Læknablaðið - 01.05.2017, Blaðsíða 47
Ö L D U N G A D E I L D
störf tók hann meistaragráðu í Public
Health við Johns Hopkins-háskólann.
Síðan fékk hann stöðu hjá U.S. Public
Health Service og var 1976 falið að sjá um
fjöldabólusetningu gegn svínaflensu í
Bandaríkjunum. 1983 fluttist hann til Suð-
ur-Afríku og gerðist trúboðslæknir. Voru
þeir 6 og sinntu saman ríflega hálfri millj-
ón íbúa. Hann starfaði einnig í Soweto, en
flutti aftur heim til Bandaríkjanna 1990,
skömmu áður en apartheid var aflétt í
Suður-Afríku. Hann lét þess getið við
heimkomuna að uppeldi í Suðurríkjunum
hefði hjálpað sér að lifa við slíkt stjórn-
arfar. Eftir það sneri hann sér að bráða-
lækningum og býr í Potomac, rétt utan
við Washington. Þess var minnst á Duke
þegar 50 ár voru liðin frá innritun hans
og mikið hóf haldið af því tilefni. Vænt-
anlega hefur hann þá þurft að skreppa
á snyrtingu og getað minnst þeirra tíma
þegar það var ekki einfalt mál!
Lengri námskeið Opna háskólans í HR eru sniðin að þörfum
atvinnulífsins hverju sinni og geta verið allt frá einni önn upp
í eitt ár að lengd. Námskeiðin henta vel samhliða starfi.
Frekari upplýsingar á hr.is/opnihaskolinn
PMD-stjórnendanám HR
Hefst: 14. september 2017
Nám sem er byggt á alþjóðlegri fyrirmynd og lagað að íslenskum
aðstæðum til að efla faglega þekkingu stjórnenda og auka færni,
frammistöðu og frumkvæði þeirra í dagsins önn.
Ábyrgð og árangur stjórnarmanna
Hefst: 13. september 2017
Námslínan er kjörin fyrir þá aðila sem sitja í stjórnum eða hafa hug
á því að gefa kost á sér til stjórnarsetu. Markmið námslínunnar
er að efla faglegan grunn stjórnarmanna m.a. með þjálfun á sviði
lagalegra, fjárhagslegra og siðferðilegra viðfangsefna.
Ný íbúð orlofssjóðs
í höfuðborginni
Orlofssjóður lætur ekki deigan síga og hefur nú selt íbúð sína í Sólheimum og keypt nýja
í Sóltúni 7. Íbúðin er þegar farin í útleigu til félagsmanna LÍ á bókunarsíðu orlofsvefs fé-
lagsins. Íbúðin er 90 fm á þriðju hæð, íbúð 303, tvö svefnherbergi, eldhús og stofa.
LÆKNAblaðið 2017/103 259