Fréttatíminn - 01.04.2017, Qupperneq 30

Fréttatíminn - 01.04.2017, Qupperneq 30
30 | FRÉTTATÍMINN | LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2017 H V Í T T S Ú K K U L A Ð I E G G Í Levi’s búðinni í Kringlunni starfar hinn landskunni buxna- hvíslari. Sögur af þessum lipra sölumanni hafa farið frá manni til manns enda hafa ótal Íslendingar keypt brækur af honum. Buxnahvíslarinn þekkir sitt fag, enda getur hann líklega sagt til um buxnastærð þína, en ástríða hans liggur hinsvegar annarstaðar, í tölvuleikjagerð. Bryndís Silja Pálmadóttir bryndis@frettatiminn.is Tölvuleikir eiga kannski hug minn og hjarta, en þetta er bara eitthvað sem ég er rosalega góður í. Mér finnst best þegar einstaklingur labbar út og ég veit að þessi einstaklingur er að fara að vera í buxunum um helgina,“ segir hvíslarinn sem heitir réttu nafni Joshua Reuben David. Joshua er nýlega fluttur heim eftir 18 mánaða dvöl í Kanada og selur nú buxur í gríð og erg enda lítur hann á starfið sem leiksvið. Hvíslarinn hefur þó ekki einungis áhuga á buxum, tísku og tölvuleikjum heldur hefur hann líka unnið í banka og lært að hanna tölvuleiki. Árin í bankanum voru sérstaklega lærdómsrík enda lærði hvíslarinn þar að koma jafnt fram við alla og ekki dæma fólk. „Maður lærir alltaf meira og meira inn á fólk og mér fannst alltaf rosalega áhugavert að það er miklu auðveldara að fá fólk til að tala um kynlíf heldur en fjármál,“ segir Joshua og skellihlær. Tíminn eftir hrun var áhugaverður og var deild Tölvuleikjanörd sem veit gjörsamlega allt um buxur Joshua sú fyrsta sem fékk að fjúka í bankanum. Hann kippti sér hinsvegar ekki upp við það og færði sig yfir til merkisins G-star þar sem hann hélt áfram að fylla höfuð sitt af þekk- ingu um gallabuxur og fór jafnvel til Amsterdam að læra um buxurnar. „Þú þarft að þekkja vöruna sem þú ert að selja. Þá uppgötvaði ég líka að gallabuxur eru ekki bara gallabuxur,“ segir hann og þyl- ur upp óteljandi snið og týpur af gallabuxum, enda þekkir hann þær allar. „Við eigum líka að finna fegurðina í öllum og það eru ekki allir eins. Við eigum að fagna fjöl- breytileikanum í fólki, það er mitt hlutverk,“ segir Joshua sem kveðst geta selt hvern einn og einasta hlut í búðinni enda finnst honum ótrúlega gaman í vinnunni. „Ég elska að vera í vinnunni og ég hlakka til að mæta. Ég horfi á þetta sem leiksvið mitt og ég er bara leikari að mæta, ég reyni að vera „flamboyant“, skemmtileg- ur og öðruvísi og þá man fólk eftir mér,“ segir hvíslarinn lífsglaði og skellihlær. Ráð frá hvíslaranum í buxnaleit: Hafðu opið hugarfar, ekki vera hrædd/ur að prófa eitthvað nýtt. Taktu einu númeri minna en þú ert vanur/vön að taka. Gallabux- ur víkka oftast frá hálfu upp í 3/4 af númeri. Hafðu gaman, það á að gera skemmtilegt að kaupa nýjar gallabuxur. Þegar gengið er út úr búið með vöru á að vera eins og barn að koma frá Disneylandi, svona Disneyheimur fyrir fullorðna. Hvíslarinn magnaði þekkir allar gerðir gallabuxna. Mynd | Heiða Vertu töff en samt hlýtt Vertu við öllu búin/nn á Aldrei fór ég suður Nú eru tæpar tvær vikur í Rokkhá- tíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suð- ur, sem haldin verður á Ísafirði um páskana. Einvalalið tónlistarfólks spilar á hátíðinni sem endranær. Þó tónlistaratriðin fari fram innan- dyra í skemmunni góðu, þá er hún ekki upphituð og því getur verið svalt þar. Þá teygir skemmtunin sig alltaf langt út á plan þar sem er allra veðra von. Það er því betra að vera vel bú- in/n, enda fátt leiðin- legra en að þurfa að fara heim vegna kulda. En það er svo sannarlega hægt sameina það að vera hlýtt og líta vel út. Eftirtalinn búnaður er alveg skotheldur: Stór og þykk rúllu­ kragapeysa er algjör- lega nauðsynleg innan undir úlpuna. Gamla góða lopapeysan gengur líka en hún er samt orðin svolítið þreytt. Hlý peysa kemur þér ansi langt þó að yfirhöfnin sé ekki upp á marga fiska. Svo er líka mjög töff að vera í stórum og kósí peysum. Það er allra veðra von á Ísafirði um miðjan apríl. Það getur verið sól og blíða, hríðarbyl- ur eða ausandi rigning. Þannig að það er gott að vera við öllu búin/n. Taktu með þér góða úlpu og regnkápu eða vatnsheldan jakka. Regnjakk- ar eru í tísku. Mundu það. Þú munt væntanlega þurfa að labba töluvert og því eru góðir skór mikilvægir. Uppreim­ aðir skór með grófum sóla eru tilvalinn búnað- ur. Þeir virka í öllum veðrum og það er bæði hægt að labba og dansa í þeim. Töff bakboki eða stór hliðartaska er bráð- nauðsynlegur bún- aður. Þar geturðu geymt drykki og aukaföt. Hvað buxur varðar eru galla­ buxur alltaf klassík á svona skemmtun. Þær eru alltaf flottar, tiltölulega hlýjar. Taktu með þér tvennar. Það getur verið gott að hafa húfu í töskunni til að draga upp þegar kólna fer. 66 gráður norð- ur húfuna eiga nánast allir og því auðvelt að kippa henni með. Ef þú átt Fokk ofbeldi húfu frá UN Women þá er hún auðvitað lang- flottust og vel við hæfi á Aldrei fór ég suður. | slr Þorsteinn Jónsson Ég var að vinna með manni sem hafði fengið iðnaðarmenn til að laga húsið sitt. Vinnufélaginn var oft búinn að bölva umgengni iðnaðarmannanna á bílaplaninu við húsið og áhyggjurnar af bílum heimilisins voru töluverðar. Þegar ég mætti til vinnu að morgni 1. apríl þá rekst ég á þennan mann og segi við hann: „Hvað er að sjá bílinn þinn, hvað kom eiginlega fyrir?“ Vinnufélaginn: „Hvað meinar þú?“ Ég: „Öll farþegahliðin á bílnum er alveg krambúleruð!“ Vinnufélaginn: „Ég vissi að þetta myndi gerast, Helvítis umgengnin er búin að vera til skammar!“ Svo rýkur hann út á bílaplan fyrirtækisins til að kanna með bíl- inn. Þetta tók sinn tíma enda stórt bílaplan hjá stórum vinnustað. Góðu fréttirnar þennan daginn var að bíllinn var heill, en vinnufé- laginn fékk að fara yfir all nokkra þröskulda! Segðu frá góðu aprílgabbi Konráð Jónsson Ég bakaði einu sinni döðluköku og tók hana með í vinnuna á 1. apríl. Svo var ég með röð statusa á fb um að ég væri búinn að baka köku og að hún væri í boði fyrir þá sem gerðu sér ferð til að koma til mín í vinnuna (en ég birti samt aldrei mynd af kökunni). Þannig að þetta var svona anti-aprílgabb, þeir hlupu apríl sem komment- uðu „haha, einmitt!“. Svo birti ég mynd af mér með kökuna í lok dags. Í dag er 1. apríl og eini dagurinn á árinu þar sem það er samfélagslega viðurkennt að hrekkja annað fólk, með því að láta það hlaupa. Fréttatíminn fékk tvo hrekkjalóma til að deila skemmti­ legum sögum frá þessum degi. Þorsteinn plataði vinnufélaga sinn upp úr skónum. Konráð tók anti-gabb og var með köku þó að enginn tryði honum. Torfi heillaðist af hoppi og skoppi og sannfærði stærsta trampólínfyrirtæki Bandaríkj- anna um að opna garð á Íslandi. Það munu eflaust margir Ís- lendingar hoppa hæð sína af gleði við lestur þessarar greinar, enda verður hér sagt frá opnun risa trampólíngarðs í Garðabæ. Já, þið lásuð rétt. Trampólíngarður. „Ég fór í svona garð fyrir tveim- ur árum og eftir það setti ég mig í samband við þá hjá Rush, sem eru stærstir í Bandaríkjunum í svona görðum. Ég fékk aðila frá fyrirtækinu til Íslands að skoða aðstæður og seldi honum þá hug- mynd að opna hér í samstarfi við mig,“ segir Torfi Jóhannsson, framkvæmdastjóri trampólín- garðsins, Rush Ísland. En stefnt er á opnum garðsins í Suðurhrauni í Garðabæ seint í haust á þessu ári. Í lok þessa árs verða garðar á veg- um Rush orðnir tíu talsins, víða um heim. En þeir eiga sér fimmtíu ára sögu í framleiðslu á trampólín- um. Um er að ræða 2000 fermetra sérhannaðan trampólínsal þar sem verður boðið upp ýmiskon- ar afþreyingu í tengslum við trampólín. Allt frá hefðbundinni afþreyingu fyrir börn upp í sér- hæfðari skemmtun fyrir fullorðna og hópa. „Það kunna flestir að hoppa og allir hafa gaman af því að fá smá útrás. Þarna verða líka svampgryfjur, klifurveggir og stökkpallur. Svo verður hægt að keppa í „dodgeball“ á trampólíni sem er mjög sniðugt fyrir hópa.“ Að sögn Torfa verður tækjum skipt út á þriggja til sex mánaða fresti svo það ætti enginn að fá leið á neinu. „Við spilum ekki öll- um trompunum út strax,“ segir Torfi sposkur. „En ég er viss um að þetta verður alveg magnað,“ bætir hann við. | slr Í lok þessa árs verða garðar á vegum Rush orðnir tíu talsins, víða um heim. Einn verður opnaður í Garðabæ í haust. Risa trampólíngarður í Garðabæ

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.