Víkurfréttir - 06.07.2017, Blaðsíða 12
12 fimmtudagur 6. júLí 2017VÍKURFRÉTTIR
Einstök ráðgjöf atvinna
Einstök ráðgjöf leitar að hressu, skemmtilegu og
jákvæðu fólki í hlutastörf.
Starfið felst í að aðstoða tvo unga einhverfa menn sem
búa í sjálfstæðri búsetu. Það er fjölbreytt og skemmti-
legt. Um er að ræða Grindavík og Reykjanesbæ.
Bílpróf er skilyrði!
Frekari upplýsingar veitir Sunna í síma 6925815 / tölvu-
póst sunnaros87@msn.com
GAMLA FRÉTTIN Fyrir
þrjátíu árum birtist frétt
í Víkurfréttum þar sem
Freyr Sverrisson, sem þá
þjálfaði 5. flokk kvenna í
knattspyrnu í Keflavík, lét
rauðu lokkana fjúka en
hann var með rautt sítt hár
á þeim tíma. Hann hafði
lofað stúlkunum sem hann
var að þjálfa, að þær fengu
að klippa hár hans ef þær sigruðu í
öllum leikjunum í fyrstu „turner-
ingunni“. Það fór svo þannig að þær
sigruðu í öllum leikjunum og því varð
Freyr að standa við loforðið. Athöfnin
fór fram við íþróttavallarhúsið í Kefla-
vík. Stúlkurnar klipptu fyrst saman
einn stóran lokk með garðklippum en
síðan klippti hver og ein vænan lokk.
Hann varð svo að fara í klippingu til
að laga hárið eftir að stúlkurnar höfðu
farið höndum um það.
Við athuguðum hvort Freyr gæti sagt
okkur eitthvað frá þessu atviki sem
við fundum í Víkurfréttum sumarið
1987 og hvað hann hefði verð að bralla
síðustu þrjátíu ár.
Getur þú sagt okkur eitthvað frá
þessu?
„Stelpurnar spurðu mig hvort ég vildi
veðja hárinu ef þær ynnu mótið og ég
lofaði því. Mátti vita að það gæti gerst
þar sem í þessum hóp voru miklar
íþrótta- og keppnismanneskjur. Ég
þjálfaði þessar stelpur bæði í knatt-
spyrnu og handbolta og urðu þær Ís-
landsmeistarar í báðum greinum.“
Ertu aftur komin með rauða lokka?
„Já, það vill svo til en ég
þori varla að veðja hárinu
aftur. Ég er hræddur um að
það komi ekki aftur.“
Hvað hefur þú verið að
gera síðustu þrjátíu ár?
„Rækta fjölskylduna og
þjálfa knattspyrnu, fyrst hjá
Keflavík og svo fór ég austur
og var með meistaraflokk
Hattar á Egilsstöðum í tvö
ár ásamt yngri flokkum. Þaðan fór ég
í yngri flokka Njarðvíkur, var lands-
liðsþjálfari U16 hjá KSÍ í 15 ár þar sem
ég fór í gegnum 199 landsleiki víðs
vegar um Evrópu og er nú hjá þjálfari
hjá Haukum. Ég er svo heppinn að fá
að vinna við áhugamálið og það hafa
verið mikil forréttindi.“
Ertu hættur að leika trúð?
„Nei það geri ég sennilega aldrei, er
alltaf að galdra og sprella eitthvað.
Tobbi trúður verður alltaf á hliðar-
línunni tilbúinn í slaginn.“
Er eitthvað sem þú vilt segja að
lokum?
Vísa eftir einn leikinn hjá mér.
Freyr fékk boltann á mikilli ferð.
og fagnaði glaður og feginn.
Hann skaut í hornið í skeytin efst
En skoraði vitlausu megin.
Freyr lætur rauðu lokkana fjúka.
FREYR LÉT RAUÐU LOKKANA FJÚKA
●● Tapaði●veðmáli●gegn●leikmönnum●5.●flokks.●Stúlkurnar●í●5.●flokki●árið●1987●klipptu●allar●einn●vænan●lokk
Tobbi
Trúður með
leikskóla-
börnum
á Holti í
Njarðvík
Óskum eftir að ráða sem fyrst, en umsóknarfrestur er til 15. ágúst.
Allir umsækjendur þurfa að geta framvísað hreinu sakavottorði og standast bakgrunnsskoðun í Flugstöðinni.
Securitas er stærsta öryggisfyrirtæki landsins með um 500 starfsmenn.
Securitas rekur útibú og starfsstöðvar víða um land, á Reykjanesi starfa á milli 70 og 80 manns.
Við leggjum áherslu á að vera góður vinnustaður og hafa hlutina í lagi.
ÖRYGGISVÖRÐUM Í STAÐBUNDNA GÆSLU
• Starfsmaður hefur starfstöð hjá einu fyrirtæki og
sinnir eftirliti og gæslu þar staðbundið.
VAKTSTJÓRI Í ÞJÓNUSTU VIÐ FATLAÐA OG
HREYFIHAMLAÐA (PRM) Í FLUGSTÖÐINNI
• Ber ábyrgð á framkvæmd þjónustunnar, skipulag
og mönnun.
SAMEIGINLEGAR HÆFNISKRÖFUR:
• Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum
samskiptum.
• Enskukunnátta skilyrði, íslenskukunnátta kostur.
• Gott ef starfsmenn gætu hafið störf sem fyrst .
en leitum einnig að fólki frá og með hausti.
TÆKNIMENN
Helstu verkefni:
• Uppsetning og forritun helstu öryggiskerfa s.s. inn-
brota-, bruna-, aðgangsstýri- og myndavélakerfa
ásamt viðgerðum og öðrum tilfallandi verkefnum.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Menntun sem nýtist í starfi t.d. sveinspróf í raf-
virkjun (má vera ólokið)
• Rík þjónustulund, vandvirkni og hæfni í mann-
legum samskiptum
LEITUM AÐ FRÁBÆRU FÓLKI Á FRÁBÆRAN VINNUSTAÐ
SECURITAS REYKJANESI
IÐAVELLIR 13, REYKJANESBÆ, S. 580 7200
Nánari upplýsingar um störfin er að finna á heimasíðu okkar
www.securitas.is en þar er einnig sótt um störfin.