Fréttatíminn - 01.04.2017, Blaðsíða 20

Fréttatíminn - 01.04.2017, Blaðsíða 20
Fræðslusjóðs til þróunar og nýsköpunar í framhaldsfræðslu Styrkir Fræðslumiðstöð atvinnulífsins auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Fræðslusjóði vegna nýsköpunar- og þróunarverkefna í framhaldsfræðslu, sbr. lög um framhaldsfræðslu nr. 27/2010. Forgangssvið við úthlutun árið 2017 eru: Raunfærnimat í atvinnulífinu sem byggist á hæfnigreiningu starfa. Þróun rafræns, gagnvirks námsefnis sem nýtist markhóp framhaldsfræðslu. Nýungar í námi og kennslu í starfstengdri íslensku fyrir einstaklinga á vinnumarkaði, með erlent tungumál að móðurmáli. Samstarf fræðsluaðila og fyrirtækja/stofnana um aðferðir til virkrar þátttöku í símenntun á vinnustað. Umsókn: hafi skýr skilgreind markmið og vel skilgreinda verkefnastjórn, mæti sýnilegri þörf fyrir menntunarúrræði í framhaldsfræðslu, feli í sér nýsköpun eða þróun sem nýtist markhópi framhaldsfræðslu, feli í sér samstarf og að framlag samstarfsaðila sé tryggt og vel skilgreint, hafi skýra kostnaðar-, verk- og tímaáætlun, sé líklegt til að skila hagnýtri afurð og verði vel kynnt. Tekið er á móti umsóknum til og með 7. maí 2017. Eingöngu er tekið við umsóknum á rafrænu formi. Umsóknareyðublað, lög um framhaldsfræðslu nr. 27/2010 og nánari upplýsingar um vinnuferli og viðmið vegna styrkumsóknar má nálgast á vef Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, www.frae.is. Þar eru einnig upplýsingar um fyrri úthlutanir til þróunar og nýsköpunar í framhaldsfræðslu. 20 | FRÉTTATÍMINN | LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2017 Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Að verða íslenskur er ekki bara spurning um ríkisborgararétt og það skiptir ekki máli hversu lengi viðkomandi þarf að bíða eftir ríkisborgararétti eða fær yfirleitt þann rétt. Ég vil halda því fram að það sé heimilið sem konan býr til sem skiptir meira máli þegar kemur að því að verða hluti af samfélaginu, sem eiginkona íslensks karlmanns og móðir ís- lenskra barna.“ Þetta segir mannfræðingur- inn Nína Rós Ísberg en hún hélt í vikunni erindi á Þjóðminjasafn- inu um aðlögun erlendra kvenna í íslensku samfélagi. Til að kanna reynsluheim kvennanna bar Nína saman tvo hópa sem fluttu til Íslands og giftust hér. Annars vegar þýskar konur sem komu til Íslands árið 1949 sem verkakonur til landbúnaðar- og heimilisstarfa en meira en helmingur þeirra giftist hér, eignaðist fjölskyldu og höfðu búið hér í yfir 50 ár þegar Nína tók viðtölin við þær. Hins- vegar tók Nína viðtöl við þýskar konur sem fluttu hingað til lands 5-15 árum áður en viðtölin voru tekin. Upplifun kvennanna af því að falla inn í samfélagið er svipuð, þrátt fyrir árin sem skilja þær að. Áhersla á fullkomið heimili „Upp undir helmingur kvenn- anna sem komu hingað árið 1949 giftust og stofnuðu hér fjölskyldu. Þegar þær giftust fór af stað þetta ferli aðlögunar sem þær allar lýsa á frekar svipaðan hátt. Oftast var það tengdafjölskyldan sem beindi þeim á „rétta leið“, þ.e. hvern- ig best væri að aðlagast og verða íslenskar. Og það var töluverð pressa á þær að taka upp íslenska siði,“ segir Nína en þessir siðir fólust fyrst og fremst í því að vera vinnusamar, frændræknar, búa gott heimili og ala börnin sín upp sem íslensk. Langflestar kenndu þær börnunum sínum ekki þýsku því það var almennt ekki vel liðið. Nína segir margar sorglegar Þýsku konurnar voru „íslenskaðar“ sögur tengjast tungumálinu og er ein kvennanna ennþá reið út í tengdamóður sína fyrir að hafa Þýsku verkakonurnar sem hingað komu sem ódýrt vinnuafl á síðustu öld þurftu að sýna vinnusemi og fjölskyldurækni til að vera meðteknar í íslenskt samfélag. Nína Rós Ísberg mannfræðingur segir viðmót Íslendinga gagnvart konunum segja margt um það hvað okkur finnst það þýða að vera íslenskur.w Nína Rós Ísberg skrifaði um þýskar verkakonur sem settust hér að í doktorsritgerð sinni frá London University. Hún segir konurnar allar hafa upplifað mikinn þrýsting um að verða „íslenskar“. 140 konur settust hér að Skortur á vinnuafli hafði ver- ið lengi í landbúnaði, en árið 1947 uppgötvaði Búnaðarsam- band Íslands að hægt væri að fá vinnuafl frá Þýskalandi, því í borginni Lübeck var saman- kominn mikill fjöldi flóttafólks sem hafði flúið undan Rússum eða verið rekið frá austur hér- uðunum. Mikið atvinnuleysi var meðal þessa fólks og það bjó við bág lífskjör. Það var því talið að auðvelt yrði að freista þess með vinnutilboðum frá Íslandi. Langflestar fóru í sveit- irnar og unnu við landbúnað- arstörf enda hafði verið auglýst eftir því. Nokkrar kvennanna störfuðu einnig við spítala og elliheimili og enn aðrar fóru í vist sem vinnukonur í bæjum því þar vantaði einnig fólk. Það var þó ekki á vegum Búnaðar- sambandsins. Svo komu nokkr- ar á eigin vegum eða vegna persónulegra tengsla. Allmargar þeirra giftust hér og eignuðust fjölskyldur og höfðu búið hér í yfir 50 ár þegar Nína tók viðtöl- in við þær. Þær sem settust að á Íslandi eftir fyrsta árið voru um 46% af upphaflega Búnaðarsam- bandshópnum, eða um 140. segir Nína en auk þess að þekkja íslensku ættina var ákveðin pressa á þýsku konurnar að halda fullkomið heimili, vera gestrisnar og vinnusamar. Einnig var lögð áhersla á að börn kvennanna væru nefnd íslenskum nöfnum. Viðkvæm staða innflytjenda Vinsæl ímynd af eldri þýsku konunum er af duglegum „Íslenskar konur sem áttu í sambandi við er- lenda hermenn á árum seinni heimsstyrjaldar- innar voru úthrópaðar sem föðurlandssvikarar og þaðan af verra. En nokkrum árum síðar, þegar íslenskir karlmenn giftust þýskum konum, heyrðist ekkert slíkt.“ bannað sér að tala þýsku við börnin sín. „Íslenskar konur sem áttu í sambandi við erlenda hermenn á árum seinni heimsstyrjaldarinn- ar voru úthrópaðar sem föður- landssvikarar og þaðan af verra. En nokkrum árum síðar, þegar íslenskir karlmenn giftust þýsk- um konum, heyrðist ekkert slíkt. Ég held því fram að það hafi ver- ið vegna áherslunnar sem lögð var á að laga þýsku konurnar að íslensku samfélagi, þær voru íslenskaðar og sem slíkar voru þær ekki álitnar ógn við íslenskt þjóðerni,“ segir Nína en hún telur að aðlögun kvennanna hafi að miklu leyti farið fram með því að taka að sér og uppfylla skyld- ur gagnvart ætt eiginmannsins. Konurnar sem Nína talaði við lýsa því langflestar hvernig það þótti mikilvægt að þekkja vel ættfræði manna sinna, þekkja til skyld- leika og að geta lýst honum með réttum orðum sem og að útskýra fyrir og kenna börnunum þessa flóknu ættarþekkingu, eins og til að undirstrika hversu íslenskar þær væru. „Þetta varð ljóst í fyrstu við- tölum við viðmælendur mína. Sumar sýndu mér kort af heima- bænum í Þýskalandi eða bæk- ur með gömlum myndum af heimahögunum eða fjölskyldunni úti. Flestar sýndu mér hins vegar bók með upplýsingum um ætt eiginmannsins og sögu hennar,“

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.