Fréttatíminn - 25.03.2017, Síða 12
12 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 24. MARS 2017
Ólöf Elíasdóttir byrjaði fjórtán ára
gömul með fyrrverandi mannin-
um sinum. Eftir skilnaðinn þurfti
hún að læra allt upp á nýtt, ekki
síst að vera ein með sjálfri sér.
Ólöf Elíasdóttir segist alltaf hafa ver-
ið á skjön við alla vini sína. Hún byrj-
aði fjórtán ára gömul með fyrrver-
andi manni sínum, var orðin þriggja
barna móðir tuttugu og tveggja ára
og amma rúmlega þrítug. Á meðan
hún var að halda heimili og stofna
fyrirtæki voru vinirnir ennþá í skóla
og á djamminu. „Það var alltaf brjál-
að að gera í lífinu hjá okkur og ég
ætlaði bara að vera alltaf með þess-
um manni. Alltaf,“ segir Ólöf. En
skyndilega breyttist allt og í fyrsta
sinn horfði hún á framtíðina og sá
sig þar eina.
Ætlaði ekki að verða bitur
„Þetta er í raun eins og sorgarferli.
Það myndast einhver hola innra
með manni, einhver tómleiki sem
maður verður að takast á við. Ef
maki þinn deyr þá er tekið utan um
þig og það er hægt að leita á ýmsa
staði en það er ekki þannig þegar þú
skilur,“ segir Ólöf en í dag eru tvö ár
síðan hún skildi.
„Ég ákvað mjög meðvitað að fylla
þetta tóm innra með mér með ein-
hverju góðu en ekki einhverju drasli.
Ég ákvað strax að leita til sálfræðings
því ég vissi að ég gæti ekki gengið í
gegnum þetta hjálparlaust, og það
hjálpaði mikið. Ég horfði á sjálfa mig
einhversstaðar í gólfinu, mölbrotna,
og velti fyrir mér hvernig í ósköp-
unum ég ætti púsla mér saman. Ég
vissi að ég vildi ekki vera súra og
bitra konan, og ég vissi líka að ég
vildi ekki fara í netaskokkabuxum á
barinn,“ segir Ólöf og skellihlær. „Ég
ætlaði að komast frá þessum stormi
heil.“
Hefur ekki áhuga á Tinder
Ólöf segir fólk ósjálfrátt gera ráð fyr-
ir því að hún vilji finna nýjan maka.
En hún segir nauðsynlegt að læra að
vera einn með sjálfum sér í stað þess
að finna sér „hækju“ til að styðja sig
við.
„Ég þoli ekki þegar fólk vorkenn-
ir mér yfir því að vera ekki að deita.
Ég hef engan áhuga á því að vera á
deitmarkaðinum. Það er engin ör-
vænting fólgin í því að vera ein. Ég
er einhleyp, miðaldra og sjálfstæð
og er búin að læra svo margt nýtt
því ég var bara barn þegar ég fór í
samband. Lausnin við vanlíðaninni
felst alls ekki í því að leita sér að nýj-
um maka, og finnast maður þannig
vera einhvers virði. Hún felst í því
að læra að vera með sjálfum sér. Það
er dáldið eins og ég hafi verið ein á
svelli og ekki kunnað að skauta. En
ég ákvað að læra að skauta sjálf, ein
og óstudd, ná jafnvæginu án þess
að hafa einhverja hækju. Eftir að ég
tók þá ákvörðun hef ég ekkert verið
að velta samböndum fyrir mér. Það
kemur þegar ég er algjörlega fullfær
á svellinu, þá hitti ég hinn eina rétta.
Ég er ekki á Tinder og hef ekki farið
á eitt einasta deit. Ekki það að mér
sé ekki boðið út,“ segir Ólöf og hlær.
„Ég vissi bara að ég þyrfti að læra að
vera ein með sjálfri mér.“
Nauðsynlegt að rækta vinina
Eitt af því sem Ólöf ákvað að passa
upp á í sorgarferlinu var að einangra
sig ekki félagslega og að hafa sam-
band við vini þó oft hafi hana ekkert
langað til þess.
„Maður verður að hafa vit fyrir
sjálfum sér. Að vera einn heima er
allt í lagi ef þú ert að fara inn á við og
Ólöf Elíasdóttir segir skilnaðinn vera það hræðilegasta sem hún hafi upplifað en
að á sama tíma hafi verið spennandi áskorun að horfast í augu við framtíðina ein.
Þurfti að læra allt upp
á nýtt eftir skilnað
„Lausnin við vanlíðan-
inni felst alls ekki í því að
leita sér að nýjum maka,
og finnast maður þannig
vera einhvers virði. Hún
felst í því að læra að vera
með sjálfum sér.“
vilt vera einn. Stundum má manni
líka líða ógeðslega illa og maður á
ekkert að skammast sín fyrir það,
stundum er það bara þannig. Það
má liggja heima og grenja í einhvern
tíma en þegar þú ert búin að gera
það í smá tíma þá þarftu að standa
upp og snúa þér að öðru. Það koma
tímar sem ég nenni alls ekki úr húsi,
en þá geri ég meðvitað eitthvað í því.
Ég á tvo hunda og kisu svo á ég 5
dásamleg barnabörn og krakkana
mína. En þegar ég er búinn að sitja
fjögur kvöld í viku uppí sófa og horfa
á maraþon þætti, þá hringja ein-
hverjar bjöllur og ég geri eitthvað í
því. Ég er heppin að eiga vítt svið að
félögum og vinum sem ég fer með á
tónleika, bíó og hitt og þetta og ég er
mjög oft þriðja hjólið, fimmta hjólið
og sjöunda hjólið. Við komum oftast
í settum en ég er ekkert feimin við
EINMANALEIKI
að bjóða sjálfri mér með vinkonu og
eiginmanni út að borða eða jafnvel í
utanlandsferð,“ segir Ólöf.
Sótti styrk til ömmu
Hún segir að þrátt fyrir allt, allan
sársaukann, hafi það líka ver-
ið spennandi að standa allt í einu
frammi fyrir því verkefni að vera
ein.
„Stærsti sigurinn í þessu lífi er að
læra á sjálfan sig og vera við stjórn-
völin í eigin lífi. Í dag líður mér eins
og ég hafi fæðst á ný. Ég fór ein til
Bali um daginn og það var dálítið
eins og punkturinn yfir i-ið í þessu
ferli. Ég ákvað að fara ein því ég er
alltaf að hugsa um að styrkja sjálfa
mig og læra að vera ein. En ég er
líka meðvituð um að ég er algjör
forréttindamanneskja. Einn tími
hjá sálfræðingi kostar sextán þús-
und og það hafa ekki allir efni á því.
Og það geta ekki allir farið einir í
sjálfsskoðun til Balí. Ég hefði held-
ur aldrei komist í gegnum þetta án
þess að hafa húmor og geta hlegið
að sjálfri mér.“
„Ég er búin að gera allskonar hluti
til að styrkja mig en skilnaðurinn og
allt ferlið í kringum hann var það
erfiðasta og hræðilegasta sem ég hef
gengið í gegnum. En það er líka eitt-
hvað spennandi við að reyna að fylla
þessa holu sem myndast innra með
manni af einhverju góðu. Ég ákvað
að líta á það sem áskorun og þakka
fyrir það í dag. Það eru jú erfiðleik-
arnir sem kenna okkur og þroska
okkur meira en annað, við færumst
nær samkennd við hvert áfall, “ seg-
ir Ólöf en ein af hennar helstu fyrir-
myndum í lífinu var henni líka mikill
styrkur í öllu ferlinu. „Ég gleymi því
aldrei þegar amma mín sagði mér að
hún væri að deyja og að það myndi
taka einhvern tíma en að henni
þætti það mjög spennandi. Ég sótti
styrk í hennar viðhorf og finnst mér
eins og ég hafi lært að ganga upp á
nýtt. Það felast tækifæri í breyting-
um og ég hlakka til að takast á við
næsta kafla í lífinu.”
M
yn
di
r |
R
ut
Veitur ohf.
Bæjarhálsi 1 • 110 Reykjavík
Sími 516 6000 • veitur.is
Veitur ohf. • Bæjarhálsi 1 • 110 Reykjavík
516 6000 • veitur.is
Útboð
Veitur ohf.
Bæjarhálsi 1 • 110 Reykjavík
Sími 516 6000 • veitur.is
Veitur ohf. • Bæjarhálsi 1 • 110 Reykjavík
516 6000 • veitur.is
Útboð
Veitur ohf., óska eftir tilboðum í útboðsverkefnið:
Verkið felst í að endurnýja þök og og efsta hluta bols
á þremur hitaveitugeymum á Akranesi, Grjóteyri og
Kroppsmúla. Rífa skal núverandi klæðningu, einangrun
og stálvirki af þaki og efsta hluta bols, sjóða nýtt stálvirki
við bolinn sem eftir stendur og einangra og klæða nýja
þakið og efsta hluta bolsins með steinull, timbri, þakdúk
og álklæðningu. Að utan skal grunna og mála allt nýtt
stálvirki. Að innan skal háþrýstiþvo allan geyminn.
Þá er innifalið í verkinu að smíða og koma fyrir vatns-
lásum úr ryðfríu stáli á öllum þökunum.
Útboðsgögn er hægt að sækja án greiðslu frá
þriðjudeginum 28.03.2017 á vefsíðu Orkuveitunnar
https://www.or.is/fjarmal/utbod#page-7016
Útboðsverkefninu er nánar lýst í útboðsgögnum
„VEV-2017-10, Ný þök á hitaveitugeyma á Akranesi,
Grjóteyri og Kroppsmúla, útgefnum í mars 2017“
Tilboð verða opnuð hjá Veitum ohf., Bæjarhálsi 1,
110 Reykjavík, miðvikudaginn 12.04.2017 kl. 10:00.
VEV-2017-10 25.03.2017
NÝ ÞÖK Á HITAVEITUGEYMA
AKRANESI, GRJÓTEYRI OG
KROPPSMÚLA
Veitur ohf.
Bæjarhálsi 1 • 110 Reykjavík
Sími 516 6000 • veitur.is
Veitur ohf. • Bæjarhálsi 1 • 110 Reykjavík
516 6000 • veitur.is
Útboð
Veitur ohf.
Bæjarhálsi 1 • 110 Reykjavík
Sími 516 6000 • veitur.is
Veitur ohf. • Bæjarhálsi 1 • 110 Reykjavík
516 6000 • veitur.is
Útboð
Veitur ohf., og umhverfis- og skipulagssvið
Reykjavíkurborgar óska eftir tilboðum
í útboðsverkefnið:
Verkið felst í endurnýjun lagna og lagningu göngustígs
ásamt göngustígalýsingu.
Endurnýja skal hitaveitulagnir og kaldavatnslögn og
leggja göngustíg ásamt göngustígalýsingu.
Um er að ræða að grafa og fylla vegna hitaveitu- og
kaldavatnslagna auk jarðstrengja fyrir göngustígalýsingu,
fjarlægja gamlar hitaveitu- og kaldavatnslagnir, fjarlægja
hitaveitustokka, leggja hitaveitu- og kaldavatnslagnir,
leggja jarðstreng vegna stígalýsingar, malbika, og ganga
frá gróðursvæðum.
Framkvæmdasvæðið nær frá mörkum byggðar í
Ártúnsholti á opnu svæði milli Silunga- og Urriðakvíslar
og niður að austurenda stokks yfir Elliðaár, á bökkum
Elliðaáa.
Útboðsgögn er hægt að sækja án greiðslu frá
þriðjudeginum 28.03.2017 á vefsíðu Orkuveitunnar
https://www.or.is/fjarmal/utbod#page-7016
Útboðsverkefninu er nánar lýst í útboðsgögnum
„VEV-2017-08, Ártúnsholt seinni áfangi endurnýjun
hitaveitu og göngustígs, útgefnum í mars 2017“
Tilb ð verða opnuð hjá Veitum ohf., Bæjarhálsi 1,
110 Reykjavík, miðvikudaginn 12.04.2017 kl. 10:30.
VEV-2017-08 25.03.2017
ÁRTÚNSHOLT SEINNI ÁFANGI
ENDURNÝJUN HITAVEITU
OG GÖNGUSTÍGS