Víkurfréttir - 06.07.2017, Side 1
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
• fimmtudagur 6. júlí 2017 • 27. tölublað • 38. árgangur
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
SIRKUS OG SKRÚÐGANGA Á AFMÆLI VESTURBERGS
Í tilefni af tuttugu ára afmæli leikskólans Vesturbergs var boðið til veislu. Útisvæðið var skreytt, börnin léku sér í hoppukastala og í hádeginu var boðið upp
á pylsur og ís í eftirrétt. Eftir hádegi var svo lagt af stað í skrúðgöngu undir trommuslætti frá nemendum Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Þegar úr skrúð-
göngunni var komið var búið að opna kaffihús í Kiddasal leikskólans þar sem boðið var upp á afmælisköku. Sirkus Íslands mætti á svæðið með skemmtiatriði.
VF-mynd: Sólborg Guðbrandsdóttir.
■ Hinni tíu ára Elísabetu Jóhannes-
dóttur tókst á dögunum að veiða
urriða í Svarfaðardalsá en mörgum
gæti þótt beitan sem hún notaðist
við dálítið undarleg. Elísabet og
frændi hennar ákváðu að prófa að
nota tyggjó á öngulinn.
Hanna Björg Konráðsdóttir, móðir
Elísabetar, sagði í samtali við Víkur-
fréttir að stórfjölskyldan hefði verið
samankomin í orlofshúsi í Svafaðar-
dal. Þar fannst afa Elísabetar nauðsyn-
legt að ná sér í veiðileyfi og fara með
krakkana að veiða.
„Eins og gengur með börn, þá dettur
þeim eitthvað í hug og pabbi hefur
greinilega ekki náð að fylgjast með
þeim öllum í einu. Elísabet og Alex-
ander frændi hennar ákveða að henda
tyggjói á öngulinn. Í þriðja kasti er
hann síðan kominn á, búinn að gleypa
Extra tyggjóið, þessi fíni urriði,“ segir
Hanna, en Elísabet var sú eina af þeim
öllum sem tókst að veiða fisk.
Veiddi
fisk með
tyggjói
Elísabetu Jóhannesdóttur tókst á dög-
unum að veiða urriða í Svarfaðardalsá
en mörgum gæti þótt beitan sem hún
notaðist við dálítið undarleg. Elísabet
og frændi hennar ákváðu að prófa að
nota tyggjó á öngulinn.
Magnús Árni telur að það séu nokkrar
skýringar á þessu. „Ein skýringin er sú
að fjöldi nýrra kaupenda hefur fjölgað
á sama tíma. Fyrstu kaupendur eru
að færa sig af leigumarkaðnum og
yfir á séreignina. Önnur skýring er
sú að þrátt fyrir að íbúðarverð hafi
hækkað á Suðurnesjum er það enn
talsvert undir íbúðarverði á höfuð-
borgarsvæðinu. Hvati til að flytja á
Suðurnesin af höfuðborgarsvæðinu er
talsverður,“ segir Magnús.
Framboð af íbúðarhúsnæði til leigu
hefur minnkað þar sem íbúðir sem
áður voru í leigu hafa verið seldar og
aðrar íbúðir ekki komið inn á leigu-
markaðinn í staðinn. Meðaleiguverð
á tveggja herbergja íbúð hér á Suður-
nesjum er 1814 kr. fm., þriggja her-
bergja íbúðir á 1692 kr. fm. og fjögurra
herbergja íbúðir á 1211 kr. fm. Leigu-
verð er samt talsvert undir leiguverði í
höfuðborginni. Íbúðarverð miðað við
leigu var einnig hagstætt en ávöxtun
leigusala á Suðurnesjum var með því
besta sem gerist á landinu.
Á fasteigna- og leigumiðluninni Fer-
metra í Reykjanesbæ er ekki nein íbúð
auglýst til leigu. „Framboð af lausu
leiguhúsnæði er í sögulegu lágmarki
um þessar mundir. Eftirspurn eftir
leiguhúsnæði er mun meiri en fram-
boðið og leiguverð hefur hækkað um-
talsvert á þessu og síðasta ári,“ segir
Þröstur Ástþórsson hjá Fermetra.
Heimavellir er eitt af stærri leigu-
Leiguíbúðum fækkar
og verðið hækkar
●● Leiguverð●hefur●hækkað●um●74%●frá●2011●
●● Hvati●til●að●flytja●á●Suðurnesin●af●höfuðborgarsvæðinu●er●talsverður
●● Fleiri●fara●í●fasteignakaup●í●stað●þess●að●leigja
Leiguverð hefur hækkað mikið á Suðurnesjum síðustu ár. Frá árinu 2011
til loka árs 2016 hækkaði það um 74%. Hækkun á leiguverði frá apríl 2016
til sama mánaðar 2017 nam 13%. Þetta kom fram í erindi Magnúsar Árna
Skúlasonar á fundi um húsnæðismarkaðinn á Suðurnesjum á vegum Íslands-
banka nýlega. Á árunum 2005-2016 voru flestir leigusamningar gerðir árið
2011 eða um 1300 samningar. Á síðasta ári voru gerðir 1100 leigusamningar
á Suðurnesjum og voru því um 200 færri en þegar þeir voru flestir árið 2011.
félögum á landinu en þeir eiga 778 í
búðir á Suðurnesjum sem þeir leigja
út. Flestar íbúðirnar eru staðsettar á
Ásbrú í Reykjanesbæ og í Grindavík.
„Við upplifum vel þann mikla upp-
gang sem er á svæðinu og allar íbúðir
sem losna hjá okkur leigjast hratt
og vel. Við notum ekki biðlistakerfi
heldur eru einfaldlega allar íbúðir
sem losna auglýstar á heimasíðu og
facebook síðu félagsins í 5 daga og
þeim úthlutað að því loknu. Við erum
svo heppin að í eignunum á Ásbrú
erum við með ríflega 70 setustofur
sem við erum að breyta í íbúðir og
munu fara í leigu um leið og þær verða
tilbúnar,“ segir Guðbrandur Sigurðs-
son hjá Heimavöllum.
Heimavellir hófu starfsemi á Suður-
nesjum síðasta sumar þegar þeir
eignuðust blokkina við Stamphólsveg
í Grindavík og skömmu síðar keyptu
Heimavellir um 100 leiguíbúðir í
Reykjanesbæ. „Í lok síðasta árs sam-
einuðust við Ásabyggð sem átti ríflega
700 eignir á Ásbrú og tókum yfir starf-
semi þessa félags í byrjun þessa árs. Ef
við horfum til Ásabyggðar sem áður
hét Háskólavellir þá erum við með
um 10 ára rekstrarsögu á svæðinu.
Við höfum verið að endurskipuleggja
safnið undanfarna mánuði og höfum
þannig selt frá okkur tvær einstakl-
ingsblokkir upp á Ásbrú og eitthvað af
stökum eða óhentugum leigueignum
á öðrum stöðum.“
Staðan á leigumarkaðinum hefur
versnað enn frekar að undanförnu því
annað stóru leigufélaganna á Ásbrú
tók þá ákvörðun að selja íbúðir sem
til stóð að leigja. Af þeim sökum hafa
allnokkrir sem höfðu gert ráð fyrir því
að komast þar inn lent í vandræðum
þar sem framboðið af leiguíbúðum er
mjög lítið um þessar mundir.
Frá árinu 2011 til loka árs 2016
hækkaði húsaleiga um 74%.