Fréttablaðið - 26.01.2018, Qupperneq 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 2 . t ö l u b l a ð 1 8 . á r g a n g u r F ö s t u d a g u r 2 6 . j a n ú a r 2 0 1 8
FrÍtt
Fréttablaðið í dag
sport Þjálfari toppliðs Vals er
aðeins 23 ára. 12
Menning Sokkabandið frum-
sýnir Lóaboratoríum. 20
lÍFið Hvað þýðir haute couture?
Glamour er með svarið. 28
plús 2 sérblöð l Fólk
l endurskoðun og bókhald
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
MIÐASALA Í FULLUM GANGI
BÚÐU ÞIG UNDIR
DULARFULLT FERÐALAG
FjölMiðlar Meirihluti þingmanna
vill að Ríkisútvarpið hverfi af aug-
lýsingamarkaði eða að hlutur þess
á markaðnum verði skertur.
Fréttablaðið kannaði afstöðu
þingmanna til málsins í gær. Þrjátíu
og sex þingmenn sögðust hlynntir
því. Margir segja þó að það þyrftu
að koma til mótvægis aðgerðir svo
RÚV yrði bætt upp tekjutapið sem
af hlytist. Einungis einn þingmaður
svaraði spurningunni neitandi.
„Ég vil ekki rýra fjárhag RÚV, en
tel eðlilegt og hef verið fylgjandi því
að takmarka hlut þess á auglýsinga-
markaði,“ segir Katrín Jakobsdóttir
forsætisráðherra. Flokkssystkini
hennar, Andres Ingi Jónsson og
Rósa Björk Brynjólfsdóttir taka í
sama streng.
Í skýrslu nefndar um stöðu einka-
rekinna fjölmiðla, sem afhent var
mennta- og menningarmálaráð-
herra í gær, segir að RÚV sé nú með
fjórðungshlut af heildarauglýsinga-
markaðnum á Íslandi og 45 prósent
af auglýsingum í ljósvakamiðlum.
„Í ljósi stöðu einkarekinna fjöl-
miðla þarf að endurskoða þetta,“
segir Páll Magnússon, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi
útvarpsstjóri.
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og
menningarmálaráðherra, tekur
undir að huga þurfi að fjárhags-
stöðu RÚV ef fyrirtækið yrði tekið
af auglýsingamarkaði. Nú verði sett
af stað vinna við að meta tillögur
nefndarinnar.
„Það er ekki búið að meta áhrifin
af þeim og ekki búið að meta kostn-
aðinn, en það þarf ekkert að taka
langan tíma,“ segir Lilja.
Önnur tillaga sem nefndin lagði
til var að áskriftir blaða og tímarita,
sem og áskriftir hljóð- og mynd-
miðla, falli undir lægra skattþrep
virðisaukaskatts og beri 11 pró-
senta skatt. Lilja segir að hægt sé að
fara hraðar í vinnu við breytingar
á virðisaukaskattinum en margar
aðrar tillögur nefndarinnar. „Þess
vegna vil ég byrja á því.“
Lilja segir að jafnframt verði skoð-
að hvort hægt sé að gera breytingar
á virðisaukaskatti á auglýsinga-
tekjur fjölmiðla.
„Opinberar aðgerðir á þessum
markaði mega ekki vera þannig að
þú sért að skekkja þann markað
sem er til staðar. Það þarf að huga að
því að það sem getur verið gagnlegt
fyrir einn er ekki endilega gagnlegt
fyrir annan.“ – jhh / sjá síðu 4
Flestir þingmenn vilja minnka
hlut RÚV á auglýsingamarkaði
Þrjátíu og sex alþingismenn segjast hlynntir því að RÚV fari af auglýsingamarkaði eða að umsvif þess þar
verði minnkuð. Aðeins einn þingmaður svaraði spurningunni neitandi. Margir vilja þó að fyrirtækið fengi
bættan tekjumissi. Vinna er hafin við breytingar á skattaumhverfi fjölmiðla, með lækkun virðisaukaskatts.
Íbúar Húsavíkur og nágrennis fjölmenntu á opinn fund PCC um stöðu framkvæmda við Kísilverið á Bakka. Þeir íbúar sem Fréttablaðið ræddi við að fundi loknum voru jákvæðir í garð
kísilversins og höfðu litlar áhyggjur af því að hrakfarir í Helguvík endurtækju sig nyrðra. Um 100 manns hafa hafið störf í kísilverinu sem gangsetja á í febrúar. Sjá síðu 6 Fréttablaðið/auðunn
tónlist Rafsveitin GusGus gefur
út plötuna Lies are more flex-
ible. Það mun vera tíunda
plata sveitarinnar.
„Mér finnst gaman
að hafa fengið að vinna
að þessu í öll þessi ár og
finna sig upp á nýtt
fyrir hverja plötu,“
segir Biggi Veira.
– sþh / sjá síðu 30
Plata númer
tíu frá Gus Gus
2
6
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
D
5
-F
4
1
8
1
E
D
5
-F
2
D
C
1
E
D
5
-F
1
A
0
1
E
D
5
-F
0
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
2
5
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K