Fréttablaðið - 26.01.2018, Síða 6
2 6 . j a n ú a r 2 0 1 8 F Ö S T U D a G U r6 F r é T T i r ∙ F r é T T a B L a ð i ð
Einstaklega áhugaverð ferð til Víetnam sem býður uppá stórkostlega og ógleymanlega upplifun ásamt
ótrúlegri sögu lands og þjóðar. Landið er einstaklega fagurt
og gróðursælt með skógiklæddum fjöllum, gróskumiklum
hrísgrjónaökrum, fossum og lækjum.
Heimamenn taka einstaklega vel á móti ferðamanninum
og hvarvetna má sjá brosandi andlit. Í upphafi ferðar er
flogið til Frankfurt og gist í bænum Heidelberg rétt sunnan
við Frankfurt. Daginn eftir er flogið til Ho Chi Minh City
(Saigon) í suðurhluta Víetnam og dvalið þar í 4 nætur.
Frá Saigon er flogið til Danang og ekið til Hoian og dvalið
þar í 5 nætur á fallegu hóteli við ströndina. Hoian er afar
áhugaverð borg en hún er á heimsminjaskrá UNESCO. Þá
er dvalið í 3 nætur í höfuðborginni Hanoi. Þaðan verður
farið í 2 nátta siglingu á Halong flóa með dæmigerðum bát
heimamanna. Það er sem ævintýri líkast að sigla þar á milli
stórfenglegra kalksteinskletta og fallegra sandstranda.
Fjölmargar áhugaverðar kynnisferðir eru innifaldar í
ferðinni og þess ávallt gætt að heimsækja áhugaverða
sögulega staði en einnig að njóta alls þess sem þetta
fallega land hefur uppá að bjóða.
KEFLAVÍK – FRANKFURT / HEIDELBERG – SAIGON – HUE
HOIAN – HANOI – HALONG BAY – FRANKFURT – KEFLAVÍK
Fararstjóri: Árni Hermannsson
Frá kr. 498.995 m/fullt fæði innifalið
Netverð á mann frá kr. 498.995 m.v. 2 í herbergi
Innifalið: Flug, skattar, 1 taska/20kg, gisting í 1 nótt í Heidelberg,
gisting í 14 nætur á 4* hótelum í Víetnam m/fullt fæði innifalið.
Fjölmargar kynnisferðir og sigling innifalin í verði.
– fáðu meira út úr fríinu
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
85
3
79
VÍETNAM
Ógleymanleg
upplifun20. mars í 17 nætur
STóriðja Húsvíkingar gætu fundið
fyrir mengun í allt að sextán daga
við gangsetningu kísilverksmiðju
PCC á Bakka við Húsavík. Ofnarnir
tveir verða ekki gangsettir á sama
tíma og munu stjórnendur verk-
smiðjunnar reyna að gangsetja
ofnana í sunnanvindi til að verja
íbúa Húsavíkur. Framkvæmdastjóri
PCC segir ekki hægt að bera verk-
efni fyrirtækisins á Húsavík saman
við hrakfarir kísilversins í Helguvík.
Fjölmenni mætti á opinn íbúa-
fund sem PCC BakkiSilikon hf. hélt
á Fosshóteli á Húsavík í gær. Íbúar
bæjarins eru að mestu jákvæðir í
garð framkvæmdarinnar. Einkum
spurðu íbúar um almenningssam-
göngur til og frá verksmiðjunni og
um loftgæði. Ekki er útilokað að
íbúar með undirliggjandi astma
sem búa næst verksmiðjunni muni
finna fyrir einkennum á meðan á
gangsetningu stendur.
Framleidd verða um 32 þúsund
tonn árlega í verksmiðjunni en
virði þeirra afurða er á mörkuðum í
dag um 57 milljarðar króna. Í fram-
leiðsluna verða notuð um 60 þús-
und tonn af kolum á ári og annað
eins af innfluttum viði.
Stjórnendur PCC hafa átt í við-
ræðum við íslenska skógarbændur
til að geta nýtt einnig íslenskan við
og minnka þar með vistspor fram-
leiðslunnar.
„Við höfum verið í viðræðum
við nokkra bændur. En vinsældir
eldbakaðra pitsa hafa þau áhrif að
það er minna framboð á íslensku
timbri. Pitsuofnar eru í samkeppni
við okkar ljósbogaofna,“ segir Haf-
steinn Viktorsson framkvæmda-
stjóri PCC.
„Varðandi gangsetningu þá
fylgjumst við með veðurspánni og
við vonum að veðurguðirnir verði
okkur hliðhollir. Það er ekki hægt
að bera saman verkefni okkar við
Helguvík. Allir sem fylgst hafa
með fréttum sjá að eitthvað mikið
fór úrskeiðis þar. Við hins vegar
höfum ákveðið að vanda okkur
eftir fremsta megni. Einnig erum við
með minni ofna sem eru auðveldari
í rekstri.“
Um eitt hundrað starfsmenn
hafa hafið störf í verksmiðjunni.
Því er mikilvægt að fara að setja
verksmiðjuna í gang að mati Haf-
steins til að tekjur komi inn á móti
útgjöldum. „Við hins vegar förum
ekki af stað fyrr en við erum alveg
öruggir með að allt okkar kerfi
virki.“ sveinn@frettabladid.is
Kísilverksmiðja keppir
við eldbakaðar pitsur
Framkvæmdastjóri kísilverksmiðju PCC á Bakka segir ekki hægt að bera hana
saman við þá sem er í Helguvík. Þó megi búast við nokkurri mengun í sextán
daga eftir gangsetningu. Vonast sé eftir hagstæðum vindáttum þegar það gerist.
Áætlað er að ræsa kísilverksmiðju PCC á Bakka í sunnanvindi svo mengun angri Húsvíkinga síður. FréttaBlaðið/auðunn
Það er ekki hægt að
bera saman verkefni
okkar við Helguvík. Allir
sem fylgst hafa með fréttum
sjá að eitthvað mikið fór
úrskeiðis þar.
Hafsteinn
Viktorsson,
framkvæmda-
stjóri PCC
TÆKni Samband íslenskra leikja-
framleiðenda (IGI) heldur leikja-
djamm í Háskólanum í Reykjavík um
helgina. Þátttakendur fá 48 klukku-
stundir til að vinna að nýjum leik.
„Fulltrúi frá alþjóðlegu samtök-
unum hafði samband við okkur og
við ákváðum að prófa að halda svona
viðburð hér. Síðast þegar ég vissi
voru þátttakendur frá 113 löndum
búnir að skrá sig,“ segir Alexandra
Bjargardóttir, sem er varamaður í
stjórn hjá IGI og markaðssérfræð-
ingur hjá CCP.
Þetta er stærsta leikjadjamm í
heiminum. Fyrsta alþjóðlega leikja-
djammið var haldið árið 2009.
„Við fáum að vita á föstudaginn
hvert þemað er. Þetta er gert svo fólk
sé ekki að undirbúa sig eða byrjað
að vinna í einhverju áður en það
mætir. Fólk fær því einungis þessar
48 klukkustundir til að vinna að ein-
hverju nýju saman,“ segir Alexandra.
IGI hélt samtals fjögur leikja-
djömm 2017, sem skiluðu 35 fjöl-
breyttum og skemmtilegum leikjum.
„Það er svipaður fjöldi skráður
og hefur verið að mæta á okkar við-
burði. Það hefur yfirleitt verið um
þriðjungur þátttakenda sem er ekki
endilega að vinna við að búa til leiki
eða hefur gert það áður, heldur hefur
það sem sérstakt áhugamál. Líkt og
fólk sem býr til tónlist eða tekur
ljósmyndir, þá hafa margir það sem
áhugamál að búa til tölvuleiki,“ segir
Alexandra.
Leikjadjammið er haldið í fyrsta
sinn í Reykjavík í ár, en viðburðurinn
var haldinn á Kollafossi árið 2016.
Djammið hefst klukkan 17.00 í dag,
föstudag og verður stofa M110 í HR
þátttakendum opin alla helgina. – la
Fá 48 tíma til að vinna saman tölvuleik
alexandra Bjargardóttir hjá CCP, einn
skipuleggjenda alþjóðlega leikja-
djammsins. FréttaBlaðið/Eyþór
2
6
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
D
6
-2
0
8
8
1
E
D
6
-1
F
4
C
1
E
D
6
-1
E
1
0
1
E
D
6
-1
C
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
2
5
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K