Fréttablaðið - 26.01.2018, Qupperneq 27
Fjórða iðnbylt-
ingin með alla sína
sjálfvirknivæðingu og
gervigreind teygir anga
sína víða og hefur svo
sannarlega hafið innreið
sína á uppgjörs- og
bókhaldssvið KPMG.
Starf bókarans hefur
þegar breyst miðað við
það sem áður var og
mun halda áfram að
þróast og breytast á
næstu misserum.
KYNNINGARBLAÐ 7 F Ö S T U DAG U R 2 6 . ja n úa r 2 0 1 8 eNDURSKoÐUN oG BóKhALD
Bókarar af uppgjörs- og bókhaldssviði KPMG í Reykjavík. MYND/eRNIR
KPMG Bókað les sjálfkrafa úr gögnum og útbýr bókunar-tillögur. Umtalsverður hluti
af bókhaldsvinnunni fer nú fram
með þessum hætti og stefnt er að
því að efla þennan hluta mikið á
næstunni. Kristjana Hlín Valgarðs-
dóttir og Þóra Steina Jónsdóttir
starfa sem bókarar hjá KPMG og
hafa tekið tækninni fagnandi og
hellt sér út í það af fullum krafti
að útrýma pappír af sviðinu. Þær
segja að flestöll félög sem þær
þjóni skili sínum gögnum rafrænt
og það heyri nánast til undan-
tekninga að þær fái í hendurnar
möppur með pappírsreikningum.
Kristjana tekur dæmi af við-
skiptavini sem býr úti á landi
en hún sinnir úr Borgartúninu
í Reykjavík. „Hann nýtir Paypal
greiðslugáttina í sínum viðskiptum
og er búinn að tengja Paypal-
reikninginn sinn við kerfið hjá
okkur. Allt sem fer í gegnum þann
reikning fer sjálfkrafa í vinnslu
í kerfinu. Ég heyri í honum í
síma við og við en hef aldrei hitt
hann og aldrei fengið eitt einasta
prentað skjal frá honum. Hann er
himinlifandi með fyrirkomulagið
og finnst þetta mjög þægilegt.“
hægt að nota app
Fyrirtækjum stendur líka til boða
að nota app í snjalltæki þar sem
tekin er mynd af reikningi sem
síðan er send beint inn í kerfið.
Þóra Steina segir að hjá einu af
fyrirtækjunum sem hún sinnir séu
nokkrir starfsmenn með greiðslu-
kort frá fyrirtækinu. Þeir sömu séu
með app í símunum sínum og taki
mynd af reikningum um leið og
þeir fái þá. „Þetta tryggir örugg skil
og bókhaldið er meira og minna
alltaf „up to date“.
Maður lendir stundum í því að
vera að eltast við bókhaldsgögn
rétt fyrir skil á virðisaukaskatti
með tilheyrandi stressi en það er
ekki vandamál hjá þessu fyrir-
tæki,“ segir Þóra Steina.
Leiðirnar eru enn fleiri því
þær nefna dæmi um aðila sem er
búinn að tengja Dropbox-möppu
við kerfið og annan sem skannar
reikningana sína og stillir skann-
ann þannig reikningarnir sendast
með tölvupósti beint í vinnslu í
kerfinu. „Stundum berast gögn sem
koma bókhaldinu ekkert við eins
og t.d. mynd af hundinum eða eitt-
hvað svoleiðis,“ segir Kristjana og
hlær. Þóra Steina brosir og segist
kannast við þetta. „En það skiptir
engu máli. Þau gögn eru bara sett
til hliðar og haldið áfram að vinna
í bókhaldinu.“
Góður sveigjanleiki
Þóra Steina og Kristjana eru sam-
mála um að tæknin hafi ekki bara
kosti í för með sér fyrir viðskipta-
vinina heldur njóti þær sjálfar góðs
af. „Það er ótrúlega gott að vera
laus við möppustaflana svo ég tali
nú ekki um allan innsláttinn með
hættu á mistökum hjá bókurum
sem iðulega tekur langan tíma að
rekja og leiðrétta,“ segir Kristjana.
Þóra Steina segir þetta líka veita
henni sveigjanleika varðandi
vinnu og vinnutíma. „Ég þarf
bara vinnutölvuna mína og net-
tengingu. Sem móðir með ungt
barn kemur það sér stundum mjög
vel að geta unnið heima og á þeim
tíma sem hentar. Sveigjanleikinn
er ómetanlegur í minni stöðu,“
segir hún.
Kristjana tekur undir þetta og
bendir á hvað þær séu óháðar
staðsetningu. „KPMG er með skrif-
stofur um allt land og tæknin gefur
okkur kost á að deila verkefnum.
Við höfum komið upp mjög stöðl-
uðu vinnulagi þannig að bókari á
Sauðárkróki getur til dæmis tekið
yfir mín verkefni þegar álagið er
mikið eða þegar ég fer í sumarfrí og
öfugt. Og viðskiptavinurinn getur
síðan verið allt annars staðar.“
Frábærir fagmenn
Kristjana og Þóra Steina eru báðar
ungar og eiga auðvelt með að til-
einka sér tæknina. En hvað með
þá sem eldri eru, flækist þetta ekki
fyrir þeim? „Nei, alls ekki,“ segir
Þóra Steina. „Einhverjir voru efins í
byrjun en þegar fólk sér og upplifir
kostina og þægindin þá er þetta
ekkert mál. Enda er samstarfs-
fólk okkar allt meira og minna
snillingar og frábærir fagmenn,“
segir hún brosandi. Kristjana
tekur undir með Þóru Steinu og
bætir við: „Það sama á við um við-
skiptavinina. Auðvitað voru þeir
tæknisinnuðu fyrstir til að stökkva
á vagninn en núna er alls konar
fólk að nýta sér tæknina. Enda er
þetta ekkert flókið og í raun mun
einfaldara en að halda utan um
alla pappírana og koma þeim í hús
til okkar á réttum tíma.“
Fjórða iðnbyltingin með alla
sína sjálfvirknivæðingu og gervi-
greind teygir anga sína víða og
hefur svo sannarlega hafið innreið
sína á uppgjörs- og bókhaldssvið
KPMG. Starf bókarans hefur þegar
breyst miðað við það sem áður var
og mun halda áfram að þróast og
breytast á næstu misserum. Þær
Þóra Steina og Kristjana horfa
björtum augum til framtíðar og
segjast hlakka til að takast á við
ný og spennandi verkefni á sínu
sviði. Þær stefna ótrauðar að því
að fullnýta tæknina til að bæta og
efla þjónustuna við viðskiptavini
KPMG og gera starf sitt fjölbreytt-
ara og skemmtilegra um leið.
Pappírslaust bókhald er
nútíminn hjá KPMG á Íslandi
Pappírslaust bókhald er eitt af meginmarkmiðum uppgjörs- og bókhaldssviðs KPMG. Þar nýtur
sviðið góðs af tækniþróun og innleiðingu nýrra tæknilausna eins og KPMG Bókað (bókað.is) sem
inniheldur meðal annars skönnunarlausn þar sem reikningum er skilað með rafrænum hætti.
Kristjana hlín Valgarðsdóttir og Þóra Steina Jónsdóttir starfa við bókhald hjá KPMG og hafa tekið tækninni fagnandi.
2
6
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
D
6
-1
1
B
8
1
E
D
6
-1
0
7
C
1
E
D
6
-0
F
4
0
1
E
D
6
-0
E
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
2
5
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K