Fréttatíminn - 01.04.2017, Síða 39
Stöldrum við,
fyrirbyggjum slys
Verkís leggur áherslu á virka þátttöku allra starfsmanna og forystu stjórnenda þegar kemur að öryggi og heilbrigði starfsmanna.
Dóra Hjálmarsdóttir og Dagmar I. Birgisdóttir láta sig öryggi og heilbrigði starfsfólks Verkís varða. Fyrirtækið hefur markvisst byggt
upp stjórnun öryggis-, heilbrigðis- og vinnuverndarmála á undanförnum árum. Mynd | Heiða
Unnið í samstarfi við Verkís
Verkís er öflugt og fram-sækið ráðgjafarfyrirtæki sem býður fyrsta flokks þjónustu á öllum sviðum
verkfræðiráðgjafar og skyldum
greinum. Fyrirtækinu er umhugað
um öryggi og heilbrigði starfs-
manna sinna og hefur markvisst
byggt upp stjórnun öryggis-, heil-
brigðis og vinnuverndarmála á
undanförnum árum. Verkís er m.a.
vottað samkvæmt OSHSAS 18001
staðlinum og hlaut forvarnar-
verðlaun VÍS 2017, sem veitt eru
fyrir framúrskarandi forvarnir og
öryggismál. Þessi góði árang-
ur byggir fyrst og fremst á virkri
þátttöku allra starfsmanna og for-
ystu stjórnenda.
Opin og jákvæð samskipti
Lögð er áhersla á opin, jákvæð og
lærdómsrík samskipti. „Við hvetj-
um starfsmenn til að staldra við
og gera stutt áhættumat, áður en
þeir hefja vinnu til að tryggja sem
best öruggt verklag og að koma í
veg fyrir slys. Rík áhersla er lögð
á að starfsmenn fylgi öryggisregl-
um Verkís og einnig þeim öryggis-
reglum sem gilda á vinnusvæðum
annarra. Við skráum atvik, rýnum
þau og drögum lærdóm af þeim.
Fræðsla er mikilvægur þáttur og
er boðið upp á margskonar nám-
skeið fyrir starfsmenn sem og
viðskiptavini,“ segir Dóra Hjálm-
arsdóttir en hún er í forsvari fyrir
öryggisráðgjöf Verkís.
Heilbrigð sál í hraustum líkama
Fyrirtækið styður heilbrigt matar-
æði og hreyfingu m.a. eru ávextir
í boði sem millibiti, veittir eru
íþrótta- og samgöngustyrkir auk
hvatningar til almennrar hreyf-
ingar. Þá hefur reglulega verið
boðið upp á jakkafatajóga til að
efla andlegu hliðina.
Öryggi í verkefnum
Verkís er einnig umhugað um að
öryggismál séu í hávegum höfð í
þeim verkefnum sem fyrirtækið
tekur að sér. Þetta á meðal annars
við um öryggi mannvirkja, allt frá
hönnun og til loka framkvæmda.
Verkís veitir fjölþætta þjónustu
í vinnuvernd, öryggismálum,
áhættustjórnun og neyðarvið-
brögðum og er viðurkenndur
þjónustuaðili í vinnuvernd. Meðal
verkefna má nefna gerð skriflegr-
ar áætlunar fyrirtækja um öryggi
og heilbrigði á vinnustöðum, gerð
verkfæra fyrir áhættustjórnun og
öryggismál, neyðar- og rýminga-
ræfingar, öryggisúttektir, fjöl-
breytt úrval námskeiða og LEAN
tengd verkefni eins og „Stöðluð
vinnubrögð“.
Þátttaka starfsmanna
er lykilatriði
„Þegar unnin eru áhættusöm ver-
kefni skiptir góður undirbúningur
gríðarlega miklu máli fyrir öryggi
starfsmanna. „Stöðluð vinnu-
brögð“ er góð leið til að tryggja
góðan undirbúning og miðar að
því að finna bestu og öruggustu
vinnubrögðin,“ segir Dagmar I.
Birgisdóttir, ráðgjafi í öryggis-
teymi Verkís.
Hún segir það lykilatriði að
starfsmennirnir sjálfir taki fullan
þátt í vinnunni og að þeim finn-
ist útkoman hjálpleg og gagnleg.
„Nákvæmt áhættumat er unnið
fyrir hvert starf í vinnustofum,
þar sem starfsmenn nefna þær
áhættur sem starfinu fylgja og
þær ráðstafanir sem þeir fram-
kvæma til að fyrirbyggja slys.
Starfsmenn komast að sameigin-
legri niðurstöðu um hvernig best
og öruggast sé að vinna um-
ræddan verkþátt. Þannig styrk-
ist eignarhald þeirra á oft lífs-
nauðsynlegu verklagi.“
Niðurstaðan er einföld, skýr og
myndræn vinnulýsing með öllum
mikilvægum skrefum í verkefn-
inu. Hún er kynnt öllum og höfð
aðgengileg á handhægu formi. Í
framhaldinu fer fram rýni á öllum
stigum fyrirtækisins. Starfsmenn
rýna hvorn annan og stjórnend-
ur fara út á vinnusvæðin og rýna
vinnubrögðin með starfsmönnum.
Jákvæð og uppbyggileg sam-
skipti eru þar höfð að leiðarljósi.
Rýni er oft rædd og skráð á töflu-
fundi í upphafi dags.
Mikil framför á síðustu árum
Reynslan hefur sýnt að það er
hægt að koma í veg fyrir slys
með skipulögðum vinnubrögð-
um, áhættumati, rýni og þátttöku
starfsmanna. Góð reynsla er af
verklaginu við „Stöðluð vinnu-
brögð“ m.a. í álverinu í Straums-
vík og unnið er að innleiðingu hjá
Orkuveitu Reykjavíkur og Lands-
neti.
„Vinnufundir með starfsmönnum
eru skemmtilegir, frábær dínamík
myndast þegar starfsmenn fara
yfir vinnuna og vinnubrögðin
saman. Upp koma margar áhuga-
verðar sögur, sem enda oft á „en
ég mundi aldrei gera þetta í dag“.
Frásagnir reynslumikilla starfs-
manna og árangur síðustu ára sýnir
að við erum að ná góðum árangri. Á
síðustu árum hefur öryggisvitund
og öryggi starfsmanna á Íslandi í
flestum starfsgreinum aukist veru-
lega,“ segja þær Dagmar og Dóra.
„Við erum í langhlaupi og þurf-
um að halda ótrauð áfram, auka
öryggisvitund, fræða kortleggja,
áhættur og vinna úrbætur. Því með
aukinni öryggisvitund starfsmanna
aukum við einnig öryggið í samfé-
laginu og komum í veg fyrir slys.“
„Við hvetjum
starfsmenn
til að staldra við og
gera stutt áhættu-
mat, áður en þeir
hefja vinnu til að
tryggja sem best
öruggt verklag og að
koma í veg fyrir slys.
„Reynslan
hefur sýnt að
það er hægt að koma
í veg fyrir slys“
Verkís hlaut forvarnarverðlaun VÍS 2017.
7 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2017 ÖRYGGIÁVINNUSTÖÐUM