Fréttatíminn - 25.03.2017, Page 8
www.bjarmaland.is sími 770 50 60
bjarmaland@bjarmaland.is
ÚT Í HEIM MEÐ OKKUR!
ÆVINTÝRALJÓMI
TRANSILVANÍU
19. - 26. maí I 8 nætur
161 700
kr.
Rúmenía -
í fótspor Drakúla greifa
298 000
kr.
Moskva-Pétursborg
30. júlí - 09. ágúst I 10 nætur
SIGLING
KEISARALEIÐIN
Þurfum nærveru
og meiri samkennd
Í Fréttatímanum í síðustu viku fjölluðum
við um rannsóknir sem benda til þess að
fólk er meira einmana og einangrað í dag
en áður. Helga Sigurjónsdóttir, deildarstjóri
hjá Þjónustumiðstöð Breiðholts, segir
einmanaleikann oft vera rót vandans hjá
skjólstæðingum sínum.
8 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 24. MARS 2017
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Einmanaleikinn hellist yfir fólk af ólíkum ástæð-um og fólk er misvel undirbúið til að takast á við hann. Hverskyns
áföll, félagslegt umhverfi, einelti,
veikindi og fötlun eru allt þættir
sem geta ýtt undir einangrun. Verði
einangrunin langvarandi getur hún
leitt af sér svíðandi einmanaleika
sem veldur ekki aðeins andlegri
vanlíðan heldur einnig líkamlegri.
Helga Sigurjónsdóttir félagsráð-
gjafi og deildarstjóri hjá Þjónustu-
miðstöð Breiðholts segir fólk oft
eiga erfitt með
að viðurkenna að
það sé einmana
og hlutirnir því
oft komnir í óefni
þegar hefja eigi
vinnu við vand-
ann. „Það kemur
hingað mjög mikið
af fullorðnu fólki
sem býr eitt og er innilokað og ein-
mana. Þegar við heyrum af fólki sem
hefur ekki farið út í marga mánuði
þá förum við og bönkum upp á og
bjóðum aðstoð okkar, en sumir vilja
enga aðstoð. Margir hafa það ansi
dapurt,“ segir Helga.
En það eru ekki bara fullorðnir
sem eru einmana. Rannsóknir sýna
að kvíði og þunglyndi er vaxandi
vandamál meðal íslenskra grunn-
skólabarna. Helga segir einmana-
leika og félagsfælni að sama skapi
hafa aukist, enda haldist þetta allt
í hendur. Erfitt sé að henda reið-
ur á hvað valdi þessari samfélags-
breytingu en ýmislegt komi til
greina. Hennar persónulega skoðun
er sú að það sé flóknara að vera
ungur í dag. „Maður veltir því fyrir
sér hvort aukið áreiti sem ungt fólk
verður fyrir í dag sé hluti vandans.
Fólk hefur minni tíma og mestur
tími fer í samfélagsmiðla og netið
þar sem unga fólkið samsamar sig
við óraunhæfar fyrirmyndir. Mér
finnst hraðinn vera meiri í dag og
ég held að það skipti miklu máli að
foreldrar fylgist vel með unglingn-
um sínum og að fjölskyldan eigi sér
samverustundir. Bara það að borða
kvöldmat saman er mikilvægt.“
„Maður sér að sumar fjölskyldur
eru ekki saman jafnvel þó, þær eyði
tíma saman, hver og einn er í sínu
horni með tækin sín. Það er minna
um nærveru og samkennd. Og það
er minna um að stórfjölskyldur hitt-
ist, að mínu mati. Við sjáum það
klárlega að fólk er einangraðara en
áður. Það er margur sem á hrein-
lega engan að. Ungt fólk sem hef-
ur farið út af sporinu á oft á tíðum
engan að. Það eru til dæmi um það
að við hér séum þau einu sem fólk
getur hallað sér að,“ segir Helga og
tekur undir það að einmanaleikinn
sé samfélagslegt tabú sem mörgum
reynist erfitt að ræða. „Það er erfitt
að tala um einmanaleikann því það
er í eðli okkar að vilja líta vel út, út
á við. Við erum oft búin að tala lengi
við skjólstæðinga okkar áður en við
áttum okkur á því að einmanaleik-
inn er helsta rót vandans. Þetta er
mikið áhyggjuefni sem við þurfum
klárlega að veita athygli.“
„EINN TÍMI HJÁ
SÁLFRÆÐINGI
KOSTAR SEXTÁN
ÞÚSUND OG ÞAÐ
HAFA EKKI ALLIR
EFNI Á ÞVÍ.“
- Ólöf Elíasdóttir
„ÞAÐ Á EKKI AÐ
ÞURFA AÐ GERAST
AÐ FÓLK VERÐI
ÞUNGLYNT.“
- Guðlaug Sæmundsdóttir
„ÞAÐ ER ALLT
ÖÐRUVÍSI AÐ VERA
EINN OG VILJA ÞAÐ
EN AÐ UPPLIFA
EINMANALEIKA. “
- Björgvin Eðvaldsson
Við sjáum
það klár-
lega að fólk
er einangr-
aðara en
áður.
EINMANALEIKI