Fréttatíminn - 25.03.2017, Qupperneq 4

Fréttatíminn - 25.03.2017, Qupperneq 4
4 | FRÉTTATÍMINN | LAUGARDAGUR 25. MARS 2017 H V ÍT A H Ú S IÐ / A ct av is 7 1 3 0 4 0 Íbúfen® Íbúprófen 20 mg/ml mixtúra Dreifa – Með appelsínu og vanillubragði Almannatryggingar Velferð- arráðuneytið samdi frumvarp um afturvirk lög þar sem milljarða réttindi voru tek- in af öldruðum en ekki vel- ferðarnefnd. Þetta kemur fram í svari Nichole Leigh Mosty, formanns nefndarinnar, við fyrirspurnum Fréttatímans. Svarið stangast á við skýringar ráðuneytisins sem hafnaði beiðni Fréttatímans um frumvarpsdrög á þeim forsendum að engin slík gögn væru til. Atli Þór Fanndal ritstjorn@frettatiminn.is Tryggingastofnun virðist líka hafa eytt öllum gögnum vegna sinna út- reikninga. „Það eru engin gögn til um þetta atriði,“ segir í svari stofn- unarinnar um aðgang að gögnun- um. Samskipti við ráðherra vegna málsins virðast ekki hafa verið skráð og beiðni um afrit af þeim var því hafnað. Nichole segir málið hafa fengið „nokkuð hefðbundna málsmeð- ferð“ í þinginu. „Fulltrúar úr vel- ferðarráðuneytinu komu fyrir nefndina eins fljótt og kostur var eftir að málið kom í ljós. Þar var öllum nefndarmönnum kynnt mál- ið og borið undir nefndina hvort hún væri til í að flytja málið fyr- ir þinginu.“ Umræddur fundur fór fram 6. febrúar, skömmu áður en þingið átti að fara í kjördæmaviku. Það var Tryggingastofnun sem tók eftir því í lok janúar að greiðslur úr skyldubundnum lífeyrissjóði töld- ust ekki til tekna samkvæmt laga- bókstaf sem þýðir að þær reiknast ekki til skerðingar greiðslna frá Tryggingastofnun. „Þá hafði Tryggingastofnun þegar greitt ellilífeyri fyrirfram fyrir janúar og tölvukeyrslu var lokið vegna greiðslu bóta fyrir febrúar. Þar af leiðandi var hvorki um að ræða sérstaka ákvörðun Tryggingastofnunar né einhverja staðfestingu af hálfu ráðuneytisins um „að greiða ekki út þrátt fyrir lagabókstaf“,“ segir í svari ráðu- neytisins við ósk um afrit af öll- um þeim gögnum sem nýtt voru við mat ráðuneytis eða Trygginga- stofnunar um að greiða ekki út í samræmi við gildandi lög heldur það sem kallað hefur verið vilji lög- gjafans. Hið rétta er þó að ákveðið var að greiða ekki út í samræmi við lög eftir að villan var uppvís. Engin til- raun var gerð til leiðréttingar og útreikningar á kostnaði voru gerð- ir utan kerfis. Þá fékk Trygginga- stofnun fyrirmæli frá ráðuneytinu um að „reikna með því að greiða marsmánuð með sama hætti og janúar og febrúar.“ Skömmu eftir fund fulltrúa velferðarráðuneytisins með vel- ferðarnefnd Alþingis óskaði ráðu- neytið eftir áliti ríkislögmanns á því hvort setja mætti afturvirk lög. Í álitinu er vísað til bréfs frá ráðu- neytinu þar sem gefin eru fyrir- mæli um hvað skal athuga. Í sama áliti kemur fram að ráðuneytið undirbúi frumvarp til breytingu laganna. Þessi gögn neitar ráðu- neytið að séu til. Álit ríkislögmanns er sam- kvæmt heimildum Fréttatímans í algjörri andstöðu við álit þeirra sérfræðinga sem nefndin kallaði til vegna málsins. Ríkislögmaður telur það ekkert sérstaklega vand- kvæðum háð í þessu tilviki að setja lög aftur í tímann. Nichole segir starfsmenn ráðu- neytisins hafa eftir fundinn 6. febrúar verið í samskiptum við starfsmenn velferðarnefndar vegna vinnslu á frumvarpinu. „Í framhaldi af umræðum nefndar- innar var ákveðið að ráðuneytið gerði drög að frumvarpinu í sam- ráði við starfsmenn nefndarinnar með hliðsjón af þeim umræðum sem fram fóru í nefndinni,“ segir Nichole. Þetta gengur í berhögg við svör ráðuneytisins við ítrekuðum beiðnum um gögn vegna vinnslu málsins. Halldóra Mogensen, fulltrúi Pírata í velferðarnefnd, spurði þó ráðherra í þinginu þann 27. febrú- ar hvers vegna hann hafi ekki talað sjálfur fyrir málinu. Þorsteinn sagði „augljóst“ að um mistök væri að ræða og að ásetningur löggjaf- ans hefði verið annar en varð raun- in. Þá vitnaði hann til hefðar sem hann þekkti reyndar ekki sjálfur sem ástæðu þess að hann tæki ekki ábyrgð á málinu. Ráðamenn hylja slóðina Frumvarp velferðarnefndar var samið af starfsfólki velferðarráðuneytisins með vitund og vilja Þorsteins Víglunds- sonar, félags- og velferðarráðherra. Nichole Leigh Mosty, formaður vel- ferðarnefndar, staðfesti við Frétta- tímann að ráðuneytið hefði skrifað frumvarpið. Halldóra Mogensen, fulltrúi Pírata í velferðarnefnd, spurði ráðherra út í málið á þingi. Það eru einu merki þess opinberlega að ráðherra hafi komið að málinu. Í HNOTSKURN Velferðarráðuneytið samdi frum- varp ofan í velferðarnefnd. - - - Allt kapp var lagt á að fela og eyða gögnum - - - Álit Ríkislögmanns er í andstöðu við ráðleggingar gesta vel- ferðarnefndar - - - Ráðuneytið lagði blessun á að greiða ekki út í samræmi við lög - - - Gögnum málsins virðist hafa verið eytt í Tryggingastofnun Sjálfstæðismenn vilja íþróttaaðstöðu frekar en fjölbýli í Vesturbæ Kjartan Magnússon vill betri íþróttaaðstöðu í Vesturbæ frekar en fjölbýlishús. Skipulagsmál Kjartan Magnússon borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks er ósáttur við að nýta eigi SÍF-reitinn við Keilugranda undir fjölbýlishús, eins og borgarstjórn samþykkti á dögunum. Sjálfstæðismenn segja brýnni þörf fyrir íþróttamann- virki og að þétting byggðarinnar sé á kostnað innviðauppbyggingar. Meirihluti borgarstjórnar sam- þykkti á dögunum að úthluta lóð við Keilugranda til Búseta ásamt byggingarétti fyrir 78 búseturétt- ar- eða leiguíbúðir. Borgarfulltrú- ar Sjálfstæðisflokks segja byggða- þéttinguna í Vesturbæ Reykjavíkur vera ábyrgðarlausa og að meirihlut- inn gleymi uppbyggingu innviða í hraðri þéttingu byggðar. „Útlit er fyrir mikla þéttingu byggðar í Vesturbænum á næstu árum, sem gæti haft í för með sér að íbúum hverfisins fjölgi um að minnsta kosti 5.500 manns eða 33%. Meirihluti Samfylkingar, Bjartrar framtíðar, Pírata og Vinstri grænna sýnir af sér mikið fyrirhyggju- leysi í skipulagsmálum með því að leggja annars vegar mikla áherslu á þéttingu byggðar í Vesturbæn- um en neita hins vegar að horfast í augu við þá staðreynd að slík fjölgun kallar á samsvarandi uppbyggingu innviða, ekki síst í þágu íþrótta og skólastarfsemi. Með þeirri ákvörðun meirihlutans að ráðstafa svæðinu undir þétta fjölbýlishúsabyggð er jafnframt komið í veg fyrir að hún nýtist í þágu íþrótta- og æskulýðs- starfsemi í Vesturbænum,“ segir í bókun Sjálfstæðismanna. Kjartan vakti athygli á málinu í íbúahópi Vesturbæinga á Facebook í vikunni þar sem tekist var á um hvort raunverulega þurfi meira pláss undir íþróttaaðstöðu í hverfinu, eða hvort skipuleggja þurfi íþróttaað- stöðuna sem fyrir er, betur. | þt Viðskipti Tæplega 25 milljarða króna kröfum var lýst í þrotabú Magnúsar Þorsteinssonar og 25 milljónir hafa fengist upp í þær. Ingi F. Vilhjálmsson ingi@frettatiminn.is Magnús Þorsteinsson fjárfestir á eignir í útlöndum sem skiptastjóri þrotabús hans bíður enn eftir að koma til Íslands. Þessar eignir eru ekki hluti af þeim tæplega 25 millj- ónum króna sem greiddust upp í rúmlega 24,5 milljarða króna kröf- ur sem lýst var í bú hans. Skipta- lok Magnúsar voru auglýst í Lög- birtingablaðinu á fimmtudaginn en skiptastjórinn, Ingvar Þórodds- son, segir að sá fyrirvari sé á skipt- um þess að hann sé að leita leiða til að koma eignum sem Magnús átti, og búið hefur safnað saman á einn stað, til Íslands. „Það eru eignir í út- löndum sem á eftir að koma í verð. Það tók það langan tíma að það varð að gera þetta svona.“ Ingvar seg- ir flókið að koma eignunum, sem hann vill ekki gefa upp hverjar eru. Ingvar vill ekki gefa upp hversu miklar þessar eignir eru eða hvar þær voru. Magnús hefur hins vegar verið búsettur í Rússlandi síðustu ár og í fréttum um gjaldþrotaskipti hefur komið fram að hann hafi átt eignir í Rússlandi, meðal annars fasteignir við hafnarsvæði í Sankti Pétursborg. Ingvar segir að hann vilji ekki gefa upp hverjir voru stærstu kröfuhafarnir í búið vegna trúnaðar. Magnús var stórvirkur fjárfestir á Íslandi á árunum fyrir hrunið 2008 og var meðal annars einn af hlut- höfum Landsbankans ásamt Björg- ólfsfeðgum. Eftir hrun hefur lítið farið fyrir honum í fjárfestingum á Íslandi. Gjaldþrot Magnúsar: Á meiri eignir í útlöndum Magnús Þorsteinsson á eignir í útlöndum sem þrotabú hans reynir að koma til Íslands.

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.