Fréttablaðið - 26.01.2018, Síða 16
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ólafía Dagnýsdóttir
tækniteiknari,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli
21. janúar sl. Útför fer fram
í Fossvogskapellu mánudaginn
29. janúar kl. 11.00.
Björk Sigurjónsdóttir Hallur Þorgils Sigurðsson
Ari Sigurjónsson
Snorri Sigurjónsson
Ásta Sigurjónsdóttir
og fjölskyldur.
Elskulegur sambýlismaður
og bróðir okkar,
Tómas Magnús Tómasson
lést á líknardeild Landspítalans
þann 23. janúar 2018.
Magnús Gísli Arnarson
Guðrún Tómasdóttir
Rannveig Tómasdóttir
Jarðarför auglýst síðar.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts og útfarar
elskulegs eiginmanns míns, föður,
sonar, bróður, tengdasonar og mágs,
Hauks Þórs Bergmann
Kögurseli 1, Reykjavík.
Aðalheiður Kristjánsdóttir
Halldóra Rún Bergmann
Þóra Lilja Bergmann
Hekla Lind Bergmann
Þóra Jónsdóttir
Sigurður Bergmann Sólveig St. Guðmundsdóttir
Halldóra Gísladóttir
Ástkær móðir okkar
Edda Ingveldur Larsen
Dalbraut 27, áður Grensásvegi 58,
lést á Landspítalanum
í Fossvogi þann 16. þ.m.
Útför hennar fer fram frá Háteigskirkju
mánudaginn 29. janúar kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda og föður okkar,
Kristins Magnússonar:
Einar Valgeir Arason
Yngvi Þór Kristinsson Guðlaug Anna Sigurfinnsdóttir
Anna Kristinsdóttir
Haukur Kristinsson
Kristinn Magnús Kristinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Herdís Guðmundsdóttir
Strikinu 4,
frá Böðmóðsstöðum, Laugardal,
lést á Landspítalanum Fossvogi,
sunnudaginn 21. janúar 2018.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 30. janúar
2018 kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Barnaspítalasjóð Hringsins.
Vilhjálmur Sigtryggsson
Bergljót Vilhjálmsdóttir Haraldur Haraldsson
Vilhjálmur Vilhjálmsson Svava Bernhard Sigurjónsdóttir
Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir
ömmubörn og langömmubörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Regína Magdalena
Erlingsdóttir
Langholtsvegi 132,
lést á dvalarheimilinu Grund
laugardaginn 20. janúar.
Hún verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík
mánudaginn 29. janúar klukkan 13.
Sverrir Þórólfsson Laufey Kristjónsdóttir
Gyða Þórólfsdóttir Loftur Bjarnason
Kristín Erla Þórólfsdóttir Gylfi Guðmundsson
Guðlaug Þórólfsdóttir Sigfús Bl. R. Cassata
Auður Þórólfsdóttir Ingi Steinn Gunnarsson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Ástkær sonur okkar, faðir og bróðir,
Björn Theodór
Húnfjörð Björnsson
verður jarðsettur í kyrrþey
í Fossvogskapellu í Reykjavík
þriðjudaginn 30. janúar kl. 13.00.
Emilía V. Húnfjörð Will Thornton
Björn Heiðar Guðmundsson Freyja Þorsteinsdóttir
Theodór Heiðar Björnsson Dagur Húnfjörð Björnsson
Björk Gunnarsdóttir Ýr Sigurðardóttir
Magnús Páll Haraldsson Lara Roje
„I did not have sexual relations with that
woman, Miss Lewinsky,“ sagði þáverandi
forseti Bandaríkjanna, Bill Clinton, svo
eftirminnilega í beinni útsendingu á
þessum degi fyrir 20 árum.
Clinton var þarna að lýsa yfir að hann
hefði ekki stundað framhjáhald með
Monicu Lewinsky – sem kom síðar í ljós að
var bull og lygi.
Lygasan lifir enn góðu lífi á tækniöld
og hafa yfir milljón manns séð mynd-
bandið þar sem hann segir þessa setningu
á Youtube. Síðar viðurkenndi forsetinn að
hann hefði átt í óviðeigandi sambandi við
hina 24 ára gömlu Lewinsky, sem var lær-
lingur í Hvíta húsinu.
Fram að blaðamannafundinum hafði
Clinton varist fimlega öllum ásökunum.
Margt var búið að skrifa og segja um
hversu náin kynni þeirra voru en þegar
Clinton kom á blaðamannafundinn lét
hann engan bilbug á sér finna. Þetta var
fimmta fyrirlýsing hans um málið á sex
dögum.
„Ég vil segja eitt við bandarísku þjóðina.
Ég vil að þið hlustið á mig.
Ég segi það enn og aftur, ég átti aldrei í
kynferðislegu sambandi við þessa konu,
Lewinsky.“ Veifaði hann fingri í áttina að
sjónvarpsvélunum til að leggja áherslu á
mál sitt og stóð eiginkona hans, Hillary,
þétt við hlið hans.
„Þessar ásakanir eru rangar og ég þarf
að snúa mér að því að vinna fyrir banda-
rísku þjóðina," bætti forsetinn við en hann
flutti stefnuræðu sína síðar um kvöldið.
Málið var svo rannsakað en almenn-
ingur í Bandaríkjunum var ekkert spenntur
fyrir fréttum fjölmiðla um framhjáhaldið
og vildi lítið lesa um það og ekki horfa á
fréttir um það. Vissulega hafði málið áhrif,
sérstaklega á forsetakosningarnar árið
2000. Þar tapaði Al Gore fyrir George Bush
og vilja margir meina að framboð Gore hafi
litast af skandalnum. Clinton talaði ekki
máli Gore í Arkansas eða New Hampshire
og tapaði Gore fyrir Bush svo eftir var tekið.
Þ etta g e r ð i st 2 6 . ja n úa r
Bill Clinton lýgur að heimsbyggðinni
Ég á ekki í neinum erfiðleikum með að eldast heldur finnst mér það sjúklega skemmti-legt,“ segir leikkonan sólveig arnarsdóttir en hún fagnar
45 ára afmæli sínu í dag. sólveig er
einn af okkar fremstu leikurum og
hefur verið í hringiðu skemmtana-
bransans frá blautu barnsbeini. Það
er því kannski viðeigandi að hún
muni standa á fjölum Þjóðleikhússins
á afmælisdaginn en hún er að leika í
sýningunni Hafinu.
Hafið er meðal þekktustu verka í
íslenskri leiklistarsögu, en leikritið sló
rækilega í gegn þegar það var frumflutt
í Þjóðleikhúsinu árið 1992, og sam-
nefnd kvikmynd byggð á því öðlaðist
miklar vinsældir. Verkið er nú svið-
sett í Þjóðleikhúsinu í nýrri gerð, á 70
ára afmæli leikskáldsins Ólafs Hauks
símonarsonar.
„Ég er búin að hafa einn afmælismat
og ætla að halda annan á laugardag og
mér þykir ekki ólíklegt að ég fari eitt-
hvert eftir sýningu. Mér finnst nefni-
lega þetta vera alveg svolítil tímamót.
Helmingur ef maður gerir ráð fyrir að
verða níræð – það gæti gerst. Þetta er
þá helmingur sem mér finnst pínu
flott,“ segir hún.
sólveig útskrifaðist úr leiklistar-
háskólanum ernst Busch í Berlín árið
1999 og hefur leikið í fjölda sýninga
hjá Þjóðleikhúsinu, Lr og í leikhúsum
í Þýskalandi og sviss, auk þess sem hún
hefur leikið í yfir fjörutíu sjónvarps- og
kvikmyndum.
sólveig hafði leikið töluvert áður
en hún hélt utan til náms, og má þar
nefna að hún fór með titilhlutverkið
í evu Lunu hjá Borgarleikhúsinu, lék í
Litlu fjölskyldufyrirtæki og Í deiglunni
í Þjóðleikhúsinu og í Litla sótaranum
og Carmen í Íslensku óperunni. Hún
fór enn fremur með aðalhlutverk í
kvikmyndinni inguló og lék evu í
stellu í orlofi 1986 svo eftir var tekið.
eftir að hún lauk námi lék hún titil-
hlutverkið í Heimili Bernörðu alba hjá
B.a.t. studiobühne ernst Busch og
gabrielle í schnitt ins Fleish hjá
Maxim gorki theater í Berlín.
„Mér finnst allt í lagi að
gera mér dagamun á afmæl-
inu mínu. janúar er ekki
svo skemmtilegur mánuður
að maður verður að gera
sér dagamun í hvert skipti
sem tækifæri býðst til að
gleðjast í skammdeginu.
Ég leigi enga sali en mér finnst
allt í lagi að gera eitthvað úr
þessum áfanga. Ég á í engum
erfiðleikum með þennan dag,
þetta er bara afmælisdagur.“
benediktboas@365.is
Stendur á sviðinu
á afmælisdaginn
Leikkonan Sólveig Arnarsdóttir heldur upp á 45 ára afmæli sitt á fjölum Þjóðleik-
hússins þar sem hún leikur í Hafinu. Útilokar ekki að gera eitthvað eftir sýninguna.
Sólveig Arnarsdóttir
leikkona.
2 6 . j a n ú a r 2 0 1 8 F Ö S T U D a G U r16 T í m a m ó T ∙ F r É T T a B L a ð i ð
tímamót
2
6
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
D
6
-1
6
A
8
1
E
D
6
-1
5
6
C
1
E
D
6
-1
4
3
0
1
E
D
6
-1
2
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
2
5
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K