Fréttatíminn - 25.03.2017, Blaðsíða 38

Fréttatíminn - 25.03.2017, Blaðsíða 38
6 LAUGARDAGUR 25. MARS 2017MATARTÍMINN Reyktur og grafinn lax á heimsmælikvarða Reykhúsið Reykhólar er staðsett við Eyrartröð 16 í Hafnarfirði og var stofnað árið 2009 af þeim Oddi Vilmundarsyni og Aðalsteini Finsen. Báðir hafa þeir langa reynslu af vinnslu sjávarafurða. Þeir félagar voru sammála um að rými væri fyrir gæðavöru á þessu sviði á markaði hérlendis sem og erlendis. Unnið í samstarfi við Reykhúsið Reykhóla Þegar Oddur er spurður að því hver sérstaða þeirra sé á markaði segir hann. „Við höfum allt frá stofn- un fyrirtækisins lagt mikla áherslu á mikil gæði í okkar framleiðslu. Við höfum lagt okkur fram við að halda ferskleikanum og bragð- gæðunum. Við sérhæfum okkur í reyktum og gröfnum laxi og öðr- um bleikfiski. Við einfölduðum hjá okkur vinnsluna núna fyrir tveimur árum og drógum okkur út úr fersk- laxasölunni og lögðum allt kapp á það sem við erum bestir í að reykja og grafa. Einkunnarorð okkar hafa alltaf verið gæði og gott bragð og fyrir það stöndum við.“ Hvaðan kemur laxinn sem þið vinnið? „Við skiptum langmest við Arnarlax sem er stærsta laxeldis- fyrirtæki á Íslandi og er með starf- semi sína á Vestfjörðum í þremur fjörðum, Arnarfirði, Tálknafirði og Patreksfirði. Þar er laxinn alinn við bestu hugsanlegu aðstæður og kemur ferskur til okkar þar sem hann er unninn. Við handflökum laxinn og handsneiðum hann og styðjumst ekki mikið við vélar í okkar starfsemi. Á sumrin fáum við líka slatta af fiski frá stangveiði- mönnum sem koma til okkar ár eft- ir ár,“ segir Oddur. Hvar er hægt að nálgast afurðir ykkar? Veislu og fundarsalir í hjarta miðborgarinnar CenterHotels er fjölskyldurekin hótelkeðja með sex hótel sem öll eru staðsett í miðborg Reykjavíkur. Auk hótelrýmis reka CenterHotels þrjá glæsilega veitingastaði og SPA Unnið í samstarfi við CenterHotels Á hótelunum er einnig að finna glæsilega veislu- og fundarsali þar sem eru öll nútímaþægindi til veislu- og fundarhalda. Í fundarsölunum er hægt að fá úrval veitinga, hvort sem um er að ræða kaffi, smárétti, hádegisverði eða þrírétta kvöld- seðil. Veitingarnar fyrir salina eru samansafn af spennandi réttum sem koma frá veitinga- staðnum Jörgensen Kitchen & Bar. Á CenterHotel Plaza sem staðsett er í hjarta miðborgar- innar við Aðalstræti 4-6 er að finna nýjan og glæsilegan 250 fermetra veislusal sem hægt er að leigja fyrir ýmiss konar einkasam- kvæmi. Salurinn er fallega inn- réttaður með mjög gott aðgengi. Arnar Magnússon markaðsfulltrúi fyrir fundarsalina og Ingibjörg Karen Sigurjónsdóttir hótelstjóri á CenterHotel Plaza segja að mikil eftirspurn sé eftir veislu- og fundarsölum með veitingum en salirnir eru mikið bókaðir á næstunni fyrir fermingarveislur enda er mikið um slíkar veislur framundan. „Auk stóra salarins á Plaza bjóðum við upp á aðra þrjá sali sem eru misstórir, allt frá 50 fermetrum upp í 150 fermetra. Hægt er að stilla sölunum upp á marga vegu allt eftir þörfum og óskum hvers og eins. Fundar- og veisluaðstaðan hjá CenterHotels er vinsæl fyrir gesti sem koma erlendis frá sem og þá sem koma utan af landi þar sem hægt er að bóka gistingu á hótelinu með sölunum og örstutt er að auki í alla þjónustu í miðborginni þannig að fólk getur sparað sér tíma sem annars færi í það að koma sér á milli staða,“ segja þau. Á CenterHotel Þingholti sem staðsett er á Þingholtsstræti 3-5 er að finna fundarherbergi sem tilvalið er fyrir námskeiða- höld, kynningar og minni fundi. Fundarherbergið er staðsett rétt inn af veitingastaðnum Ísafold og býður því upp á að hægt sé að taka hádegisfundi með ljúffengum veitingum frá Ísafold en þó fjarri erlinum á veitingastaðnum. Salur- inn er einnig tilvalinn að kvöldi til fyrir einkaveislur en í honum er eitt stórt borð með sæti fyrir 14 manns. „Gott og jákvætt viðhorf er það sem bíður gesta sem nýta sér þjónustu CenterHotels en góð þjónusta er það sem við leggjum mikla áherslu á. Við leggjum metnað okkar í það að gera upplifun veislu- og fundar- gesta sem allra besta með fallegu umhverfi, góðri þjónustu og ljúffengum veitingum,“ segja þau Arnar og Ingibjörg. „Aðaláherlsa okkar er á innlend- an markað, hægt er nálgast afurðir okkar mjög víða. Við erum í Krón- unni, Fjarðarkaupum, Hagkaup, Melabúðinni, Nóatúni og Kjarval. Við seljum líka töluvert af okkar afurðum til veitingastaða og hót- ela. Svo erum við líka í Flugstöð- inni í Keflavík í verslun sem heitir Pure food hall,“ segir Oddur. Hvað með erlenda markaði? „Við seljum alltaf eitthvað til útlanda, gengið á krónunni hefur svo sem ekkert verið að hjálpa okkur undanfarið. Við seljum helst laxinn okkar til Evrópu og svo er alltaf eitthvað um að erlendir stangveiðimenn láti okkur vinna fiskinn fyrir sig og við sendum þeim fiskinn þegar hann er full- unnin,“ segir Oddur Þið hafið fengið verðlaun fyrir framleiðslu ykkar, ekki satt? „Jú, við erum virkilega stolt af því og það er viðurkenning fyrir þau störf sem við höfum verið að vinna. Við fengum gullverðlaun fyrir reykta laxinn okkar og silfur fyrir graflaxinn okkar árið 2014 í keppni MFK sem er matvæla- keppni sem er haldinn annað hvert ár. Árið 2016 snérist þetta svo við, við fengum gull fyrir graflax- inn og silfur fyrir reykta laxinn. Þetta auðveldaði allt markaðstarf fyrir okkur og vakti verðskuldaða athygli á því gæðastarfi sem hér er unnið,“ segir Oddur. Glæsilegir fundarsalir þar sem öll aðstaða er til fyrirmyndar. Arnar og Ingibjörg segja mikinn tímasparnað geta falist í því að fá veitingar á fundi. Oddur Vilmundarsson eigandi Reykhússins Reykhóla segir að allt kapp sé lagt á gæði og gott bragð. Reykhúsið er það eina í heiminum notar hvönn á grafinn og reyktan lax fyrir erlendan markað og einstaka veitingastaði hér á landi og það hefur vakið mikla lukku.

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.