Víkurfréttir - 06.07.2017, Blaðsíða 10
10 fimmtudagur 6. júLí 2017VÍKURFRÉTTIR
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga samþykkti þann 28. júní 2017 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi
skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir Aragerði 4 vegna fyrirhugaðar byggingar fjöl-
býlishúss á tveimur hæðum með 6 íbúðum. Tillagan er sett fram á uppdrætti ásamt greinargerð og
vísast til hennar um nánari upplýsingar.
Tillagan verður til sýnis á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogar frá og með fimmtu-
deginum 6. júlí 2017 til og með fimmtudagsins 17. ágúst 2017. Tillagan er einnig aðgengileg á vef
Sveitarfélagsins Voga, www.vogar.is/Skipulag/Skipulag_i_kynningu/
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna.
Skila skal skriflegum athugasemdum til skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogar eða á
netfangið skrifstofa@vogar.is eigi síðar en fimmtudaginn 17. ágúst 2017.
Vogum, 6. júlí 2017
f.h. bæjarstjórnar,
Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri
Auglýsing um skipulag
Sveitarfélagið Vogar
Tillaga að deiliskipulagi
fyrir Aragerði 4.
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga samþykkti þann 28. júní 2017 tillögu að óverulegri breytingu á
Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Voga 2008-2028 samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin felst í að felld er burt verslunar- og þjónustusvæði (VÞ-1) fyrir eldsneytisstöð með sjálfsaf-
greiðslu við iðnaðarsvæði (I-1) norðan Vogavegar. Þess í stað er svæðið skilgreint sem iðnaðarsvæði
(I-1) á sama hátt og aðliggjandi svæði. Greinargerð með rökstuðningi er á uppdrætti
dags. 19. júní 2017 Í mkv. 1:10.000.
Breytingin hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Þeir sem óska nánari
upplýsinga geta snúið sér til skipulags- og byggingarfulltrúa Sveitarfélagsins Voga.
Vogum, 6. júlí 2017
f.h. bæjarstjórnar,
Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri
Auglýsing um skipulag
Breyting á Aðalskipulagi
Sveitarfélagsins Voga 2008-2028
Svæði norðan Vogavegar
Hún var mannvera af besta
gæðaflokki og skilur eftir
sig betri heim. Nanna var
Vesturbæingur eins og ég. Hún
var á aldur við mömmu, bjó í
húsi forfeðra sinna, gift Valdi-
mar sínum og saman eiga þau
fjóra syni. Vesturbæjarvill-
ingurinn ég tók snemma eftir
fólki sem var það sjálft, barst
ekki á, vann verk sín hljóð og
skilaði ávallt sínu besta til samfélagsins,
tók ekki annað en það hafði sannanlega
unnið fyrir. Þannig var fjölskylda Nönnu.
Valdimar var sjómaður sem bar björg í bú,
Nanna sá um mest allt annað. Drengirnir
þeirra skáru sig úr Vesturbæjar barna-
hópnum. Þeir léku með okkur, en voru
ekki ,,villingar”. Ég bar virðingu fyrir upp-
eldinu á þeim, sem skilaði sér m.a. í af-
burða nemendum og síðar fyrirmyndar
fullorðnum mannverum.
Þegar ég gekk með yngri son minn, bjó
ég í næsta húsi við fjölskylduna. Mamma
var farin að vinna úti og ég þurfti að finna
mér nýtt dagforeldri. Ég heimsótti Nönnu
og spurði hvort hún væri tilbúin að hjálpa
mér með uppeldi ófædda barnsins. Hún
ræddi hugmyndina við Valdimar og
drengina og úr varð dagfjölskylda sonar
míns.
Sonur minn var hjá þeim virka daga í sjö
ár. Á þeim tíma lærði hann
margt gott sem hefur fylgt
honum síðan. Nanna tók hlut-
verk sitt alvarlega og stóð full-
komlega undir væntingum
mínum. Valdimar hafði
gaman af peyja og urðu þeir
mestu mátar, borðuðu saman
hákarl ofl.
Eitt atvik er mér sérstaklega
minnisstætt, en það sýnir
svo vel yfirvegun, æðru- og fordómaleysi
Nönnu. Ég hafði hætt að reykja og hafði
orð á því við Nönnu að ég fyndi svo sterka
tóbakslykt af fólki sem reykti. „Já, Hjör-
dís mín, svona lykt hefur fylgt drengnum
þínum frá því þú komst með hann fjögurra
mánaða.” Ég efast ekki um að þessi setning
hafi hjálpað mér að halda reykbindindinu.
Vinátta mín og þeirra hjóna hefur haldist,
þó samverustundum hafi fækkað. Það var
alltaf gott að sækja þau heim og tekið á
móti mér með hlýju þegar ég birtist. Síð-
ustu árin hef ég litið til þeirra af og til á
Nesvelli og farið heim betri manneskja.
Ég er þakklát að hafa fengið Nönnu og fjöl-
skyldu hennar inn í líf mitt og fjölskyldu
minnar fyrir 38 árum.
Hugur minn er hjá Valdimar, strákunum
fjórum og fjölskyldum þeirra.
Hjördís Árnadóttir
Jóhanna Sæmundsdóttir - minning
F . 2 3 . 9 . 1 9 2 8 - D . 1 2 . 6 . 2 0 1 7
„Á Íslandi ætti ekkert barn að
líða efnislegan skort,“ segir
Oddný Harðardóttir, þing-
maður Samfylkingarinnar, en
nýlega sat hún fund á vegum
UNICEF, verkefnastjórnar
um heimsmarkmið Sam-
einuðu þjóðanna, Hagstofu
Íslands og Alþjóðamálastofnunar Há-
skóla Íslands þar sem kynnt var skýrsla
um stöðu barna í efnameiri ríkjum.
Oddný segir Ísland standa sig vel á
mörgum sviðum er varðar velferð barna
en að það megi sannarlega gera betur.
„Þúsundir barna geta því miður ekki
tekið þátt í félags- og íþróttastarfi vegna
þess að foreldrarnir eiga ekki peninga
nema rétt fyrir fæði, klæði og húsnæði.
Tónlistarnám á Íslandi er nánast bara
fyrir börn efnameira fólks. Það finnst
mér ekki ganga og því verður að breyta.
Það eru til áhrifamiklar og einfaldar leiðir
til þess að bæta úr þessu en þær eru ekki
nýttar. Þessu mætti til dæmis breyta með
því að nota jöfnunartækin sem ríkið á og
hafa sýnt sig að virka best, barnabætur
og vaxtabætur. Þessi jöfnunar-
tæki hafa illu heilli verið veikt
mjög mikið vegna aðgerða
síðustu ríkisstjórnar og sú sem
nú heldur um stjórnartaumana
hefur sýnt á spilin í fimm ára
fjármálaáætlun og ætlar að
veikja þau enn frekar. Á meðan
mun staða margra barna versna.“
Oddný segir margt hægt að gera til að
bæta stöðu barna hér á landi. „Við eigum
ekki bara að sætta okkur við að vera ofar-
lega í mælingum á velferð barna, við
eigum að vera efst og best í því að gæta
að góðum lífsgæðum allra barna. Það er
hægt og við höfum efni á því. Akureyrar-
bær hefur tekið að sér að gera tilraun sem
barnvænt sveitarfélag þar sem áhersla er
lögð á að framfylgja barnasáttmála Sam-
einuðu þjóðanna, að börn eigi talsmann á
þeim stöðum sem þau verja mestum tíma
og markvisst sé unnið úr upplýsingum
sem til staðar séu, t.d. um ofbeldi gegn
börnum og heimilisofbeldi,“ segir hún
en hugmyndin er sú að Akureyri verði
fyrirmynd annarra sveitarfélaga í þessum
efnum. Þá segir hún að forgangsröðun
stjórnvalda, hvort sem það sé ríkisins eða
sveitarfélaganna, skipti mestu máli, þ.e.
að málefnum barna og ungra fjölskyldna
sé raðað framar þegar velja á í hvað opin-
berir fjármunir fari. „Mér finnst staða
barna efnaminni fjölskyldna óásættanleg
og vil ekki hætta fyrr en við getum verið
viss um að öll börn séu með og ekkert
barn skilið eftir.“
Oddný bendir á að það séu mörg börn
á Íslandi sem verði fyrir obeldi af hálfu
fullorðinna sem misnoti þau með
ýmsum hætti. „Þetta gerist hér á landi og
við eigum að gera allt sem við getum til
að vernda öll börn gegn slíku. Þar skiptir
t.d. máli að lögreglan sé ekki fjársvelt og
að hún hafi þekkingu og bolmagn til að
sinna slíkum málum hratt og vel. Og að
við þegjum aldrei ef við höfum grun um
að ofbeldi hafi átt sér stað. Svo er styrkur
til barnahjálpar hvar sem er í heiminum
svo mikilvægur. Öll börn eru okkar börn
og við eigum að tryggja þeim öllum gott
líf.“
solborg@vf.is
●● „Við●eigum●að●vera●efst●og●best●í●því●að●gæta●að●góðum●lífsgæðum●
allra●barna,“●segir●Oddný●Harðardóttir,●þingmaður●Samfylkingarinnar.
Öll börn eru okkar börn
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Verið velkomin
á samkomu
alla sunnudaga kl. 11.00
Hvítasunnu-
kirkjan í Keflavík,
Hafnargötu 84
Forvarnir með næringu
STAPAFELL
Hafnargötu 50, Keflavík
NÝTT
Opið alla daga
fram á kvöld
Til leigu
Einstaklingsíbúð til leigu í Keflavik.
Aðeins fyrir reyklausan, reglusaman
einstakling með fasta vinnu. Ekkert
dýrahald. 8630733. Milli 13-19
Lítil, ný 3ja herb. íbúð til leigu. Laus
strax.Upplýsingar í síma 8932974
Til Sölu
Bílskúrssala verður á Hringbraut 136b
laugard- og sunnudaginn 8. til 9. júlí
frá kl.13-16 báða dagana staðgreiðsla
óskast.
SMÁAUGLÝSINGAR
Endurskoðun deiliskipulags
ofan Garðvangs í Sveitarfélaginu Garði
Teiga- og Klappahverfi
Sveitarfélagið Garður vinnur nú að endurskoðun deili-
skipulags ofan Garðvangs, svokölluðu Teiga- og Klappa-
hverfi. Breytingin snýr að þéttingu byggðar og fjölbreytt-
ari íbúðagerð. Þannig mun einbýlishúsalóðum fækka
umtalsvert og meirihluti lóðanna verður skipulagður fyrir
par- og raðhús. Aðkomuleið hverfisins færist vestur fyrir
Sandgerðisveg 7. Endurskoðunin nær einungis til gatn-
anna Asparteigs, Berjateigs, Báruklappar, Brimklappar og
Fjöruklappar, aðrir hlutar hverfisins verða óbreyttir.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með
gefinn kostur á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri
við skipulagsfulltrúa Garðs. Athugasemdir og ábendingar
skulu vera skriflegar og berast annað hvort á Sunnubraut
4, 250 Garður eða á netfangið jonben@svgardur.is í
síðasta lagi 4. ágúst n.k.
Garði 6. júlí 2017
Jón Ben Einarsson, skipulagsfulltrúi