Víkurfréttir - 06.07.2017, Side 2
2 fimmtudagur 6. júLí 2017VÍKURFRÉTTIR
ALLTAF PLÁSS
Í B Í L N U M
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA, TVISVAR Á DAG.
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
SÍMI: 845 0900
Heimilisfólk í íbúðarhúsi einu á Týsvöllum í Reykja-
nesbæ brá sér af bæ nýlega. Þegar komið var til baka
tók það eftir því að skógarþröstur var búinn að gera
sig heimakominn í hengiblómi við innganginn inn á
heimilið. Þegar betur var að gáð var komið hreiður í
hengiblómið, fyrst var eitt egg en að lokum urðu þau
fimm. Eftir nokkra daga var búið að unga út eggjunum
og fimm ungar litu dagsins ljós. Ungarnir hafa dafnað
vel síðustu daga enda foreldrarnir duglegir við að tína
orma og annað góðgæti og gefa þeim. Heimilisfólkið
hefur haft gaman að þessari nýju fjölskyldu og fylgst
með ungunum vaxa og dafna.
Ný stjórn Þróunarfélags Keflavíkur-
flugvallar, KADECO, var kjörin á
aðalfundi félagsins í sl. viku. Í stjórn
voru kjörin Georg Brynjarsson for-
maður, Hafsteinn S. Hafsteinsson og
Steinunn Sigvaldadóttir og í vara-
stjórn Hrafn Hlynsson. Á aðalfund-
inum var samþykktur ársreikningur
fyrir árið 2016 og ársskýrsla kynnt
en árið markaði 10 ára afmæli fé-
lagsins.
Á fundinum kom fram að á þeim tíu
árum sem félagið hefur starfað hafa
93% þeirra eigna sem félagið fékk til
umsjónar verið seldar og hefur ríkið
hagnast um 10 milljarða á sölu þeirra.
Á Ásbrú er nú lífleg íbúabyggð og
fjölbreytt atvinnustarfsemi sem hefur
styrkt samfélagið í Reykjanesbæ mikið
og enn eru fjölmörg ónýtt tækifæri til
frekari atvinnuuppbyggingar á svæð-
inu, sérstaklega vegna nálægðar við
Keflavíkurflugvöll, segir í tilkynningu
frá KADECO.
Hagnaður ársins tæpir 1,2 milljarðar
Hagnaður Þróunarfélags Keflavíkur-
flugvallar árið 2016 fyrir afskriftir og
fjármagnsliði var 647 milljónir króna.
Að teknu tilliti til fjármagnsliða og
áhrifa dótturfélaga var hagnaður fé-
lagsins 1.465,2 milljónir króna. Hagn-
aður ársins eftir reiknaða skatta nam
1.188,2 milljónum króna. Samkvæmt
efnahagsreikningi námu eignir sam-
stæðunnar í lok ársins 2016 samtals
10.558 milljónum króna. Heildar-
skuldir félagsins námu 8.441,1 millj-
ónum króna og eigið fé félagsins nam
2.116,9 milljónum króna.
10 milljarða hagnaður
til ríkisins á tíu árum
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar
var stofnað 24. október árið 2006
og því markaði árið 2016 tíu ára af-
mæli félagsins. Markmið ríkisins með
stofnun félagsins var að koma eignum
sem ríkið tók yfir á varnarsvæðinu á
Miðnesheiði sem fyrst í skipuleg, hag-
felld, borgaraleg not með sem mestum
jákvæðum áhrifum á nærsamfélagið.
Þegar félagið tók til starfa var verðmæti
eigna ríkisins metið á 4 til 5 milljarða
króna. Nú þegar sér fyrir endann á
sölu þeirra fasteigna sem félagið fékk
í sína vörslu er ljóst að söluverðmæti
þeirra verði um 18 milljarðar króna.
Þannig munu hreinar tekjur ríkissjóðs
af sölu eignanna nema um 10 millj-
örðum króna.
Í dag búa um 2.500 manns á Ásbrú og
þar starfa á annað hundrað fyrirtæki
og stofnanir á ýmsum sviðum með
yfir 800 starfsmönnum. Á svæðinu
eru starfrækt fimm gagnaver stór og
smá, stórskala örþörungaræktun,
menntastofnun, fjöldi hótela, gisti-
heimila og annarra þjónustufyrir-
tækja auk grunnskóla og tveggja leik-
skóla. Þegar allt er lagt saman nemur
heildarfjárfesting frá árinu 2006 vel á
annað hundrað milljarða króna, segir
í tilkynningu félagsins.
■ Til stendur að lagfæra öryggis-
svæði Grindavíkurvegar, sem hluta
af sérstakri öryggisaðgerð. Í það
verkefni hefur verið veitt 20 millj-
ónum króna. Í því felst m.a. að lag-
færa hvassar brúnir sem eru við mal-
bikskanta og hreinsa stórgrýti úr
vegsvæði og lagfæra fláa við veginn.
Þrír kaflar á Grindavíkurvegi verða
malbikaðir í sumar. Tveir stuttir og
einn lengri upp af Seltjörn. Þá verður
væntanlega eitthvað unnið við holu-
viðgerðir á veginum líka. Einnig
verður malbikaður kafli á Austurvegi
í Grindavík, frá tjaldstæðinu og að
Hópsbraut. Einnig eru vegrifflur á
miðjunni á Grindavíkurvegi, þannig
að fræsa þarf nýja þar sem nýtt mal-
bikslag verður sett.
Þetta kemur fram í svari Vegagerðar-
innar við fyrirspurn Víkurfrétta um
malbikun á þjóðvegum á Suður-
nesjum í sumar.
■ Listaverkið Áttir eftir Steinunni Þórarinsdóttur myndlistarmann
hefur verið komið fyrir á nýjum stað við Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Listaverkið var áður á brottfararsvæði flugstöðvarinnar en var tekið
niður þegar breytingar voru gerðar á brottfararsalnum. Það hefur verið
í geymslu í nokkurn tíma. Listaverkinu hefur verið fundinn nýr staður
fyrir utan flugstöðina við útganginn komumegin. Það voru þau Stein-
unn Þórarinsdóttir, höfundur listaverksins, og Björn Óli Hauksson, for-
stjóri Isavia, sem klipptu á borðann við hátíðlega athöfn.
Í lýsingu listamannsins segir: „Verkið sýnir fjórar manneskjur steyptar
í sama mót sem komið er fyrir ofan á súlum úr stuðlabergi. Þær snúa í
höfuðáttirnar og vísa til þess að á þessum stað í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
liggja vegir til allra átta og um leið eru þær vegvísir. Manneskjurnar eru eins
konar vitar sem vísa veginn og sjást víða að á þessu stóra opna svæði, jafnvel
þótt fólk sé sitjandi. Farþegar og þeir sem um svæðið fara geta í raun gengið
inn í verkið og staðið í því miðju og upplifað áttirnar þannig beint og sjálft
sig sem eins konar kjarna eða miðju verksins.
Manneskjurnar eru allar steyptar í sama mót úr áli sem tengist lit og efni
flugvéla og himinsins. Þær eru í líkamsstærð og standa á 120 cm háum
stuðlabergssúlum, íslensku bergi sem minnir á landið sjálft. Hæð verksins
er því um þrír metrar og er það innan ramma sem er 3x3 metrar að flatar-
máli.”
■ Skötumessan 2017 verður haldin
í Miðgarði Gerðaskóla í Garði mið-
vikudaginn 19. júlí kl. 19. Að venju
er fjölbreytt skemmtidagskrá; Dói
og Baldvin, Páll Rúnar Pálsson, Her-
mann Ingi og Helgi Hermannssynir,
Gullkistan; Ásgeir Óskarsson úr
Stuðmönnum, Gunnar Þórðarson
úr Hljómum, Jón Ólafsson úr Pe-
lican og Óttar Felix Hauksson úr
Pops.
Ræðumaður verður Ólafur Helgi
Kjartansson lögreglustjóri. Styrkveit-
ingar til einstaklinga og félagasamtaka
eru hluti af dagskrá.
Verð kr. 4.000, sama verð ár eftir ár.
Greiðið inn á reikning Skötumess-
unnar; 0142-05-70506, kt. 580711-
0650. Þeir sem greiða í forsölu fá
örugg sæti en alltaf er uppselt á Skötu-
messuna.
Skötumessan er áhugafélag um velferð
fatlaðra.
Skógarþröstur gerir sig
heimakominn í hengiblómi
●● Fimm●svangir●ungar●í●hreiðri●á●Týsvöllum●í●Keflavík
Listaverkið Áttir endur-
afhjúpað við Flugstöð
Leifs Eiríkssonar
Það voru þau Steinunn Þórarinsdóttir, höfundur listaverksins, og Björn Óli
Hauksson, forstjóri Isavia, sem klipptu á borðann við hátíðlega athöfn
93% eigna seldar með
10 milljarða hagnaði
fyrir ríkið á tíu árum
●● Hagnaður●ársins●2016●tæpir●1,2●milljarðar●kr.
Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir að til standi
að leggja starfsemi Kadeco, þróunarfélags Keflavíkurflugvallar, niður í
núverandi mynd. Þetta kemur fram í frétt Kjarnans.
Skipt var um stjórn í félaginu í vikunni og upprunalega hlutverki þess, að
selja fasteignir á Ásbrú, sé nú lokið. Benedikt telur hins vegar vera þekk-
ingu hjá starfsfólki félagsins, sem sé þess eðlis að hún gæti nýst áfram.
Ráðuneytið vilji taka upp viðræður við heimamenn um hvernig hægt sé
að endurskoða starfsemina með það í huga.
Kadeco verður lagt niður í núverandi mynd
Skötumessan í Garði
haldin 19. júlí
Lagfæra öryggissvæði
Grindavíkurvegar
Búið er að opna fyrir umsóknir um dvöl í íbúð Verkalýðsfélags Grindavíkur á
Tenerife um jólin 19. desember til 2. janúar. Umsóknarfrestur er til 16. ágúst.
Hægt er að sækja um á sjóðsfélagavef félagsins
sem er að finna inná www.VLFGRV.is undir orlofshús
Umsókn um dvöl í
orlofshús