Víkurfréttir - 06.07.2017, Qupperneq 8
8 fimmtudagur 6. júLí 2017VÍKURFRÉTTIR
„Tíminn bara hvarf. Allt í einu voru
liðin 14 ár og ég enn ekki komin
með meistaragráðuna. Að auki er
ég í mjög ótryggu starfi. Þannig
að þegar ég sá fjarnám auglýst hjá
Bifröst vorið 2015, þá fannst mér
rétti tíminn kominn. Börnin mín
voru komin á legg, ég búin að ná
ágætum tökum á nýja starfinu og
tilbúin að setjast aftur á skólabekk,“
segir Njarðvíkingurinn Silja Dögg
Gunnarsdóttir er þriðji þingmaður
Framsóknarflokksins í Suðurkjör-
dæmi, en nýverið útskrifaðist hún úr
meistaranámi í alþjóðaviðskiptum.
Hún segist alltaf hafa ætlað sér að
fara í meistaranám að BA-námi
loknu, sem hún kláraði árið 2001,
en eftir að hún komst út á vinnu-
markaðinn hafi alvara lífsins tekið
við og námið þurft að sitja á hak-
anum.
Silja ákvað að fara í alþjóðaviðskipti
og segir að sér hafi þótt fögin sem
kennd voru á þeirri braut öll mjög
áhugaverð. „Ég valdi alþjóðaviðskipti
þar sem ég taldi að það nám gæfi mér
aukna þekkingu á því sem ég er að
fást við á Alþingi og aukna möguleika
á vinnumarkaði. Ég valdi hagsögu-
braut á sínum tíma í sagnfræðináminu
þannig að þessi tegund meistaranáms
rímaði líka vel við þann grunn.“
Sveigjanleikinn góður
Hún segir fjarnámið á Bifröst mjög
sveigjanlegt, að það hafi hentað sér
mjög vel og passað vel við taktinn í
þingstöfunum. „Fjarnámið á Bifröst er
sniðið að fólki sem er í fullri vinnu og
fólk getur ráðið hversu hratt það fer.
Margir samnemendur mínir voru t.d.
í vaktavinnu og/eða bjuggu erlendis. Í
fjarnámi getur þú hlustað á fyrirlestra
hvar og hvenær sem er og unnið verk-
efnin þegar þér hentar. Við unnum
mörg hópverkefni og það gerðum við
að mestu í gegnum Google docs og
Skype. Þannig að námsaðferðirnar
sem fylgja fjarnáminu voru ekki síður
gagnlegar og lærdómsríkar fyrir mig
en námið sjálft. Öll heimildavinna er
líka gerbreytt frá því sem áður var.
Það er talsvert fljótlegra í dag að
safna heimildum heldur en þegar ég
var í sagnfræðinni og eyddi löngum
stundum á Þjóðarbókhlöðunni að
leita að bókum, ljóstrita og skrifa
niður.“ Silja segir fólk fyrst og fremst
verða að hafa mikinn vilja og metnað
til að leggja sig fram, vera tilbúið til að
fórna öllu á meðan náminu stendur
eins og skemmtunum, sjónvarpsglápi,
samveru með vinum og svo fram-
vegis. Þá segir hún að það hjálpi líka
til að fólk sé mjög skipulagt, sé fljótt
að greina aðalatriði frá aukaatriðum í
námsefninu og síðast en ekki síst, vera
hraðlæst og eiga fjölskyldu sem styður
það algjörlega.
Fjarnámið hentaði vel
Vinnudegi Silju lýsir hún sem mjög
óreglubundnum og oft fullkomlega
ófyrirsjáanlegum og því hafi fjarnámið
hentað henni vel. „Ég hefði ekki geta
verið í námi þar sem ég þyrfti alltaf
að mæta á vissan stað á ákveðnum
tíma. Það hefði verið útilokað. Hið
sama gildir til dæmis um vaktavinnu-
fólk eins og hjúkrunarfræðinga, en
þeir voru þó nokkrir með mér í fjar-
náminu.“
Hún segir að námið hafi gert sig hæf-
ari í þeim störfum sem hún sinnir nú
á Alþingi. „Ég tók til dæmis áfanga
er snúa að stjórnun og þjónandi for-
ystu, áfanga í lögum um stjórnsýslu-
rétt og nokkra áfanga í fjármálum og
alþjóðaviðskiptum sem hafa allir nýst
mér afar vel bæði í fjárlaganefnd og í
utanríkismálanefnd, sem hafa verið
mínar aðalefndir það sem af er. Að
auki tel ég mig hafa bætt stöðu mína á
vinnumarkaði, en eins og allir vita þá
er það liðin tíð að þingstörf séu álitin
framtíðarstörf. Alþingismenn eru nú
bara fólk og þurfa að fá tækifæri til að
hugsa um eitthvað annað en vinnuna.
Sumir hlaða batteríin með því að
fara út að hlaupa, syngja í kór, mála
myndir, fara á hestbak eða eitthvað
annað. Ég kaus að fara aðra leið, loka
mig inni í herbergi með fræðibækur
og hlusta á fyrirlestra. Já, maður er
skrýtið nörd en það er gott að næra
„sitt innra nörd“ af og til.
Silja segist hafa lagt sig alla fram við
að sinna skyldum sínum á Alþingi
af kostgæfni. „Ég hef lagt fram fjöl-
mörg mál, bæði frumvörp, þingsálykt-
anir og fyrirspurnir, verið virk í um-
ræðunni í þingsal og sinnt nefndar-
störfum eftir bestu getu. Ég læt verkin
tala og draumana rætast og vona að ég
geti verið sem flestum hvatning.“
solborg@vf.is
●● „Gott●að●næra●„sitt●innra●nörd“●af●og●til,“●segir●alþingismaðurinn●Silja●Dögg●sem●er●nú●meistari●í●alþjóðaviðskiptum
Lætur verkin tala og draumana rætast
Hvað ertu að bralla þessa dagana?
Ég vinn á leikskólanum Gefnarborg í Garði.
Hvað finnst þér best við það að hafa
alist upp á Suðurnesjunum?
Frelsið. Mér fannst ég alltaf örugg hérna og ég
vissi að ef eitthvað kæmi upp á þá væri alltaf stutt
í hjálpina. Það er stutt í allt og alla. Það var einn-
ig svo æðislegt að það þyrfti ekki að fara langt til
þess að komast í algjöra kyrrð og sveitafýling.
Ef þú ættir að mæla með einhverju einu
af svæðinu fyrir ferðamenn eða þá sem
búa ekki hér, hvað væri það?
Það er svo erfitt að velja einn stað því það er svo
margt fallegt hérna en annars Reykjaneshringur-
inn og Garðskaginn stendur einnig alltaf fyrir sínu.
Hvað ætlarðu að gera í sumar?
Ég ætla að ferðast um landið. Markmiðið
mitt er að reyna að fara í margar náttúru-
laugar. En ég verð að vinna eitthvað líka.
Hvað finnst þér betur mega fara í bænum?
Það þarf að reyna að lífga upp á Hafnargötuna,
bæði götuna sjálfa og lífið í kringum hana.
TARA RÓS JÓHANNSDÓTTIR SVARAR SPURNINGUM
UM LÍFIÐ OG TILVERUNA SUÐUR MEÐ SJÓ
■ Guðlaug Er-
lendsdóttir hefur
verið ráðin sem
aðstoðarskóla-
stjóri í Grunn-
skóla Grinda-
víkur. Guðlaug
er með kennslu-
réttindi í grunn-
og framhalds-
skóla, BA próf
í sálar- og afbrotafræði, meistara-
próf í stjórnun menntastofnana,
meistarapróf í félagsfræði og er í
doktorsnámi við HÍ. Guðlaug hefur
kennt mið- og elsta stigi grunnskóla
á Íslandi og einnig í alþjóðaskólum
erlendis. Þá hefur hún einnig starfað
sem námsráðgjafi.
Guðlaug var ráðin frá og með 1. ágúst
næstkomandi en umsækjendur voru
átta talsins.
Guðlaug Erlendsdóttir
nýr aðstoðarskóla-
stjóri í Grindavík
■ Vel hefur gengið að manna sumar-
störf hjá Sveitarfélaginu Vogum
þrátt fyrir afar gott atvinnuástand.
Umsækjendur í vinnuskóla eru hins
vegar nokkuð færri en áður og á það
sérstaklega við um elstu árgangana.
Þetta kom fram á fundi frístunda-
og menningarnefndar Sveitarfélags-
ins Voga á dögunum.
Búið er að gefa út bækling um sumar-
starf í Vogum og hefur honum verið
dreift í öll hús í sveitarfélaginu. Þar er
farið yfir það starf sem í boði er fyrir
börn og ungmenni í sveitarfélaginu í
sumar. Má þar nefna leikjanámskeið,
vinnuskóla, sumarstarf Þróttar, golf-
námskeið GVS o.fl.
FÆRRI Í VINNUSKÓLA
VOGA EN ÁÐUR
Deildarstjóri
Umsjónarkennsla á yngsta stigi
Leikskólakennarar
Þroskaþjálfi
Textílkennsla á mið- og elsta stigi
Leikskólakennari
LAUS STÖRF
Umsóknum í öll ofangreind störf skal skilað á vef Reykjanes-
bæjar undir Stjórnsýsla: Laus störf. Þar eru jafnframt nánari
upplýsingar um auglýst störf og á Facebook síðunni Reykja-
nesbær - laus störf.
LEIKSKÓLINN HJALLATÚN
HEIÐARSKÓLI
LEIKSKÓLINN HJALLATÚN
HÁALEITISSKÓLI
HEIÐARSKÓLI
LEIKSKÓLINN HOLT
Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er komið til
stofnana sem eru í leit að starfsfólki.
Almennar umsóknir eru geymdar í gagnagrunni okkar í sex mánuði.
VIÐBURÐIR
ÞAÐ SEM EFTIR STENDUR
Gillian Pokalo, bandarískur listamaður sýnir silkiprent af
Reykjanesi í Duus Safnahúsum. Hún verður með leiðsögn
sunnudaginn 9. júlí kl. 14.00 og er sá dagur jafnframt síðasti
dagur sýningarinnar. Allir velkomnir, ókeypis aðgangur.
SÝNING UM KÖRFUKNATTLEIK Í KEFLAVÍK OG NJARÐVÍK
Lumar þú á munum er tengjast meistaraflokkum Keflavíkur og
Njarðvíkur í körfubolta?
Sýning um körfuknattleik í Keflavík og Njarðvík opnar í byrjun
september í Átthagastofu Bókasafns Reykjanesbæjar.
Við óskum eftir munum og myndum frá öllum tímabilum félag-
anna, jafnt kvenna- sem karlaliðum. Tekið er við munum í af-
greiðslu safnsins og hægt er að hafa samband í gegnum net-
fangið bokasafn@reykjanesbaer.is ef einhverjar spurningar
vakna.