Fréttatíminn - 01.04.2017, Side 34

Fréttatíminn - 01.04.2017, Side 34
Gauti Skúlason gauti@frettatiminn.is Starfsfólk og stjórnendur fyrirtækja eru með-vitaðri nú en áður um öryggi á vinnustöðum en þó er þörf á aukinni vitundarvakningu. Vinnslysum á Íslandi fer fjölgandi og eru fleiri nú en þau voru fyrir hrun. Þá standa Íslendingar nágrönnum sínum á hinum Norðurlöndunum ekki jafnfætis þegar kemur að öryggi á vinnustöðum. Guðmundur Þór Sigurðsson, verkefnastjóri upplýsinga- og fræðsludeildar hjá Vinnueftirliti ríksins, segir að mikið hafi breyst varðandi öryggi á vinnustöðum síðan vinnuverndarlögin tóku gildi, þann 1. janúar árið 1981. Stjórnendur fyrirtækja og starfs- Vinnuslysum farið fjölgandi frá hruni Vinnueftirlit ríksins hefur það hlutverk að vera vinnuverndarstofnun Íslands, stofnunin sinnir meðal annars eftirlitshlutverki, fræðsluhlutverki og rannsóknarhlutverki. Banaslys 1961-2014 Banaslys 1961-2014 0 2 4 6 8 10 12 14 19 61 19 63 19 65 19 67 19 69 19 71 19 73 19 75 19 77 19 79 19 81 19 83 19 85 19 87 19 89 19 91 19 93 19 95 19 97 19 99 20 01 20 03 20 05 20 07 20 09 20 11 20 13 Banaslys 1961-2014 Banaslys við vinnu 2006-2016Banaslys við vinnu 2006-2016 Ljóst er að mikil vitundarvakning varðandi öryggi á vinnustöðum hefur átt sér stað í íslensku samfélagi á seinustu áratugum. Banaslysum á vinnustöðum hefur farið ört fækkandi síðan mælingar hófust og voru í sögulegu lágmarki árin 2013, 2014 og 2015. Þó virðast einhverjar breytingar vera að eiga sér stað, árið 2016 fjölgaði banaslysum fjórfalt miðað við mælingar seinustu þriggja ára þar á undan. Heimild: Vinnueftirlit ríkisins Vi nuslys 2006 - 2016 Vinnuslys 2006-2016 Samkvæmt tölum frá Vinnueftirliti ríkisins voru vinnuslys fleiri á seinustu þremur árum, þ.e. 2014, 2015 og 2016, en þau voru á árunum fyrir hrun, þ.e. árin 2006, 2007 og 2008. fólk þeirra eru almennt meðvitaðri um öryggi á vinnustöðum en áður fyrr. Guðmundur Þór bendi þó á að betur megi gera í þessum mál- um, slysatölur eru rísandi og fleiri vinnuslys eiga sér nú stað heldur en fyrir hrun. Til að mynda bendir Guðmundur Þór á að Íslendingar standa nágrannaþjóðum sínum á hinum Norðurlöndum töluvert að baki þegar kemur að öryggi á vinnustöðum. Í rannsókn sem gerð var á Norðurlöndunum 2003 - 2008 kom í ljós að flest banaslys við vinnu urðu á Íslandi og eru þau algengust í byggingariðnaði, landbúnaði og flutningastarfsemi. Guðmundur Þór telur þess vegna að þörf sé á aukinni vitundarvakn- ingu þegar kemur að öryggi á vinnustöðum hér á landi. Þar getur Vinnueftirlit ríksins gegnt veiga- miklu hlutverki. Vinnueftirlits ríkisins er vinnu- verndarstofnun Íslands og hefur þrjú megin hlutverk. Í fyrsta lagi er það eftirlitshlutverki en það sem felst í því er að sannreyna það að fyrirtæki og stjórnvöld fari eftir settum lögum og reglum þegar kemur að öryggi á vinnustöðum. Í öðru lagi er það fræðsluhlutverk en í því felst að fræða stjórnendur og starfsfólk fyrirtækja um öryggi á vinnustöðum. Vinnueftirlitið leggur sig fram við að bjóða upp á námskeið fyrir aðila vinnumark- aðarins. Námskeiðin eru annars vegar almenn fræðslunámskeið, t.d. námskeið um einelti á vinnu- stöðum, og hins vegar námskeið Guðmundur Þór Sigurðsson, verk- efnastjóri upplýsinga- og fræðsludeildar hjá Vinnueftirliti ríksins. sem eru lögbundin, eins og t.d. vinnuvélanámskeið. Þriðja hlut- verk Vinnueftirlitisins er rann- sóknarhlutverk en til þess að sinna því þá gerir Vinnueftirlitið rann- sóknir á íslenskum vinnumarkaði. Upplýsingarnar úr þessum rann- sóknum eru síðan m.a. notaðar til þess að ráðast í fyrirbyggjandi að- gerðir eða til þess að finna lausnir á hinum ýmsu vandamálum sem tengjast vinnumarkaðinum. Dæmi um rannsóknir sem Vinnueftirlitið hefur ráðist í er rannsókn á and- legri líðan bankastarfsmanna eftir fjármálahrunið. Guðmundur Þór bendir þó á að líkt og aðrar stofn- anir í íslensku samfélagi, þá býr Vinnueftirlitið við fjársvelti. Vegna þess er oft erfitt fyrir það að sinna rannsóknarhlutverki sínu, sökum þess að framkvæmd rannsókna getur kostað mikla peninga. Ágætis árangur virðist hafa unn- ist þegar kemur að öryggi á vinnu- stöðum á seinustu áratugum en samt sem áður eru margar áskor- anir til staðar innan málaflokks- ins og betur má ef duga skal. Til þess að yfirstíga þessar áskoranir þá þurfa aðilar vinnumarkaðarins og Vinnueftirlit ríksins að halda áfram að vinna saman að lausnum á hinum ýmsu vandamálum sem tengjast öryggi á vinnustöðum. Það verður vissulega áhugavert að fylgj- ast með þróun mála innan þessa málaflokks á næstu misserum. Tilkynnt vinnuslys 2014 eftir búsetu Hafnarfjörður Kópavogur Reykjavík Karlar slys á 10.000 638 408 779 Konur slys á 10.000 252 155 435 Mun fleiri karlar en konur urðu fyrir vinnuslysum árið 2014 í Hafnarfirði, Kópavogi og Reykjavík. Heimild: Vinnueftirlit ríkisins 2 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2017ÖRYGGIÁVINNUSTÖÐUM Útgefandi: Morgundagur ehf. Ábyrgðarmaður: Valdimar Birgisson. Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík • Sími: 531 3300 – Áratuga reynsla og þekking – www.ismenn.is VIÐ BJÓÐUM UPP Á NÝJUSTU TÆKNI Í VÖRUVERND MW SECURITY VÖRUVERND 1973

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.