Læknablaðið - 01.05.2017, Blaðsíða 46
258 LÆKNAblaðið 2017/103
Ö L D U N G A D E I L D
Tryggvi
Ásmundsson
lungnalæknir
Ég var nýlega að skoða gamlar ljósmynd-
ir og rakst þá á mynd af unglæknum á
lyflækningadeild Duke-háskólasjúkra-
húsinu sem tekin var fyrir nákvæmlega
50 árum. Á myndinni eru 57 læknar. Ein
kona, enginn blökkumaður og enginn af
asískum uppruna. Allt hvítir karlmenn og
langflestir í þeim hópi sem ameríkumenn
nefna WASP (white anglo-saxon protestant). Í
læknaskólanum var þó einn blökkumaður
sem hafði innritast haustið 1963. Var hann
fyrstur svertingja til að stunda þar nám.
Ég kynntist þessum strák ágætlega í starfi
á spítalanum. Hann heitir Delano Meri-
wether, kallaður Del af vinum og vanda-
mönnum. Hann var, og er vonandi enn,
fágað glæsimenni. Prýðilegur námsmaður.
Hann kom frá Suður-Karólínu þar sem
faðir hans var skólastjóri. Fram að útskrift
úr high school var hann í skólum ein-
göngu fyrir svarta. Að vísu hafði gengið
hæstaréttardómur árið 1954 sem bannaði
aðskilnað í skólum, en sá dómur var al-
gjörlega hundsaður víða í Suðurríkjunum.
Lögin sem bönnuðu aðskilnað hvítra og
svartra í Bandaríkjunum tóku ekki gildi
fyrr en 1964.
Del kynntist fyrst hvítum skólafélög-
um þegar hann fékk styrk til náms við
Michigan State University. Hann kláraði
college á þremur árum og sótti þá um vist
í læknaskólum í Norðurríkjunum og fékk
hvarvetna jákvæð svör. Faðir hans vildi
hins vegar að hann færi í nám við Duke-
háskólann. Svertingjar yrðu að komast til
náms í skólum Suðurríkjanna. Hann kom
til Durham seint á sunnudegi til að kynna
sér aðstæður við skólann og það var búið
að loka matsal háskólans. Hann var snyrti-
lega klæddur, í jakkafötum með bindi, og
gekk inn á veitingastað í nágrenninu. Þar
tók á móti honum kona sem tjáði honum
strax að hér fengi hann enga þjónustu.
Hann ætlaði að fara að hreyfa mótmælum,
en eigandi staðarins var þar nærstaddur.
Hann var fyrrum fótboltaþjálfari á Duke
og tilkynnti honum að ef hann yfirgæfi
ekki staðinn tafarlaust yrði honum hjálpað
út! Hann fór svangur að sofa, en fór þó
næsta dag að kynna sér skólann. Eitt það
fyrsta sem hann sá var að þar voru aðskil-
in klósett, sér fyrir svarta og fyrir hvíta.
Eftir að hann hóf nám voru þessar merk-
ingar þó fjarlægðar. Svo var hins vegar
ekki á spítalanum. Þar varð hann að fara á
snyrtingu fyrir svarta. Aldrei varð ég var
við að honum væri sýnd ókurteisi. En ég
sá vitanlega ekki allt, og hann ræddi þetta
ekki. Einu sinni sagði hann mér þó að ég
væri eini maðurinn á staðnum sem virtist
algjörlega afslappaður í návist hans.
Þegar ég hóf störf á Duke í mars 1965
var búið að fjarlægja merkingar af klósett-
um og þau heimil jafnt svörtum sem hvít-
um. En hvítir og svartir sjúklingar voru
alveg aðskildir, sér deildir fyrir svarta og
hvíta. Þetta var lögbrot og háskólanum
mun hafa verið tilkynnt að yrði þessu ekki
kippt í lag tafarlaust myndi skólinn missa
alla styrki frá Washington. Uppstokkun
fór fram á einum degi og ekki getið um
nein átök í því sambandi.
Del útskrifaðist frá Duke með góðum
vitnisburði vorið 1967 og ég spurði hann
hvort hann kæmi ekki í framhaldsnám
á spítalann. Hann horfði á mig furðu
lostinn. Sagðist þó ekki ætla að reiðast
yfir svona vitlausri spurningu, ég væri Ís-
lendingur og ekki von að ég botnaði neitt
í neinu. Fyrsti svarti unglæknir hóf ekki
störf á Duke fyrr en 1969. Ég hef ekki hitt
Del eða haft samband við hann síðan vor-
ið 1967. En 1971 sá ég í Time grein um 28
ára gamlan blóðsjúkdómasérfræðing sem
væri nýfarinn að stunda spretthlaup með
mjög góðum árangri og reyndist vera Del.
Hann starfaði við rannsóknir í Baltimore
og var eitt sinn að horfa á spretthlaupara
í sjónvarpinu með konu sinni. „Ég get al-
veg hlaupið svona hratt,“ sagði hann við
konuna. Og hann lét ekki sitja við orðin
tóm, en fór að æfa hlaup. Hann var ekki
í neinu íþróttafélagi og stalst til að æfa
á hlaupabraut Johns Hopkins-háskólans
eftir að orðið var dimmt. Hann keppti á
móti 1971 og af því hann var ekki í neinu
félagi var hann klæddur í spítalaskyrtu og
gula sundskýlu og með axlabönd! Hann
hljóp 100 yarda á 9 sekúndum og var ann-
ar maður í Bandaríkjunum til að ná þeim
tíma. Að vísu var meðvindur svo það var
ekki viðurkennt. Engu að síður var hann
valinn í Ólympíulið Bandaríkjamanna
1972 og 1976 en gat í hvorugt skiptið keppt
vegna meiðsla. Hann mun enn eiga Banda-
ríkjamet í 200 m hlaupi í aldursflokki 35-
39 ára, 20,8 sekúndur.
Starfsferill hans var óvenjulegur. Eftir
sérnám í blóðsjúkdómum og rannsóknar-
Stjórn Öldungadeildar
Kristófer Þorleifsson formaður, Jóhannes
Gunnarsson ritari, Guðmundur Viggósson
gjaldkeri, Guðrún Agnarsdóttir, Kristrún
Benediktsdóttir.
Öldungaráð
Bergþóra Ragnarsdóttir, Jón Hilmar Alfreðsson,
Sigurður E. Þorvaldsson, Snorri Ingimarsson,
Tryggvi Ásmundsson.
Umsjón síðu
Páll Ásmundsson
Vefsíða: http://innri.lis.is/oldungadeild-li
Minningar um kynþáttamisrétti
Delano Meriwether