tveggja mánaða klínísk
vinna til viðbótar, má vera á fyrri deild
eða einhverri annarri sem samþykktar
hafa verið af mats- og hæfisnefnd.
– Við ákváðum að koma á kynningar-
dögum fyrir verðandi kandídata sem
standa yfir í fjóra daga, heldur Inga Sif
Betra kandídatsár
með nýrri reglugerð
– segir Inga Sif Ólafsdóttir lungnalæknir og
kennslustjóri kandídata á Landspítala
■ ■ ■ Þröstur Haraldsson