Fréttatíminn - 01.04.2017, Síða 18

Fréttatíminn - 01.04.2017, Síða 18
18 | FRÉTTATÍMINN | LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2017 Þrif ehf. | Lækjasmári 86 | 201 Kópavogur | Sími: 8989 566 | www.thrif.net Fyrirtæki og húsfélög, gerum tilboð ykkur að kostnaðarlausu Bjóðum sérhæfða þjónustu fyrir íbúðir sem eru í túristaleigu Hefur þú þörf fyrir þrif Mikilvægt að kennarinn leyfi sér að fíflast með börnunum Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@frettatiminn.is Það er óhætt að fullyrða að Hlín Magnúsdótt-ir Njarðvík, sérkennari í Norðlingaskóla, hafi mikla ástríðu fyrir starf- inu sínu. Fyrir utan að vera spreng- lærð í uppeldis- og menntunarfræði, sálfræði og kennslufræðum, hefur hún brennandi áhuga á öllu sem við- kemur börnum og nýtir nánast allan sinn frítíma í að útbúa sjónrænt og skapandi námsefni sem auðveldar börnum með ADHD og námserf- iðleika að læra. Til þess notar hún meðal annars golfkúlur, eggjabakka, íspinnaspýtur og allskonar spil og leiki sem hún aðlagar að kennslunni. „Það er mikill áhugi fyrir því að koma í litlu stofuna mína og fá að vinna þar. Ég finn því að ég er að ná til krakkanna, sem er auðvitað það fyrsta sem maður vill gera. En ég er líka að sjá framfarir, sem er tak- markið. Ég sé að þau græða á þessu,“ segir Hlín sem er með nemendur í fyrsta og öðrum bekk í sérkennslu. „Það eru margir sem spyrja hvort ég sé ekki bara alltaf í vinnunni, en þetta stendur mér mjög nærri því ég á að sjálf strák með ADHD grein- ingu, þannig ég nota efnið líka heima. Mikið af því sem ég nota í skólanum eru hugmyndir sem kvikna heima. Ef ég sé að eitthvað virkar fyrir strákinn minn þá prófa ég það á fleirum. Hann er reyndar ekki með námserfiðleika, en hann er mjög ofvirkur. Ég finn að hann þarf að hafa námsefnið skapandi,“ útskýrir Hlín. Hægt að nýta fjölbreyttan efnivið Hún opnaði nýlega facebook-síðuna Hlín Magnúsdóttir Njarðvík útbýr skapandi og sjónrænt námsefni fyrir börn með ADHD og námserfiðleika og nýtir það í sérkennslu í Norðlingaskóla. Með þessu nær hún til barnanna og sér fljótt miklar framfarir. Þá gerir námsefnið vinnuna hennar skemmtilegri. Nýlega stofnaði hún facebook-síðu þar sem hún deilir hugmyndunum með áhugasömum. Fjölbreyttar kennsluaðferðir fyrir fjöruga krakka, til að geta deilt hug- myndum sínum með öðrum. „Ég var búin að sanka að mér fullt af mynd- um því í hvert skipti sem ég geri eitt- hvað tek ég mynd af því. Ég gat því strax sett mikið af efni á síðuna. Svo komu bara ótrúlega margir fylgj- endur. Ég er eiginlega orðlaus yfir viðbrögðunum,“ segir Hlín en um 2600 manns hafa líkað við síðuna sína hún fór í loftið í febrúar. „Það var greinilega vöntun á markaðnum fyrir þetta,“ segir hún glöð í bragði. „Ef ég fæ eitthvað skemmtilegt efni í hendurnar þá hugsa ég alltaf hvernig ég geti notað það. Um daginn fékk ég golfkúlur og fann leið til að nota þær. Maður getur notað svo fjölbreyttan efnivið í kennslu. Ég settist bara niður og leitaði á Pinterest að golfkúlum og kennslu og fékk hugmynd sem ég útfærði. Ég nota Pinterest rosalega mikið og fæ fullt af hugmyndum þaðan. Ég ætla því ekki að taka kreditið fyrir allt þarna inni. En það er auðvitað mikil vinna við þetta því ég vil hafa allt á íslensku.“ Læra og mynda vinasambönd Hennar reynsla er sú að sjónrænt og skapandi efni virkar mun betur við kennsluna heldur en hefðbundið námsefni. „Ég vil leggja áherslu á að þau séu að leika sér. Þetta eru krakk- ar sem eru oft á tíðum með námserf- iðleika þó þau séu ung. Með þessum aðferðum sýna þau áhuga. Þau fá að handfjatla, pikka og pota. Ég nota kubba og púsl til dæmis mikið. Ég gæti alveg haft efnið á hefðbundnum blöðum en það er miklu skemmti- legra að lesa orðin ef þau eru á púsli eða á teningum,“ segir Hlín og það leynir sér ekki hvað henni finnst sjálfri skemmtilegt að geta boðið börnunum upp á öðruvísi námsefni sem fangar athyglina. „Ég reyni líka yfirleitt að hafa verkefnin þannig að börnin verði að hafa einhver samskipti. Þau eru mikið sett upp í spilum til dæmis. Akkúrat núna er ég að búa til verk- efni þar sem þau eiga að segja ein- hverja tölu sem þau eru með og eiga að finna þann sem er með sömu töluna. Svo myndast góð vinasam- bönd því þau eru alltaf eitthvað að spjalla á góðu nótunum.“ Hlín þykir fátt skemmtilegra en að heyra krakkana tala saman þegar þeir eru að fara úr tíma hjá henni og segjast bara hafa verið að leika sér. „Þá fæ ég þessa „jess“ tilf- inningu. Þau eru nefnilega búin að vera að læra allan tímann, kannski spila veiðimann með orðum, vinna með tölur og fínhreyfingar. Ég spái nefnilega ekki bara í hvað þau eru að læra heldur hvað verkefn- in eru að þjálfa, eins og fínhreyf- ingar, gagnrýna hugsun eða mann- leg samskipti. Mér finnst þetta gefa starfinu mínu ótrúlega mikið. Ég er alltaf að þróa eitthvað nýtt og gera eitthvað nýtt. Þetta er líka skemmti- legt fyrir börnin því þau spá mikið í hvað ég kem með næst.“ Hlær að prumpubröndurum Hlín er dugleg að setja myndir og hugmyndir að verkefnum inn á facebook-síðuna og fær fjölmargar fyrirspurnir frá áhugasömum for- eldrum og áhugafólki um skap- andi námsefni. Allt gerir hún þetta af áhuga og ástríðu og launin eru þakklæti og árangur. Það hefur al- veg hvarflað að henni að rukka fyrir hugmyndirnar og efnið sem hún út- býr, en hún nennir einfaldlega ekki að standa í því. Svo vill hún líka að sem flestir njóti góðs af. „Ég gerði einhver pókemonspjöld um daginn og bjóst ekki alveg við því að það myndu 300 manns hafa samband. Ég var þá eiginlega komin í fulla vinnu við að senda tölvupósta. En þetta er svo mikil ástríða fyrir mér þannig mér finnst þetta æði. Mig langar bara að fá að búa til eitthvað. Það skiptir ekki máli hvort ég sendi nokkra tölvupósta eða þrjú hund- ruð. Mér finnst bara gaman ef dótið mitt kemst áfram. Svo gerðist það eiginlega óvart að ég fór að veita ráðgjöf líka, en mér finnst það bara skemmtilegt. Ég er tiltölulega ný í faginu, er bara búin að kenna í tvö, þrjú ár, og þetta fær mig til að afla mér meiri þekkingar. Ég þarf að lesa bækur og greinar til að geta svarað spurningum og læri mikið á því.“ Kennsluaðferðir Hlínar og náms- efnið hefur ekki bara jákvæð áhrif á börnin, heldur gerir það starfið hennar einfaldlega skemmtilegra. „Það er svo mikilvægt að kennar- inn leyfi sér stundum að fíflast með krökkunum og sitja og spila. Þetta gefur mér það að ég er meira í tengsl- um við krakkana og mér finnst það rosalega gaman. Auðvitað verður maður að halda ákveðinni virðingu en ég vil að þau finni að mér finnist líka gaman. Ef þau segja einhverja prumpubrandara þá get ég alveg hlegið með án þess að missa kennsl- una út í vitleysu.“ Hlín veit fátt skemmtilegra en þegar börnin tala um það sín á milli að þau hafi bara verið að leika sér á meðan þau voru í raun að læra heilmikið. Mynd | Heiða Hlín fann skemmtileg not fyrir golfkúl- ur sem henni áskotnuðust á dögunum. Pókemon námsefnið sló í gegn og Hlín sendi hugmyndina áfram á 300 manns.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.