Fréttablaðið - 26.01.2018, Qupperneq 12
KR - Valur 72-60
Stigahæstir: Brandon Penn 20/10 fráköst,
Kristófer Acox 19/8 fráköst, Jón Arnór
Stefánsson 17 - Urald King 14/22 fráköst,
Gunnar Ingi Harðarson 14, Oddur Birnir
Pétursson 11.
Tindastóll - Grindavík 94-82
Stigahæstir: Antonio Hester 20, Pétur Rúnar
Birgisson 19/7 stoðs., Sigtryggur Arnar
Björnsson 18, Viðar Ágústsson 11 - J’Nathan
Bullock 33/16 fráköst, Jóhann Árni Ólafsson
12, Dagur Kár Jónsson 8, Ólafur Ólafsson 8.
Stjarnan - Þór Þ. 79-86
Stigahæstir: Collin Pryor 23/16 fráköst, Ró-
bert Sigurðsson 15, Tómas Þórður Hilmars-
son 14 - DJ Ballentine 24, Halldór Garðar
Hermansson 19, Emil Karel Einarsson 12,
Ólafur Helgi Jónsson 11/9 fráköst.
Höttur - Þór Ak. 86-75
Stigahæstir: Kelvin Lewis 28, Mirko Stefan
Vrijevic 16/11 fráköst, Andrée Michelsson
13, Bergþór Ægir Ríkharðsson 11/10 fráköst
- Nino Johnson 24/17 fráköst, Hilmar Smári
Henningsson 15/8 fráköst.
Nýjast
Domino’s-deild karla
Körfubolti Þegar 17 umferðir eru
búnar af Domino’s deild kvenna í
körfubolta situr Valur á toppi henn-
ar. Valskonur hafa unnið 13 leiki af
17 og náð í 26 stig. Valur fékk 24 stig
á öllu síðasta tímabili og komst ekki
í úrslitakeppnina. Viðsnúningurinn
er því mikill.
Fyrir tímabilið sótti Valur ungan
þjálfara úr Vesturbænum, Darra
Frey Atlason sem hafði áður þjálfað
kvennalið KR tímabilið 2015-16.
Darri er fæddur árið 1994 og verður
ekki 24 ára fyrr en í byrjun júní.
Hann er hógvær þegar talið berst
að árangri Vals í vetur.
„Við erum að vinna eftir gildum
sem við settum okkur snemma og
það gengur ágætlega,“ sagði Darri í
samtali við Fréttablaðið í gær. Hann
segir að leikmenn Vals hafi æft vel í
sumar og það sé að bera ávöxt.
„Það voru allir rosalega tilbúnir
að taka þetta föstum tökum. Það
eru miklu fleiri en ég sem eiga hrós
skilið. Þetta hefst með sterku bak-
landi og fókus á það sem félagið
ætlar að reyna að gera,“ segir Darri.
Viljum fara úr þátttakendum
yfir í að vera sigurvegarar
Mikill viðsnúningur hefur orðið á gengi kvennaliðs Vals í körfubolta milli tímabila. Valskonur sitja á toppi
Domino’s deildarinnar og hafa náð í fleiri stig en þær gerðu allt síðasta tímabil. Þjálfari Vals er hinn 23 ára
gamli Darri Freyr Atlason. Hann kemur úr Vesturbænum og segist hafa fengið góðan skóla í þjálfun hjá KR.
Sex SKollA HRinguR
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
lék fyrsta hringinn á Pure Silk-
Bahamas mótinu á 77 höggum, eða
fjórum höggum yfir pari. Þetta er
fyrsta mót tímabilsins á lPgA-
mótaröðinni. Ólafía byrjaði ágæt-
lega og var á pari eftir sjö holur. Þá
tók við slæmur kafli þar sem hún
fékk fjóra skolla á fimm holum.
Ólafía paraði svo síðustu sex hol-
urnar á hringnum. Hún er á meðal
neðstu keppenda og þarf að spila
betur á öðrum hringnum í dag
ef hún ætlar að komast í gegnum
niðurskurðinn. Á síðasta ári komst
Ólafía í gegn-
um niður-
skurðinn á
Pure Silk
en hún lék
þá á fimm
höggum
undir
pari.
mouRinHo FRAmlengDi
José mourinho hefur skrifað undir
nýjan samning
við manchester
united. Hann
gildir til ársins
2020. mourinho
tók við united
2016 og er á sínu
öðru tímabili með
manchester-liðinu.
Á því fyrsta vann liðið deildabikar-
inn og evrópudeildina. mourinho
er eini knattspyrnustjórinn í sögu
united sem hefur unnið titil á
fyrsta tímabili hjá félaginu. united
situr í 2. sæti ensku úrvalsdeildar-
innar og er komið í 16-liða úrslit
meistaradeildar evrópu. Í kvöld
mætir united Yeovil Town í 4.
umferð bikarkeppninnar.
Ég hljóp í hringi og
setti hindranir fyrir
Matta og Martin.
Darri Freyr Atlason
Darri Freyr Atlason hefur gert góða hluti með lið Vals í Domino’s deild kvenna í körfubolta. Valskonur sitja á toppi hennar eftir 17 umferðir. FRéTTAblAðið/EyÞóR
Efri
ÍR 24
KR 22
Tindastóll 22
Haukar 20
Njarðvík 16
Grindavík 16
Neðri
Stjarnan 14
Keflavík 14
Þór Þ. 12
Valur 10
Þór Ak. 6
Höttur 2
Að hans sögn var fyrsta markmið
Vals að enda í einu af efstu fjórum
sætum Domino’s deildarinnar og
komast í úrslitakeppnina.
„Við höfum alltaf talað um að
enda í topp fjórum og svo tekur
bara nýr kafli við eftir það. okkur
miðar ágætlega,“ segir Darri. en
hefur hann trú á því að Valur geti
farið alla leið í vor?
„Að sjálfsögðu, annars værum
við ekkert í þessu. Við höfum talað
mikið um að breyta kúltúrnum úr
því að vera þátttakendur yfir í að
vera sigurvegarar; að trúa því að við
séum betra lið þegar við löbbum inn
á völlinn en skilja að það er af því að
við leggjum hart að okkur og fram-
kvæmum það sem lagt er upp með.“
Þrátt fyrir ungan aldur hefur Darri
verið lengi í þjálfun. Hann segist
hafa fengið góðan skóla hjá KR.
„Ég byrjaði sem aðstoðarþjálfari
hjá Finni Frey [Stefánssyni, þjálfara
karlaliðs KR] þegar ég var 13 ára,
þannig að það er kominn áratugur.
Ég held ég hafi þjálfað alla yngri
flokka áður en ég tók við kvenna-
liðinu,“ sagði Darri. „Ég fékk að alast
upp hjá Finni Frey, inga Þór [Stein-
þórssyni], Sigga Hjörleifs og Hrafni
Kristjáns. Ég lærði mikið af þeim.“
Darri er hluti af ógnarsterkum
1994-árgangi KR sem var ósigrandi
í yngri flokkunum. Í þeim árgangi
eru til að mynda kappar á borð við
martin Hermannsson og matthías
orra Sigurðarson.
„Ég hljóp í hringi og setti hindranir
fyrir matta og martin,“ segir Darri og
hlær. „Það var frábært að læra af þeim
og hvernig þeir nálguðust íþróttina.
Það kom ekkert annað til greina hjá
þeim en að verða afreksmenn.“
Darri lék í nokkur ár með meist-
araflokki KR en hugurinn leitaði svo
alfarið í þjálfun.
„Ég sleit krossband þegar ég var
18 ára og náði mér ekki almenni-
lega. Það var ekki meiðslunum að
kenna, heldur að það var ekki nógu
mikill eldur í mér,“ segir hann.
„Ég fékk útgönguleið í þjálfun
þegar ég var beðinn um að taka
við kvennaliði KR. „Afsökun“ til að
hætta og einbeita mér að þjálfun. Ég
var ekkert á leiðinni að verða afreks-
maður í körfubolta.“
Darri er ekki fyrsti ungi þjálfar-
inn sem gerir það gott í íslenskum
körfubolta. Friðrik ingi Rúnarsson
var til að mynda kornungur þegar
hann gerði karlalið njarðvíkur að
Íslandsmeisturum 1991 og áður-
nefndur Finnur Freyr var aðeins
þrítugur þegar hann tók við KR.
Fordæmin eru því til staðar.
Darri er ekki bara fær körfubolta-
þjálfari heldur er hann einn af 20
vonarstjörnum í íslenskum við-
skiptum samkvæmt lista almanna-
tengilsins Andrésar Jónssonar.
„Ég er í stafrænni þróun hjá
Íslandsbanka, þar sem við erum að
reyna að komast að því hvernig við
verðum betri banki á morgun en
við erum í dag. maður þarf að for-
gangsraða og hafa gott bakland til
að þetta gangi upp,“ segir Darri að
lokum. ingvithor@frettabladid.is
2 6 . j a n ú a r 2 0 1 8 f ö S t u D a G u r12 S p o r t ∙ f r É t t a b l a ð i ð
sport
2
6
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
D
5
-F
4
1
8
1
E
D
5
-F
2
D
C
1
E
D
5
-F
1
A
0
1
E
D
5
-F
0
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
2
5
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K