Fréttablaðið - 26.01.2018, Qupperneq 28
„Starfsmenn BYGG skrá alla vinnustundir, verkefni og efnisnotkun í nýja
snjallsímalausn Stólpa í gegnum læstan aðgang. Þetta hefur aukið alla skil-
virkni, daglega yfirsýn og áreiðanleika í rekstri okkar,“ segir Hörður Gylfason.
Aðgengileg og
auðrekjanleg gögn
8 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . jA N úA R 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U ReNduRSKoÐuN oG BóKHALd
Þótt bókhald sé í grunninn eins hjá öllum fyrirtækjum hafa þau samt sem áður mjög ólíkar
kröfur þegar kemur að því að velja
heppilegt bókhalds- og upplýsinga-
kerfi. Í Stólpa er auðvelt er að raða
saman mismunandi kerfiseiningum
sem vinna allar saman sem ein
heild. Á síðustu 15 árum höfum við
stöðugt verið að bregðast við nýjum
þörfum viðskiptavina og hefur
kerfið því tekið út mikinn þroska
sem gerir okkur kleift að mæta flest-
um kröfum viðskiptavina okkar,“
segir Guðmundur Ingi Hauksson,
framkvæmdastjóri Stólpa.
Yfir 1.000 fyrirtæki af öllum
stærðum og gerðum nota Stólpa.
„Kerfið er einna vinsælast hjá þeim
hópi viðskiptamanna sem óska
ekki aðeins eftir góðu bókhalds-
kerfi heldur gera einnig kröfu um
öflugt upplýsingakerfi um daglegan
rekstur félagsins. Styrkleikar okkar
liggja í samstæðri heildarlausn og
rafrænum samskiptum,“ segir Guð-
mundur Ingi.
Öflugt þjónustuborð
Á þjónustuborði Stólpa er lögð
mikil áhersla á hraða og góða
þjónustu við viðskiptavini, enda
leggja viðskiptavinir félagsins
mikla áherslu á að fá skýr og
skjót svör þegar á þarf að halda.
Stólpi hefur yfir miklum mann-
auði að ráða en hjá félaginu
starfa m.a. reyndir forritarar,
kerfisfræðingar, viðurkenndir
bókarar, verkfræðingur og við-
skiptafræðingar sem aðstoða
viðskiptamenn eftir þörfum.
„Ánægja viðskiptavina hefur
stóraukist á stuttum tíma enda
ný stefna í þróun og þjónustu
skilað tilætluðum árangri. Nýjum
viðskiptavinum hefur talsvert
fjölgað að undanförnu þrátt fyrir
að áherslan hafi nánast aðeins
verið á eldri viðskiptamenn.
Flestir nýir viðskiptavinir okkar
leita til okkar eftir að hafa heyrt
vel af okkur látið frá viðskipta-
vinum okkar,“ segir Guðmundur
Ingi.
Stólpi viðskiptahugbúnaður
Stólpi er íslenskt bókhalds- og upplýsingakerfi með lausnir fyrir flestar gerðir atvinnurekstrar.
Kerfið er hýst í skýjalausn og því aðgengilegt notanda hvaðan sem er í gegnum læstan aðgang.
Við hjá Bílasprautun og rétt-ingum Auðuns nýtum okkur bifreiðalausnir Stólpa að
öllu leyti. Má þar nefna launa-
kerfi, fjárhags- og upplýsinga-
kerfi og stimpilklukkukerfi þar
sem starfsmenn stimpla sig inn
og út úr verkum. Með bifreiða-
lausnum Stólpa fæ ég góða sýn yfir
verkefnastöðuna. Þetta er mjög
heildstætt kerfi sem ég hef verið
einstaklega ánægður með,“ segir
Jón Grétarsson framkvæmdastjóri.
Auðveldar daglegan rekstur
Þegar Jón opnaði fyrirtækið árið
2013 vantaði hann t.d. tímabók-
unarkerfi. „Þrátt fyrir mikla og
ýtarlega leit á netinu fann ég ekk-
ert sem hentaði fyrir bifreiðaverk-
stæði eða þar til ég rakst á kerfi frá
Stólpa sem ég sá mikla möguleika
í. Starfsfólk Stólpa breytti og bætti
kerfið í samræmi við þarfir fyrir-
tækisins og það hefur auðveldað
allan daglegan rekstur,“ segir Jón.
„Má sem dæmi nefna að þegar
viðskiptavinur pantar tíma hjá
mér slæ ég aðeins inn bílnúm-
erið og vel þá dagsetningu sem
hentar best. Kerfið sækir þá allar
upplýsingar í ökutækjaskrá og ég
þarf bara að bæta við símanúmeri
viðskiptavinarins og merkja við
hvort hann vilji bílaleigubíl eða
ekki. Þetta er ótrúlega einfalt,“
bætir Jón við.
Kerfið sendir sms-áminningu
á viðskiptavinina og einnig sms
með stöðu verksins og segir Jón
það mikinn vinnu- og tímasparn-
að. „Þá nota öll tryggingafélög og
bifreiðaverkstæði tjónamatskerfi
sem kallast CABAS. Ekki er hægt
að senda reikninga á viðskiptavini
beint úr CABAS en með sjálfvirkri
veftengingu Stólpa flyst reikn-
ingurinn yfir í sölukerfi Stólpa og
þannig get ég samstundis prentað
út reikning. Þetta kerfi er algjör
snilld,“ segir Jón.
Stólpi býður upp á heild-stæða lausn í fjárhags- og upplýsingakerfi fyrir fyrir-
tæki, auk þess að sjá um launa-
vinnslu og alla kerfisumsjón.
Íslenskur textíliðnaður, eða
ÍSTEX, er eitt þeirra fyrirtækja
sem hafa nýtt sér þessa heild-
stæðu lausn með góðum árangri.
„Við hjá ÍSTEX erum með
fremur flókna birgðastýringu
en fjárhags- og upplýsingakerfið
frá Stólpa hefur reynst okkur
afar vel í þeim efnum. Í gegnum
kerfið sjáum við t.d. á auðveldan
hátt alla lagerstöðu og sölu. Þá
sér Stólpi alveg um launamálin
hjá okkur og kerfisumsjón,“
segir Sævar Sigurður Gunnars-
son framkvæmdastjóri.
Hýsingarþjónusta Stólpa
varðveitir nær öll rafræn gögn
fyrirtækisins og segir Sævar
það hafa gengið mjög vel. „Hjá
Stólpa starfar góður hópur sem
ég mæli heilshugar með,“ segir
hann.
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars er með stærstu byggingafyrir-tækjum hér á landi og hefur
lengið verið í viðskiptum við Stólpa.
Félagið er með vel á þriðja hundrað
starfsmenn sem sinna mismunandi
verkefnum á mismunandi stöðum.
„Starfsmenn BYGG skrá allar vinnu-
stundir, verkefni og efnisnotkun
í nýja snjallsímalausn Stólpa í
gegnum læstan aðgang. Verkstjórar
okkar yfirfara skráningar áður en
þær eru senda yfir í verkbókhald
og launakerfi Stólpa sem reiknar
laun hvers starfsmanns í samræmi
við vinnuframlag. Þetta hefur aukið
alla skilvirkni, daglega yfirsýn og
áreiðanleika í rekstri okkar,“ segir
Hörður Gylfason hjá BYGG.
Bifreiðalausnir – Ótrúlega einfalt kerfi
Heildstæð lausn í
fjárhags- og upplýsingakerfi
Launakerfi og tímaskráning
Hjá Stólpa er boðið upp á fjárhagsbókhald sem gerir stjórnendum fyrirtækja
kleift að fylgjast með rekstrinum
á auðveldan hátt. Með kerfinu er
hægt að gera ársreikning og skatt-
framtal á fljótlegan og einfaldan
hátt, auk skila á virðisaukaskatti.
„Fjárhagsbókhald Stólpa er eitt af
þeim kerfum sem við mælum með
og viðskiptamenn okkar hafa notað
í áratugi sumir,“ segir Eymundur
Sveinn Einarsson, endurskoðandi
og framkvæmdastjóri hjá Endur-
skoðun og ráðgjöf ehf. Hann segir
helstu kostina við kerfið að það
bjóði upp á þægilegar útprentanir
og yfirlit við vinnslu ársreiknings.
Hvað varðar gerð skattframtala og
vsk-skil segir Eymundur fjárhags-
kerfi Stólpa hafa þann kost að gögn
eru aðgengileg og auðrekjanleg.
Nánari upplýsingar má finna á
www.stolpi.is
Helstu kerfiseiningar
Stólpa viðskiptahugbúnaðar
• Fjárhagskerfi
• Skuldunautar
• Lánardrottnar
• Sölukerfi og
innheimtukerfi
• Birgðakerfi og
pöntunarkerfi
• Tollakerfi
• Verkbókhald og
vinnuskýrslur
• Stimpilklukkukerfi
• Launakerfi
• Tímabókunarkerfi
• Rafræn innkaup
• Félagakerfi
• Bifreiðakerfi
• Skipakerfi
• dýralæknakerfi
• Framleiðslukerfi
„Fjárhagsbókhald Stólpa er eitt af þeim kerfum sem við mælum með og
viðskiptamenn okkar hafa notað í áratugi sumir,“ segir eymundur Sveinn
einarsson hjá endurskoðun og ráðgjöf ehf.
„Við hjá ÍSTeX erum með fremur flókna birgðastýringu en fjárhags- og upp-
lýsingakerfið frá Stólpa hefur reynst okkur afar vel í þeim efnum,“ segir Sævar
Sigurður Gunnarsson framkvæmdastjóri. MYNd/VILHeLM
„Við hjá Bílasprautun og réttingum Auðuns nýtum okkur bifreiðalausnir
Stólpa að öllu leyti. Þetta er algjör snilld,“ segir jón Grétarsson. MYNd/eYÞóR
2
6
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
D
6
-1
6
A
8
1
E
D
6
-1
5
6
C
1
E
D
6
-1
4
3
0
1
E
D
6
-1
2
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
2
5
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K