Fréttatíminn - 25.03.2017, Blaðsíða 18

Fréttatíminn - 25.03.2017, Blaðsíða 18
18 | FRÉTTATÍMINN | LAUGARDAGUR 25. MARS 2017 Vefsvæðið Class-Central.com heldur utanum háskólanámsfram-boð á netinu og þar gefa háskólanemar námskeiðunum einkunnir og um- sagnir. Vefurinn er gagnvirkur á svipaðan hátt og TripAdvisor, Goodreads, og Internet Movie Data Base og byggir algjörlega á endur- gjöf notenda. Þannig er hægt að sjá hvaða netnámskeið skara fram úr, hvaða fyrirlesarar þykja bestir og hvaða nám er vinsælast. Hér verður fjallað um nokkur þeirra námskeiða sem hafa vak- ið sérstaka athygli eru meðal 50 bestu samkvæmt þúsundum not- enda Class-Central.com. Harvard University Inngangur að tölvunarfræði CS50x Námskeiðið er kennt af David J. Malan, og fjallar um undirstöðuatriði í tölv- unarfræðum og listina að forrita. David kenn- ir nemendum hvernig á að hugsa í algóryþm- um og leysa vanda- mál á skilvirkan hátt. Farið er yfir vefþróun, algóryðma, öryggi og helstu hugtök í tölvunarfræðum. Þátttakendur fá innsýn í Python, SQL, and JavaScript plus CSSog HTML svo eitthvað sé nefnt. Á námskeiðinu er fengist við raunveruleg vandamál sem upp hafa komið í líffræði, fjármálaheimi, tölvuleikjum og dulkóðun. Þeir nemendur sem ná ágætiseinkunn í níu verkefnum ásamt lokaverkefni, eiga möguleika að fá skírteini að nám- skeiðinu loknu. Námskeiðið er sagt mjög krefjandi og lærdómsríkt, en nemendur geta sjálfir stjórnað því hve hratt þeir fara í gegnum það. Toppeinkunn á Class-Central. Póstsendum frítt hvert á land sem er! Fákafeni 9 | Sími 581-1552 | www.curvy.is BLÚSSA STÆRÐIR 14-28 VERÐ: 7.990 KR STUTTBUXUR STÆRÐIR 14-26 VERÐ: 6.590 KR NÝ SENDING MEÐ SUNDFÖTUM ! Stærðir 14-26 eða 42-54 STÆRÐIR 14-28 NÝ SENDING JÓLAKJÓLUM Mikið úrval í stærðum14-28 eða 42-56 VERTU VELKOMIN Í VERSLUN CURVY AÐ FÁKAFENI 9 EÐA SKOÐAÐU ÚRVALIÐ OG PANTAÐU Á WWW.CURVY.IS Fákafeni 9, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is Fákafeni 9, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is FALLEGIR KJÓLAR Stærðir 14-30 eða 42-58 VERTU VELKOMIN Í VERSLUN OKKAR AÐ FÁKAFENI 9 EÐA PANTAÐU Á WWW.CURVY.IS AFGREIÐSLUTÍMAR Í VERSLUN CURVY.IS ALLA VIRKA DAGA FRÁ KL. 11-18 OG LAUGARDAGA FRÁ KL. 11-16 Þó það sé ekki sami fílingur að læra í sögufrægum byggingum Yale háskólans og sitja í nátt- buxunum heima og hlusta á fyrirlestra í tölvunni, þá getur ávinningurinn verið sá sami. Menntaðu þig frítt í bestu háskólum heims Menntun í virtustu háskólum heims hefur lengi vel aðeins verið á færi þeirra efnuðu eða þeirra sem eru svo heppnir að fá skólastyrki. Nú hafa margir eftirsóttustu háskólar heims tekið upp á að bjóða frí námskeið á netinu. Hér eru nokkur námskeið sem þykja bitastæðust og eru lofuð af þúsundum fyrrum nemenda. Þóra Tómasdóttir thora@frettatiminn.is Indian School of Business Hamingu- og innihaldsríkt líf Þetta er eitt allra vinsælasta ókeypis há- skólanám- skeiðið á netinu og fær frábæra umsögn fyrrum þátttakenda. Fjallað er um stærstu spurn- ingar lífsins, svo sem hvaða áhrifaþættir gerir okkur ham- ingjusöm. Námskeiðið byggir á margverð- launuðum kúrs sem kenndur er við Indian School of Business og McCombs School of Business við háskólann í Texas. Höfundur námskeiðsins er Raj Raghunathan en hann byggir á kennsluefni úr ýmsum fögum svo sem sálfræði, taugalækningum, atferlisfræði. Auk þess kennir hann marg- reynda og hagnýta uppskrift til að öðlast hamingju og lífsfyllingu. Námskeiðið er kennt á ensku, tekur sex vikur alls og þeir sem vilja geta keypt sér skírteini að námskeiði loknu. Næsta námskeið hefst 10. apríl. University of California Lærðu að læra: Öflug verkfæri sem auðvelda þér að tækla erfið fög Á þessu nám- skeiði lærir þú gagnlegar námstækni- aðferðir sem notaðar eru af sérfræðingum í listum, tón- list, bókmenntum, stærðfræði, íþróttum og vísindum. Kennt er hvernig heilinn notar tvær mjög ólíkar leiðir til að læra og leggja á minnið. Þá er farið í minnistækni, tækni við að undirbúa sig fyrir próf, og aðferðir sem samkvæmt rannsóknum eru árangursrík- astar til að læra og kljást við erfið fög. Í lýsingu á námskeiðinu segir meðal annars að aðferðirnar geti nýst þér, algjörlega óháð því hvað þú vilt læra og hversu erfitt það er. Að tileinka sér aðferðirnar getur breytt lífi þínu. Ef þig hefur dreymt um að bæta færni þína í einhverju, geturðu fengið leið- beiningar á þessu námskeiði. Yale University Siðferði hversdagsleikans Eitt vinsælasta þverfaglega námskeiðið sem Yale há- skólinn býð- ur uppá er heimspeki- legt og fjallar um hvernig hægt sé að greina milli góðs og ills. Hvaðan kemur siðferðisvitund okkar? Afhverju er fólk svo oft ósammála um sið- ferðisleg málefni? Þetta námskeið útskýrir sálfræðilegan grunn fyrir siðferðisvitund okkar. Rætt verður um athyglisverð- ar rannsóknir sem sýna hvernig siðferðisleg hegðun okkar er mót- uð. Niðurstöður rannsóknanna vekja upp flóknar spurningar um frjálsan vilja, siðferðislega ábyrgð og áhrifaþætti siðferðis. Ef gjörðir okkar ákvarðast af heilanum, gen- um okkar og aðstæðum, hvernig getum við þóst vera siðgæðisverð- ir? Námskeið er sex vikna langt og hefst næst 27. mars. Gert er ráð fyrir 6-14 klukkustunda náms- stundun á viku. Hægt er að kaupa skírteini að loknu námskeiði. Stanford University Undirstöðuatriði við stærðfræðilega hugsun „Lærðu að hugsa eins og stærð- fræðingar gera - öfl- ug vits- munaleg aðferð sem hefur verið í þróun í þúsund- ir ára,“ segir í lýsingu þessa ótrú- lega vinsæla og erfiða námskeiðs við Stanford háskólann. Á meðan skólastærðfræðin miðar að því að hugsa „inni í kass- anum“ snýst alvöru stærðfræði- leg hugsun um að hugsa út fyrir kassann. Á þessu námskeiði eru kennd undirstöðuatriði við slíkan hugsunarhátt. Námskeiðið 9 vikna langt og hefst næst 3. apríl. Hægt er að kaupa skírteini að námskeiði loknu.

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.