Fréttatíminn - 25.03.2017, Blaðsíða 40
Bergsson mathús hefur
nú líka opið á kvöldin
„Einfaldur. Hægur. Nærandi. Bragðgóður. Árstíðabundinn. Beint frá bónda. Eldaður af ástríðu.
Úr góðu hráefni. Sem þú borðar aftur og aftur. Í góðum félagsskap. Það er okkar matur.“
Unnið í samstarfi
við Bergson mathús
Bergsson mathús og Bergsson RE eru vinsælir morgun- og hádegisverða-staðir og hafa stimpl-
að sig rækilega inn í ört vaxandi
veitingahúsaflóru Reykjavíkur.
Staðirnir eru þekktir fyrir einfald-
an, hollan og góðan mat en ekki
síst þægilegt andrúmsloft. Nú
verður boðið upp á þá nýbreytni
að Bergson í Templarasundi verð-
ur opið fram á kvöld, þar mun líta
dagsins ljós nýr og spennandi
kvöldseðill. Áherslan verður
áfram á afslappaða og notalega
stemningu og úrvalsvín verða á
boðstólnum.
Bergson staðirnir eru fallega
innréttaðir á afslappaðan máta í
þeim tilgangi að láta fólki líða vel
á meðan það nýtur góðs matar og
félagsskapar.
Nýlega var René Boonekamp
ráðinn sem veitingastjóri staðar-
ins í Templarasundi, hann mun sjá
um kvöldopnun staðarins. René
er hollenskur veitingamaður með
mikla reynslu af rekstri veitinga-
staða.
Hverjar verða áherslurnar hjá
René á kvöldseðlinum og hvaða
hráefni verða í forgrunni?
„Við ætlum að halda áfram að
þróa það frábæra starf sem hefur
verið unnið á Bergson mathúsi.
Þetta er því hrein og klár viðbót
við staðinn. Við verðum með „a
la carte“ seðill þar sem áherslan
verður á gott íslenskt hráefni sem
við reynum að fá beint frá býli.
Við þjónum til borðs og leggjum
mikla áherslu á það að fjölskyld-
ur geti komið hérna saman að
kvöldi til og átt hjá okkur nota-
lega kvöldstund og fengið fram-
úrskarandi mat auk þess sem við
verðum með gott úrval af lífræn-
um vínum. Á matseðlinum erum
við líka með rétti sem eru tilvaldir
til þess að deila, það getur verið
frábær kostur fyrir fjölskyldur svo
allir fái sem fjölbreyttustu matar-
upplifunina,“ segir René.
Verður grænmeti fyrirferðar-
mikið á nýja matseðlinum?
„Maturinn okkar á að vera nær-
andi og bragðgóður og við leggj-
um mikla áherslu að hafa gott
úrval af grænmeti og við bjóð-
um líka upp á veganrétti fyrir þá
sem kjósa þá frekar. Við höfum
fundið mikið fyrir auknum áhuga
fólks á vegan lífstílnum sem ég
tel að haldist í hendur við aukna
umhverfisvitund fólks. Við viljum
að maturinn okkar höfði til allra
skilningarvita og framsetningin á
matnum sé falleg og litrík því við
borðum líka með augunum,“ segir
René
Hvernig hafa viðtökurnar verið?
„Viðtökurnar hafa bara verið
mjög góðar, það var greinilega
eftirspurn eftir því að við værum
með opið á kvöldin. Fólk vill geta
komið inn á svona stað eins og við
erum að reka þar sem fólki líður
vel og fengið góðan mat á sann-
gjörnu verði. Það er ástæða fyrir
því að fólk kemur til okkar aftur
og aftur,“ segir René.
Hvað með vínseðil, hvernig
mun hann líta út?
,,Við leggjum ríka áherslu á að
vínin okkar séu lífrænn, vín eru
almennt frekar dýr og því leggjum
við mikið upp úr því að bjóða ein-
göngu upp á lífræn gæðavín sem
fullkomnar máltíðina og styður
við matinn og upplifunina," segir
René.
En hvað er það sem dró
hollenskan veitingamann til
Íslands?
„Ég flutti hingað til Íslands
með konunni minni fyrir tveimur
árum. Það var í raun og veru af
einskærri ævintýraþrá og okkur
langaði til þess að prófa eitthvað
nýtt og breyta um umhverfi. Kon-
an mín fékk strax vinnu hér. Ég
hef verið að vinna fyrir reykja-
vik coworking unit sem sér um
að leigja út skrifstofuhúsnæði til
einyrkja. Úti í Holllandi var ég að
vinna á ítölskum veitingastað
svo komst ég í kynni við Þóri hjá
Bergsson og þá var ekki aftur
snúið og ég kolféll fyrir staðnum
og hugmyndafræðinni í kringum
staðinn,“ segir René.
René Boonekamp segir að viðtökurnar hafi verið mjög góðar
við þeirri viðbót að hafa opið á kvöldin hjá Bergsson.
Gott hráefni og falleg framsetning er lykilatriði svo upplifun gesta verði sem best.
8 LAUGARDAGUR 25. MARS 2017MATARTÍMINN