Fréttatíminn - 25.03.2017, Side 34
Lemon opnar norðan heiða
Fjórði Lemon-veitingastaðurinn hér á landi
verður opnaður í maí. Verður hann á Akureyri,
nánar tiltekið við Glerárgötu 32. Hjónin Jóhann
Stefánsson og Katrín Ósk Ómarsdóttir munu
reka staðinn undir sérleyfi frá stofnendum
Lemon. Alls verður þetta fimmti Lemon-stað-
urinn því auk þriggja á höfuðborgarsvæðinu er
einn slíkan að finna í París.
Handverksbjórar verðlaunaðir
Nýjar umbúðir handverks-
bjóralínu Víking brugghús
hefur hlotið tvenn verðlaun
að undanförnu. Í vikunni hlutu
umbúðirnar verðlaun Félags
íslenskra teiknara fyrir bestu
umbúðir en fyrir skemmstu
fengu þær lúður á verðlauna-
hátíð Ímark. Hönnunin, sem var gerð af Albert Muñoz, Sigurði Oddssyni
og Svölu Hjörleifsdóttur hjá auglýsingastofunni Jónsson & Le’macks,
vísar til skipa og sæfara á víkingaöld.
Nýr veitingastaður
á Granda
Mars hall veit inga hús + bar er nafnið
á nýjum veitingastað í Marshallhúsinu
úti á Granda. Þar ræður ríkjum Leifur
Kolbeinsson sem á árum áður rak La
Primavera í Austurstræti og síðar Kola-
brautina. Aðaláherslan er á ferskan fisk
og grænmetisrétti.
VIVINO
Kannastu
ekki við það
að smakka
gott vín í
veislu eða á
veitingastað
og ákveða
að þetta verði nú keypt næst en
muna svo ekki nafnið þegar komið
er í Vínbúðina? Með þessu appi
skannarðu einfaldlega miðann á
flöskunni og getur þar með undir-
búið næstu veislu án mikillar fyrir-
hafnar. Þá er hægt að gefa vínum
einkunn og halda þannig utan-
um sín eftirlætis vín. Eins mun
vera hægt að skanna vínseðla á
veitingahúsum og meta hver séu
bestu vínin, út frá einkunnunum
allra 22 milljóna notenda appsins.
UNTAPPD
Vinsælt meðal sístækkandi hóps
bjórnörda hér á landi. Hér skrá-
irðu inn alla nýju bjórana sem þú
smakkar og gefur þeim einkunn.
Svo skálarðu við vini og kunningja
og færð „verðlaun“ þegar þú hef-
ur smakkað ákveðið marga bjóra
af sömu gerð.
APPY HOUR
Frábært app á vegum Reykjavík
Grapevine sem heldur utanum
það hvar hægt er að komast á
Happy Hour á börum Reykjavíkur
hverju sinni. Þarna sérðu tíma-
setningar og verð á öllum stöðum
sem bjóða upp á gleðistundir.
4 frábær öpp fyrir mat og drykk
Tilboð á veitingastöðum og vínið sem þú manst aldrei hvað heitir.
EINKAKLÚBBURINN
Stærsti fríðinda- og afsláttar-
klúbbur landsins lifir enn góðu
lífi, 25 árum eftir stofnun, og nú í
appi á vegum Arionbanka. Þarna
er hægt að nálgast fjölmörg góð
tilboð á veitingastöðum, bæði 2
fyrir 1 og afsláttur af heildarreikn-
ingi. Meðal þess sem notendur
appsins fá er 2 fyrir 1 á Steikhús-
inu, á Sólon og á Café Nauthól,
eftir klukkan 17. Þá er hægt að fá
20% afslátt af heildarreikningi á
Hamborgarabúllunni og munar
nú um minna. Sé fólk
að fara út á lífið er
hægt að fá 2 fyrir 1 af
kokteilum og fleiru á
Pablo Discobar og 3
fyrir 1 af kokteilum á
Austur eða 60% af-
slátt af inneignarkorti á Bryggj-
unni brugghúsi. Þá er hægt að
næla sér í 35% afslátt í hádeginu
á Vegamótum og sitthvað fleira.
Þeir sem eru með einhvers konar
reikning í Arion geta sótt appið
sér að kostnaðarlausu.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Það verður gaman að sjá hvernig Garún Garún mun leggjast í íslenskt bjóráhugafólk,“ segir Sturlaugur Jón Björns-
son, bruggmeistari hjá Borg brugg-
húsi.
Sturlaugur og félagar hafa lokið
framleiðslu á sterkasta bjór sem
gerður hefur verið hér á landi. Um
er að ræða 21% Imperial Stout-
bjór sem kallast Garún Garún nr.
19.2. Þessi tvöfalda Garún er bæði
frost eimuð og tunnuþroskuð og er
væntanleg á markað hér á næst-
unni.
„Garún Garún er, eins og nafnið
gefur til kynna, nátengd okkar
hefðbundna 11,5% Imperial stout
sem nefnist einfaldlega Garún,“
segir Sturlaugur. „Helsti munurinn
er annarsvegar nær tvöfalt hærra
áfengishlutfall í Garún Garún,
eða 21%, auk þess sem hún hefur
fengið að þroskast á notuðum kon-
íakstunnum í nokkra mánuði. Að
öðru leyti er þetta sama uppskrift í
grunninn.“
Sturlaugur segir að til þess að ná
þessu háa alkóhólhlutfalli hafi ver-
ið beitt aðferð sem kallast á ensku
„Freeze Distilling“ eða frosteiming,
sem sé þó umdeilt orðasamhengi
þar sem hún eigi fátt sameiginlegt
með hefðbundnu eimingarferli.
„Við framkvæmdum þetta
þannig að við fylltum tank með
gerjaðri Garúnu sem þá var 11,5%
alkóhól að rúmmáli og komum
honum fyrir í stórum frysti. Með
smá einföldun þá er hægt að út-
skýra ferlið þannig að það fyrsta
sem frýs í lausninni er vatnið sem
skilur sig þá frá bjórnum og eftir
stendur bragðmeiri og alkóhólrík-
ari útgáfa. Á þessu stigi var ákveðin
harka í bragðinu og því ákváðum
við að setja bjórinn á notaðar kon-
íakstunnur í nokkra mánuði til að
mýkja hann upp með því að rúnna
til bragðið og auka fyllingu.“
Frosteiming, er það framtíðin?
„Við höfum gert nokkrar tilraunir
með frosteimingu bæði á stout-bjór-
um og IPA-bjórum sem við höfum
haft mjög gaman af. Frosteimað-
ur Úlfur hefur til að mynda verið
notaður í kokteila og fært þeim sitt
ávaxtaríka bragð og lykt í bland
við góða beiskju. Við munum ör-
ugglega vinna eitthvað áfram með
þetta,“ segir Sturlaugur sem var
staddur í Hollandi þegar Fréttatím-
inn náði tali af honum.
„Við verðum í Eindhoven í dag á
festivali sem nefnist Bier & Big. Við
erum að kynna brugghúsið til leiks
í Hollandi þessa dagana og munum
einnig nýta ferðina til að brugga
samstarfsbjór með Jopen brugg-
húsinu í Haarlem auk þess sem
við stöndum fyrir viðburði á In De
Wilderman sem er einn helsti craft-
bjórabarinn í Amsterdam,“ segir
Sturlaugur en sífellt algengara verð-
ur að bruggarar Borgar kynni bjóra
brugghússins úti í heimi og bruggi
með erlendum brugghúsum.
„Vaxandi áhugi á bjórgerð um
allan heim hefur gjörbylt þessu
umhverfi sem við lifum og störfum
í. Stór partur af starfi okkar í dag
gengur út á að ferðast og taka þátt í
bjórviðburðum um allan heim. Við
reynum að einskorða ferðalögin við
þau lönd sem við seljum bjórinn
okkar til en það væri auðvelt að
verja öllum sínum tíma í þetta ef
maður vildi – einhver þarf samt að
brugga,“ segir Sturlaugur.
„Þá verðum við á viðburðum í
Kaupmannahöfn í apríl, tveimur
hátíðum í Noregi í maí ásamt Tall-
inn Craft Beer Weekend í Eistlandi
svo eitthvað sé nefnt. Einnig vorum
við að staðfesta þátttöku á Mikkell-
er Beer Celebration Copenhagen
(MBCC) 2017, sem hefur borið
nafnið Copenhagen Beer Celebra-
tion (CBC) undanfarin ár og er eitt
stærsta Craft-bjórafestival í Evrópu
árlega. Við verðum þar í fyrsta
skipti og á bás sem nefnist New
Talent að mér skilst.“
Bruggararnir í Borg brugghúsi skáluðu fyrir sterkasta bjór Íslandssögunnar. Frá vinstri eru Árni Long, Sturlaugur Jón Björnsson og
Valgeir Valgeirsson. Mynd | Hari
Setja 21% bjór á markað
Garún Garún verður sterkasti bjór Íslandssögunnar, 21 prósent að styrk-
leika. Það er nokkuð langt frá hefðbundnum fimm prósenta lagerbjór
sem flestir þekkja. Garún Garún var bæði frosteimuð og tunnuþroskuð til
að ná fram þessum mikla styrkleika. Bruggmeistarar Borgar brugghúss
sækja stórar bjórhátíðir í Evrópu á næstunni til að kynna bjóra sína.
2 LAUGARDAGUR 25. MARS 2017MATARTÍMINN
Útgefandi: Morgundagur ehf. Ábyrgðarmaður: Valdimar Birgisson. Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík • Sími: 531 3300
MATARTÍMINN
Þann 19. maí
MATARTÍMINN
auglysingar@frettatiminn.is | gt@frettatiminn.is | 531 3300