Fréttablaðið - 26.01.2018, Qupperneq 8
ÁslaugViðar EyþórVilhjálmur Kjartan
Veljum leiðtoga!
Taktu þátt í leiðtogaprófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
nú á laugardag, kl. 10–18 á fjórum stöðum víðsvegar um borgina.
Nánari upplýsingar er að finna á vef Sjálfstæðisflokksins: xd.is
Vísindi „Það sem okkur tókst að vissu
leyti að gera var að búa til aðferð til
þess að mæla áhrif sem við höfum
alltaf vitað að væru til staðar,“ segir
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar
erfðagreiningar.
Íslensk erfðagreining birti í gær
rannsókn sína á þúsundum Íslend-
inga í tímaritinu Science þar sem
leitað er svara við þeirri spurningu
hvernig uppeldi barna gangi í arf.
„Þegar barn er getið fær það helm-
ing erfðamengis frá móður sinni og
hinn helminginn frá föður. Við leituð-
umst eftir því að svara því hvaða áhrif
sá helmingur erfðamengis sem barn
fær ekki frá foreldrum hefur á örlög
þess,“ segir Kári. „Við sýndum fram á
að það [erfðamengið] hefur alls konar
áhrif. Til að mynda á menntun, hæð,
þyngd, líkur á hjarta- og æðasjúk-
dómum og fíknisjúkdómum.“
En hversu mikil eru áhrifin?
„Þegar kemur að menntun, til
dæmis, þá eru áhrif þess helmings
erfðamengisins sem ekki fer í barnið
um 30 prósent á móti þeim helmingi
sem barnið fær frá foreldrunum,“
svarar Kári. Þetta sýni hversu mikil
áhrif umhverfisins eru.
Kári segir að með niðurstöðu rann-
sóknarinnar berist böndin enn og
aftur að hinu dularfulla stjórntæki
mannsins – heilanum. Áhrifin segir
hann koma í gegnum heilann sem
við botnum lítið í.
„Við höfum ekki hugmynd um
hvernig heilinn býr til hugsanir eða
tilfinningar – við getum ekki einu
sinni skilgreint þær,“ útskýrir Kári.
Það sem sé grátlegt við það sé að
hugsanir okkar og tilfinningar skil-
greina okkur sem dýrategund og sem
einstakling innan þeirrar tegundar.
Kári telur manninn á býsna frum-
stæðum stað er kemur að skilningi
á okkur sjálfum. „Það er svo margt
ógert sem á eftir að útskýra og þetta er
svo spennandi. Ég myndi sjálfur ekki
nenna fram úr rúminu á morgnana
ef það væri búið að útskýra þetta allt
saman,“ segir hann. – dfb
Færi ekki fram úr ef búið
væri að útskýra alla hluti
Líbía Fjórir voru handteknir í líb-
ísku borginni Sirte í fyrrinótt og
átta súdanskir flóttamenn frels-
aðir í aðgerðum líbíska hersins. Frá
þessu greindi CNN í gær og vísaði í
tilkynningu líbíska hersins. Banda-
ríski miðillinn birti með fréttinni
ógeðfellt myndband, um mínútu
að lengd, þar sem sjá mátti þá
súdönsku liggja á gólfinu á meðan
þeir voru hýddir með svipum.
„Sendið peningana. Sendið
peningana. Seljið húsið. Sendið
peningana,“ sagði einn Súdaninn í
myndbandinu sem hinir handteknu
sendu fjölskyldum flóttamannanna
í von um að fá greitt lausnargjald.
Fjölskyldur mannanna birtu mynd-
böndin á samfélagsmiðlum og í
samtali við CNN sögðu þær það gert
í von um að vekja athygli á málinu.
Það tókst og innan fárra daga hafði
líbíski herinn rakið myndbandið til
borgarinnar Sirte og gerði áhlaup.
„Þetta ógeðfellda myndefni
sýnir glæpi manna sem geta vart
talist mennskir. Þeir pynta flótta-
menn og brenna þá. Taka það upp
á myndband og senda á fjölskyldur
fanga sinna til þess að kúga af þeim
peninga,“ sagði í tilkynningu líbíska
hersins.
Í öðru myndbandi mátti sjá
Súdana liggja nakinn á jörðinni og
engjast um af sársauka á meðan
maðurinn á bak við myndavélina
hellir sjóðheitri olíu á bakið á
honum og kveikir í. Annar maður,
grímuklæddur, sérst beina byssu að
fórnarlambinu.
Súdanska utanríkisráðuneytið
boðaði í gær sendifulltrúa Líbíu í
höfuðborg Súdan, Kartúm, á sinn
fund. Sagði ráðuneytið óásættanlegt
að súdanskir ríkisborgarar sættu
ómannúðlegri meðferð þar í landi.
Undir það tók sendifulltrúinn, Ali
Muftah al-Mahrouq, og baðst afsök-
unar. Sagði hann glæpagengi bera
ábyrgð á málinu.
Á síðasta ári greindi CNN frá því
að flóttamenn í Líbíu væru seldir
í þrældóm og þykja þessar fréttir
benda til þess að ástandið sé enn
verra en áður var talið. Líbísk yfir-
völd hófu í kjölfar umfjöllunar síð-
asta árs rannsókn á meintu þræla-
haldi.
Umfjöllun CNN um fyrrnefnd
glæpagengi í Líbíu hefur aukin-
heldur leitt í ljós að starfsemi þeirra
nær víða um heiminn, að því er mið-
illinn greinir frá. Fjölskyldur í Súdan
hafi til að mynda þurft að reiða af
hendi um hálfa milljón króna til að
frelsa fangana og hægt hafi verið
að leggja lausnargjaldið beint inn
á bankareikning í Kartúm. Þá hafi
CNN einnig fundið gögn sem sýna
fram á að fjölskyldur í Bangladess
og Níger hafi greitt sams konar
lausnargjald.
Greiðslurnar frá Bangladess og
Níger voru sendar í gegnum West-
ern Union en í svari fyrirtækisins
við fyrirspurn CNN kemur fram
að það reyni eftir fremsta megni
að fylgjast með og koma í veg fyrir
greiðslur til glæpamanna.
„Western Union fordæmir harð-
lega ólöglegt atferli og fjármögnun
á glæpastarfsemi. Við setjum það í
algjöran forgang að koma upp um
og koma í veg fyrir misnotkun á
þjónustu okkar. Glæpamenn ógna
einstaklingunum, fjölskyldunum og
fyrirtækjunum sem við þjónustum
sem og starfsemi okkar í heild.“
thorgnyr@frettabladid.is
Pynta flóttamenn og
krefjast lausnargjalds
Súdanskir flóttamenn eru hýddir með svipum og brenndir í Líbíu og hafa verið
seldir í þrældóm. Fjölskyldur í Súdan, Níger og Bangladess hafa greitt lausnar-
gjald í gegnum Western Union sem segir forgangsmál að hindra slíkar greiðslur.
Flóttamenn sæta ómannúðlegri meðferð í Líbíu. Nordicphotos/AFp
MjanMar Aung San Suu Kyi, leiðtogi
Mjanmar og handhafi friðarverð-
launa Nóbels, hvítþvær ríkisstjórn
sína af þjóðernishreinsunum sem ríki
hennar stundar á Róhingjum og hana
skortir siðferðislega stjórnarhætti.
Þetta sagði Bandaríkjamaðurinn
Bill Richardsson, fyrrverandi ríkis-
stjóri Nýju-Mexíkó, í fyrrinótt eftir
að hann sagði sig úr alþjóðlegri
nefnd sem Suu Kyi skipaði til að taka
á Róhingjakrísunni og Richardson sat
í fyrir hönd Bandaríkjanna.
„Hún hefur þróað með sér vald-
hroka. Ég hef þekkt hana lengi og mér
líkar vel við hana en nú vill hún ekki
hlusta á þá sem færa henni slæmar
fréttir. Ég vil ekki eiga þátt í þessum
hvítþvotti,“ sagði Richardson við The
New York Times á leið frá Mjanmar.
Richardson tók jafnframt fram
að Suu Kyi hefði „sprungið úr reiði“
þegar hann vakti máls á máli Reuters-
blaðamannanna U Wa Lone og U
Kyaw Soe Oo sem eiga yfir höfði
sér fjórtán ára fangelsisdóm fyrir
að brjóta upplýsingalög þegar þeir
reyndu að grafast fyrir um upplýs-
ingar í Róhingjamálinu.
„Andlit hennar titraði. Ef hún hefði
verið nær mér hefði hún jafnvel lamið
mig. Hún var trítilóð,“ sagði Richard-
son um friðarverðlaunahafann.
Alls hafa rúmlega 650.000
Róhingjar flúið þjóðernishreinsan-
irnar í Rakhine-héraði Mjanmar
og farið til Bangladess. Flestir búa
nú í flóttamannabúðum þar í landi
en samkomulag náðist í fyrra á
milli ríkjanna sem miðar að því að
Róhingjarnir verði allir komnir aftur
til Mjanmar innan tveggja ára.
Óháð félagasamtök hafa gagnrýnt
þetta samkomulag og efast um að
flóttamönnunum verði vel tekið við
heimkomuna. – þea
Fulltrúi Bandaríkjanna sakar Suu Kyi um hvítþvott og siðleysi
Aung san suu Kyi, ríkisráðgjafi Mjan-
mar. Nordicphotos/AFp
Þetta ógeðfellda
myndefni sýnir
glæpi manna sem geta vart
talist mennskir. Þeir pynta
flóttamenn og brenna þá.
Taka það upp á myndband
og senda á fjölskyldur fanga
sinna til þess að kúga af þeim
peninga.
Úr tilkynningu líbíska hersins
bandaríkin Fjölmiðlamógúllinn
Oprah Winfrey lýsti því yfir í viðtali
við InStyle í gær að hún ætlaði ekki
að sækjast eftir útnefningu Demó-
krata til forsetaframboðs árið 2020.
Sagðist hún ekki vera með forseta-
gen og bætti við:
„Ég hef alltaf verið mjög örugg
með sjálfa mig að því leyti að ég veit
hvað ég get og get ekki. Þetta er ekki
eitthvað sem heillar mig.“
Winfrey var orðuð við framboð
eftir vinsæla ræðu hennar á Golden
Globes og mældist með sigur gegn
Donald Trump, sitjandi forseta,
í skoðanakönnunum líkt og þeir
Oprah Winfrey segir forsetaembættið ekki heilla sig
EVrópa Ekki má senda hælisleit-
endur til sálfræðings til þess að
komast að því hvort þeir séu sam-
kynhneigðir. Þetta var niðurstaða
Evrópudómstólsins í máli Nígeríu-
manns sem fékk ekki hæli í Ung-
verjalandi eftir að sálfræðingur gat
ekki staðfest kynhneigð mannsins
árið 2015. Niðurstaðan er bindandi
í öllum ríkjum ESB.
Hundruð samkynhneigðra og
annars hinsegin fólks hafa sótt um
hæli í Evrópu undanfarin ár vegna
ofsókna í Afríku, Mið-Austur-
löndum og Téténíu. Í niðurstöðum
dómstólsins kemur fram að álit sér-
fræðinga geti reynst gagnleg en að
próf sem þessi séu brot á friðhelgi
einkalífsins.
Í desember 2014 komst Evrópu-
dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að
kynhneigðarpróf væru brot á mann-
réttindum hælisleitenda og árið
2013 komst dómstóllinn að þeirri
niðurstöðu að fangelsisvist við sam-
kynhneigð í heimalandi hælisleit-
enda væri fullnægjandi ástæða fyrir
samþykkt hælisumsóknar. – þea
Bannað að kanna kynhneigðina
oprah Winfrey, ekki næsti forseti
Bandaríkjanna. Nordicphotos/AFp
Joe Biden, fyrrverandi varaforseti,
og Bernie Sanders öldungadeildar-
þingmaður.
Aðspurður um mögulegt framboð
Winfrey á dögunum sagði Trump:
„Það yrði skemmtilegt. Já, ég myndi
sigra Opruh.“ – þea
Ég hef alltaf verið mjög
örugg með sjálfa mig að því
leyti að ég veit hvað ég get og
get ekki.
Oprah Winfrey
Kári stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. FréttABLAðið/steFáN
Rúmlega 650 þúsund
Róhingjar hafa flúið undan
þjóðernishreinsunum í
Myanmar.
2 6 . j a n ú a r 2 0 1 8 F Ö s T U d a G U r8 F r é T T i r ∙ F r é T T a b L a ð i ð
2
6
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
D
6
-1
B
9
8
1
E
D
6
-1
A
5
C
1
E
D
6
-1
9
2
0
1
E
D
6
-1
7
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
2
5
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K