Víkurfréttir - 06.07.2017, Page 6
6 fimmtudagur 6. júLí 2017VÍKURFRÉTTIR
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími
421 0004, pket@vf.is // Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Óskar Birgisson, sími 421 0002, oskar@vf.is // Sólborg Guð-
brandsdóttir, sími 421 0002, solborg@vf.is // Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is // Umbrot: Jóhann Páll Kristbjörnsson, johann@vf.is //
Afgreiðsla: Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is, Dóróthea Jónsdóttir, dora@vf.is // Prentun: Landsprent // Upplag: 9000 eintök // Dreifing: Íslandspóstur //
Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is og kylfingur.is
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17:00 á þriðjudegi fyrir útgáfudag, sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga
er á vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15:00 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og skilafrestur auglýsinga færist fram um einn
sólarhring. Dreifing blaðsins tekur að jafnaði tvo daga. Blað sem kemur út á fimmtudegi er dreift á þeim degi og föstudegi inn á öll heimili á Suðurnesjum.
Efni til Víkurfrétta skal berast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða greinar birtast í prentaðri útgáfu Víkurfrétta.
Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
Lesandi vikunnar í Bókasafni Reykjanesbæjar
,,Það verða allir betri
manneskjur af því að lesa
bókina Góði dátinn Svejk”
-segir Eysteinn Eyjólfsson lesandi vikunnar
Eysteinn Eyjólfsson byrjaði mjög
ungur að lesa og hefur alltaf verið
öflugur lesandi. Um ellefu ára
aldurinn var hann farinn að taka
níu bækur á tveggja daga fresti að
láni hjá Bókasafninu. Hann flutti
sig yfir í fullorðins deildina um tólf
ára aldurinn en þá var hann búinn
að lesa allar bækurnar í barnadeild-
inni.
Eysteinn hefur gjarnan þann háttinn
á að lesa margar bækur í einu. Núna
les hann skáldsögu um Víetnam sem
heitir The story of war eftir Bao Ninh
ásamt því að glugga í Góða dátann
Svejk eftir Jaroslav Hašek. Einnig er
hann með Marvel teiknimyndablöð
við hendina ásamt ferðahandbókum
um Róm, Puglía og Krít en þá staði
heimsækir hann í sumar.
Eysteinn á þrjár eftirlætis bækur en
þær les hann aftur og aftur. Það eru
bækurnar Hundrað ára einsemd eftir
Gabriel Garcia Márquez, Meistarinn
og margarita eftir Mikhail Bulgakov
og Góði dátinn Svejk eftir Jaroslav
Hašek. „Þetta eru allt saman skáld-
sögur og tvær þeirra eiga það sam-
eiginlegt að fjalla um töfraraunsæi.
Það er líka mikill humor í Meistar-
anum og margaritu og Góða dát-
anum Svejk, en þær eru líka ádeilu-
bækur.“
Gabriel Garcia Márquez er eftir-
lætis höfundur Eysteins en hann
hefur lesið flestar bækur eftir hann.
„Hundrað ára einsemd var fyrsta
bókin sem ég las eftir hann en síðan
hef ég lesið fleiri verk eftir hann.
Bókin finnst mér mjög heillandi en
hún fjallar um sögu Buendía ættar-
innar og er eins og spegill inn í
Suður-Ameríku á ákveðnum tíma.”
Núna les Eysteinn einna helst bækur
tengdar sögulegu efni, bæði sögu-
legar skáldsögur og sagnfræðirit.
Einnig fylgist hann vel með því sem
fram fer í heimsmálum og les bækur
sem tengjast því. „Ég les líka alltaf
mikið af teiknimyndasögum,“ bætir
Eysteinn við kíminn.
Sú bók sem hefur haft mest áhrif á
Eystein er bókin Ég lifi eftir Martin
Gray. Bókin segir frá manni sem
lendir ungur í nasistabúðum og lifir
það af en lendir síðar í því að missa
hluta fjölskyldu sinnar í skógareldi.
„Ég las þessa bók tiltölulega ungur
og ég man eftir því að hún var mjög
áhrifarík. Á svipuðum tíma las ég
líka Dagbók Önnu Frank sem hafði
líka mikil áhrif á mig.“
Eysteinn er ekki í vafa um hvaða bók
allir ættu að lesa; „Það verða allir
betri manneskjur af því að lesa bók-
ina Góði dátinn Svejk.“
Eysteinn getur lesið nánast alls staðar
og sem barn las hann mikið í baði og
við matarborðið, sem hann segir að
hafi ekki vakið neina sérstaka lukku.
Allra best þykir honum að lesa upp
í rúmi á kvöldin og segist ekki geta
sofnað án þess að lesa nokkrar blað-
síður.
Á eyðieyju tæki Eysteinn með sér
öll bindi alfræðirits Brittanicu, enda
þarf fólk á eyðieyjum líka að sofa.
Í sumar ætlar Eysteinn meðal annars
að ferðast til Ítalíu og Krítar. „Mér
finnst gaman að koma inn í bókasöfn
þegar ég ferðast. Ég fer alltaf í bóka-
búðir í öllum borgum sem ég ferðast
til og mér finnst gott að kaupa mér
bækur um svæðið þar sem ég er.“
Bókasafn Reykjanesbæjar er opið
alla virka daga frá klukkan 09-18 og
á laugardögum frá klukkan 11 til 17.
Rafbókasafnið er alltaf opið – nánari
upplýsingar á heimasíðu safnsins. Á
heimasíðu safnsins er hægt að mæla
með Lesanda vikunnar.
„Ég held ég hafi komið fjölskyldu minni svolítið á óvart með þessari
ákvörðun þar sem ég hef aldrei þolað mikinn hita né mátt sjá svo
mikið sem húsflugu án þess að hlaupa í burtu öskrandi,“ segir Kefl-
víkingurinn Ellen Agata Jónsdóttir, en hún er búsett hinum megin á
hnettinum í Brisbane í Ástralíu þar sem hún stundar mastersnám í
markaðsfræði við Griffith University.
Ellen segist sátt í Ástralíu en hún
flutti þangað um hásumar og segist
í dag vera farin að venjast hitanum.
„Fólkið hér er mjög viðkunnanlegt
og skemmtilegt og maður lendir oft
í samræðum við bláókunnugt fólk,
hvort sem það er úti í búð eða í strætó.
Hér í Brisbane er lífinu tekið nokkuð
rólega. Það er stutt í strendurnar og
fólk fer mikið þangað um helgar. Það
er einnig mikið um matarmarkaði og
þangað fer ég oft, bæði til að smakka
mat frá öllum heimshornum og til að
versla ferska ávexti og grænmeti. Svo
elska ég að labba um borgina og finna
ný kaffihús og fylgjast með mann-
lífinu.“
Ellen, sem er útskrifaður tómstunda-
og félagsmálafræðingur frá HÍ, ætl-
aði upprunalega að sækja um í skóla
í London, en það hafði alltaf verið
hennar draumur. Hún ákvað þó á síð-
ustu stundu að reyna að upplifa meira
ævintýri og endaði í Brisbane. „Þegar
ég lærði í HÍ reyndi ég að leggja sem
mesta áherslu á viðburðastjórnun í
námi en ég kláraði einnig diplómu í
viðburðarstjórnun frá Háskólanum á
Hólum. Þegar ég fór svo að huga að
mastersnámi vissi ég að ég vildi auka
þekkingu mína á öðru sviði og hefur
mér alltaf þótt markaðsmál áhugaverð
og viðburðarstjórnun og markaðs-
fræði passa vel saman.“
Hingað til hefur Ellen reynt að ferðast
eins mikið og hún getur. Hún hefur
meðal annars ferðast um Norður
Queensland til að skoða The Great
Barrier Reef, siglt á milli Whitsundays
eyjanna, þar sem hún synti í sjónum
með banvænum marglittum, farið í
roadtrip til Sydney, í tveggja vikna
rútuferð um Nýja Sjáland og nýlega
kom hún heim frá Fiji sem hún segir
einn magnaðasta stað sem hún hefur
upplifað. „Ég held ég hafi ekki farið í
skó í viku. Á Fiji er æðislegt fólk og þar
er enginn að stressa sig á hlutunum.“
Það hefur komið Ellen á óvart hvað
hún hefur fengið litla heimþrá, en hún
flytur þó aftur heim til Íslands í ágúst
að náminu loknu. „Ég er búin að upp-
lifa svo mikið af nýjum og skemmti-
legum hlutum, en það er líka svo auð-
velt að vera í sambandi við fjölskyldu
og vini í gegnum netið. Auðvitað
koma upp tímar þar sem maður væri
alveg til í að vera heima og þá finnur
maður virkilega hvað þetta er langt í
burtu. Þær aðstæður hafa komið upp
þar sem ég gat ekki hugsað mér að
vera annars staðar en á Íslandi. Ég
á svo ótrúlega fjölskyldu sem flaug
mér þá heim sem ég verð ævinlega
þakklát fyrir. Ferðalagið tók tvo heila
daga sem einkenndust af flugvallarbið
og flugferðum.“ Ellen segir það ekki
fyrir hvern sem er að búa svona langt í
burtu en hún segist hafa kynnst fullt af
fólki alls staðar frá í heiminum. „Það
eru fjölmargir búnir að boða komu
sína til Íslands þegar ég flyt heim.
Fyrsta heimsóknin er einmitt núna í
október þar sem vinkonur mínar frá
Noregi, Kanada og London ætla að
koma í heimsókn.“
Sólborg Guðbrandsdóttir
solborg@vf.is
Masterar markaðsfræði
hinum megin á hnettinum
●● Ellen●Agata●Jónsdóttir●nýtur●lífsins●í●Ástralíu
Okkar ástkæra eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma,
María Hafdís Ragnarsdóttir,
Lómatjörn 3, 260 Reykjanesbæ,
lést 1. júlí eftir stutta baráttu við krabbamein. Jarðarförin fer fram
frá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 12. júlí kl.13
Sveinbjörn Þórisson
Ragnar Ómarsson
Þórir Sveinbjörnsson Kristjana Dögg Hafþórsdóttir
Sóley Sveinbjörnsdóttir Kenneth W. Frederick
Bjarni Steinar Sveinbjörnsson Thelma Karen Kristjánsdóttir
og barnabörn
Með vinkonum
við Óperuhúsið
í Sydney.
Ellen ásamt vinum sínum á Fiji.
Ellen í Blue Mountains,
New South Wales.